Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 59

Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 59
Litli-Bergþór 59 Í Tungunum er vísan um Kristján í Stekkholti í miklum metum og er nánast einkennissöngur Tungnamanna. Við Skagfirðingar eigum líka vísu sem sennilega hefur verið oftar sungin í þeim fagra firði en nokkur önnur vísa og hefst á orðunum ,,Skála og syngja Skag firðingar.“ Í þessari grein ætla ég að sleppa umfjöllun um fyrsta orð þessa vísubrots en fjalla því meira um sönginn. Jónas Ingimundar píanóleikari sagði einhvern tíma að tónlistin væri drottning allra lista og ekkert gæfi manni eins mikið og að vera með í músík. Ég var alin upp á heimili þar sem tónlist var í hávegum höfð, af hvaða toga sem var. Foreldrar mínir sungu í kórum, móðir mín söng oft einsöng og hóf þann feril 12 ára gömul þegar hún söng einsöng með Karlakórnum Vísi á Siglufirði. Faðir minn var harmonikuleikari og lék oft fyrir dansi í Eyjafirðinum á sínum yngri árum. Öll systkinin, átta talsins, sungu í kórum, mörg okkar í fleiri en einum kór. Á heimilinu hljómaði oft raddaður söngur og hljóðfæraleikur undir. Flest okkar kunnu á nokkur hljóðfæri og sum virtust geta spilað á hvaða hljóðfæri sem var og því var aldrei hörgull á fólki til að leysa hljóðfæraleikara af ef á þurfti að halda. Söngurinn göfgar og glæðir guðlega neista í sál Sigurlaug Angantýsdóttir Ég fór ung að syngja í kórum, fyrst í Barna­ kór Sauðár krókskirkju undir stjórn Ey þórs Stefánssonar tónskálds og skólastjóra Tón listar­ skóla Sauðárkróks en hann kenndi mér einnig tónfræði sem nýttist mér vel síðar þegar ég fór að útsetja lög sem stjórnandi barnakórs og síðar unglinga kórs á Sauðárkróki. Eftir stúdentspróf kenndi ég einn vetur á Króknum og þá söng ég með Sam kór Sauðárkróks. Til gaman má geta þess að vorið 1979 fór kórinn í söngferð suður á land og við héldum mjög góða og fjölmenna tónleika í Aratungu og að þeim loknum var hald inn dans­ leikur þar sem hljómsveit Geirmundar Valtýs­ sonar spilaði fyrir dansi. Var mikið dans að og sungið fram á nótt og áttum við þar ógleymanlega samveru með Sunnlendingum. Meðfram námi mínu við Kennaraháskóla Ís- lands söng ég með Skagfirsku Söngsveitinni í Reykja vík og að náminu loknu fór ég aftur heim og gekk þá í Kirkjukór Sauðárkróks og starfaði í hon um í u.þ.b. 12 ár og var formaður hans um tíma. Einnig söng ég með Rökkurkórnum í Skagafirði í nokkur ár. Haukur Guðlaugsson var söngmálastjóri þjóð kirkj­ unnar. Hann var ein lægur og elskulegur mað ur, sem hafði ein staka hæfi leika til að ná til fólks, hrífa það og virkja. Í um aldar fjórðung hélt hann árleg kóra­ og organista­ nám skeið í Skál holti. Þessi námskeið voru geysi vinsæl og á þau komu organ istar og söngfólk víðsvegar að af landinu, ég minnist þess að í eitt sinn voru um 100 konur í sópran og sýnir það vel hversu fjölmenn þessi námskeið voru. Segja má að fólk á öllum aldri, frá táningum upp í fólk á Stoppað í Borgarnesi á leið í Skálholt og auðvitað var svo lagið tekið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.