Litli Bergþór - 01.06.2021, Page 60

Litli Bergþór - 01.06.2021, Page 60
60 Litli-Bergþór áttræðisaldri hafi mætt og þar fann fólk ekki fyrir kynslóðabili. Það var því mikil gleði og eftirvænting sem ríkti í hugum þeirra sem sóttu Skálholt heim upp úr miðjum ágúst ár hvert til að taka þátt í námskeiðunum. Söngfólk Kirkjukórs Sauðárkróks gerði sér far um að komast til Skálholts og ég var svo heppin að vera þátttakandi í fimm skipti. Námskeiðin hófust strax á mánudegi og áttu organistarnir sviðið, söngfólkið mætti svo á fimmtudegi eða föstudegi. Við lögðum af stað frá Sauðárkróki snemma morguns á föstudegi og þegar komið var í Skálholt náðum við í möppur sem innihéldu viðfangsefni námskeiðsins. Þá fengum við að vita hvar við ættum að gista og yfirleitt fórum við fljótlega á gististaðinn til að ganga frá farangri okkar. Tvisvar sinnum gisti hópurinn í minni húsunum í Skálholtsbúðum en nokkrum sinnum vorum við í stóra húsinu, sem við kölluðum Löngu vitleysu. Okkur leið mjög vel í því húsi enda margmenni þar og við vorum skemmtanaglaðir Skagfirðingar. Síðar í greininni mun ég segja frekar frá dvöl okkar þar. Þegar búið var að koma farangr inum fyrir var strax hafist handa við að kanna hvar við ættum að mæta til æfinga á tón listinni sem flytja átti á sunnu deginum, mappan góða innihélt andlega tónlist sem flutt var í messu sem og verald- lega tónlist sem flutt var á tón- leik um eftir messuna. Dag­ skráin var þétt og markviss og stíft var æft undir leiðsögn ákveð inna kennara; til dæmis Hauks, Mána Sigurjónssonar, Harðar Áskelssonar, Ingveldar Hjaltested raddþjálfara og ekki síst Hilmars Arnar Agn- ars sonar. Ég og elsta systir mín sungum sópran og vorum við svo heppn ar að lenda einu sinni í kór hjá Hilmari og valdi hann okkur til að syngja í tvöföldum kvartett á tónleikum, eftir messu á sunnudeginum. Það var mikil upphefð og ánægjuleg upplifun að fá að syngja undir hans stjórn. Á þessum tíma þekkti ég Hilmar ekkert og hafði ekki hugmynd um að ég myndi kynnast honum vel nokkrum misserum seinna, verða samkennari hans í Reykholtsskóla og syngja undir hans stjórn í Skálholtskórnum. Þegar formlegri dagskrá dagsins var lokið voru margir orðnir þreyttir og því fegnir að komast í búðirnar. Þar slakaði fólk á, spjallaði við kórfélaga og blandaði geði við söngfólk sem komið var víða að. Þarna kynntumst við fólki af höfuðborgarsvæðinu, Austfirðingum, Vestfirðingum og ekki síst öðrum Norðlendingum. Þreytan var furðulega fljót að líða úr manni og ekki leið á löngu þar til söngurinn ómaði á ný og nú með öðru sniði. Teknar voru upp söngbækur og sungnir vinsælir dægurlagatextar og lög sem allir kunnu. Síðla kvölds, þegar fólk vildi halda til náða, tók nokkur hópur fólks sig til og hélt inn á baðherbergið í Löngu vitleysu því þar var besta næðið og góður hljómur. Við handlaugarnar þar inni var „Klósettkórinn“ stofnaður og starfaði hann öll þau ár sem ég mætti til námskeiðs í Skálholti og einnig hittust nokkrir kórfélagar á Sauðárkróki. Valið fólk var í hverju rúmi í þessum kór og aðalmarkmið hans var mildur, vandaður og einlægur söngur sálma úr sálmabókinni. Þess má geta að einhverju sinni sungum við alla sálma í bókinni, að jarðarfararsálmum undanteknum. Í þessum kór vorum við systurnar ásamt mági mínum og nokkrum fleirum úr Kirkjukór Sauðárkróks, nokkrum mönnum úr Vestur- Húnavatnssýslu og tveimur konum frá Súðavík. Það var alveg stór kost legt tilfinning sem kom yfir okkur við þennan samsöng, raddirnar smellpössuðu saman og voru svo vel samstilltar að unun var að heyra og upplifa. Nokkrum sinnum villtist fólk inn á okkar svæði, sem vildi láta ljós sitt skína, og var því vinsamlega bent á markmið söngsins og það Haukur er vinur minn. Norðlendingar syngja af innlifun.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.