Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 4
Nú stendur til að dusta rykið af Landsdómi en það fyrirbæri er
sérdómstóll sem kveðið er á um í 14. grein stjórnarskrár Lýðveldisins
Íslands. Hann fer með og dæmir mál sem Alþingi ákveður að höfða
gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra og starfar eftir lögum nr.
3/1963 og er skipaður 15 dómendum. Þessi dómur hefur aldrei verið
kallaður saman á Íslandi frá stofnun hans árið 1905.
Nú skal blásið í lúðra, ábúðarfullir stjórnmálamenn stíga á stokk og
segja að ekki verði vikist undan þeirri þungu ábyrgð sem á herðum
þeirra hvíli sem þjóðkjörnir fulltrúar þjóðarinnar. Svo er að heyra á
forsætisráðherra að þjóðinni verði ekki rótt fyrr en 3 - 4 fyrrverandi
ráðherrar verði komnir á Kvíabryggju. Ekki er annað að merkja en að
afgreiðsla þessa máls sé brýnasta úrlausnarefnið um þessar mundir.
Sumum þykir þó sem verið sé að hengja bakara fyrir smið, þótt ekki
væri fyrir annað en þriggja ára fyrningafrest gagnvart fyrrverandi
ráðamönnum samkvæmt lagabókstafnum. Það eitt gerir allan þennan
málatilbúnað fáránlegan og fráleitt til þess fallinn að róa þjóðina. Búið
er að hálfu þingmannanefndar að setja saman skala fyrir mismunandi
andvaraleysi/gáleysi, allt frá hefðbundnu upp í vítavert og þar með
refsivert gáleysi. Yfi r þessu liggja okkar þjóðkjörnu fulltrúar um þessar
mundir meðan eldar loga vítt og breitt út um þjóðfélagið og óteljandi
þjóðþrifamál bíða úrlausnar. Ekki er að merkja að hugtakið forgangs-
röðun sé til í huga þeirra sem með völdin fara í þessu landi.
Framtakssjóðurinn
Fimmtudaginn 16. sept. var haldinn „kynningarfundur“ um málefni
Framtakssjóðs, en það er sjóður sem að standa 16 lífeyrissjóðir og ætlað
er það hlutverk að stuðla að endurreisn atvinnulífsins. Uppleggið var að
fjárfesta í lífvænlegum fyrirtækjum með fjárhagsstöðu sem ekki væri
verri en svo að innspýting frá sjóðnum kæmi viðkomandi fyrirtæki á
beinu brautina á ný og legði þar með grunninn að ávöxtunarmögu-
leikum lífeyrissjóðanna. Nú bregður svo við að stjórnendur sjóðsins
hafa keypt eignahaldsfélagið Vestia af Landsbanka Ísland. Samkomu-
lagið er reyndar með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannanna
og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Slík áreiðanleikakönnun hlýtur að
hafa farið fram áður en gengið var frá 3 þúsund miljóna innspýtingu
sjóðsins í Icelandair, en á þeim kynningarfundi sem áður er getið fékk
aðkoma Framtakssjóðs að Icelandair þvílíka falleinkun að það hálfa
hefði verið nóg. Óhætt er að fullyrða að hafi þessum fundi verið ætlað
það hlutverk að róa sjóðfélaga þeirra lífeyrissjóða sem hlut eiga að máli,
þá hefur það markmið algjörlega mistekist.
Árni Bjarnason.
Efnis-Nú skal róa þjóðina
Togarinn Norðlendingur hætt kominn. Alfreð Jónsson
var á togaranum við Nýfundnaland í febrúar 1959.
Alfreð segir hér frá þeirri lífsreynslu sem og ýmsu
fl eiru úr sögu togarans.
Ljósmyndin. Jón Kr. Friðgeirsson blekkir augað.
Vænt þykir mér um síðutogaratímabilið. Ólafur Grímur
Björnsson rabbar við Benedikt Brynjólfsson. Bróðir
hans, Haukur, leggur orð í belg. Þetta er fyrsti hluti
þessa skemmtilega og fróðlega viðtals.
Leiðrétting. Tilvitnunin var frá forseta vorum, Árna
Bjarnasyni.
Ástleitni um borð í Gullfossi. Guðjón Petersen segir af
eigin reynslu.
Má skipta mannkyni í „sigurvegara“ og „tapara“?
Fáein „lýsandi“ dæmi þar um.
Helgi Laxdal stingur niður penna í tilefni af hinni
bráðskemmtilegu dragnótagrein Jónasar Haralds-
sonar er birtist í 1. tbl. Víkings þessa árs.
Veiðiþáttur Ragnars Hólms Ragnarssonar: Svolítil
lífsspeki.
Kennt um strand en var þó í landi. Ragnar Franzson
deilir með okkur endurminningum sínum.
Bræluball í Grímsey. Bernharð Haraldsson náði þessu
minningarbroti frá Baldvini Bjarnasyni.
Hilmar Snorrason færir okkur fréttir utan úr heimi.
Togarakallar hittast. Myndaopna.
Ljósmyndakeppni sjómanna 2010.
Loftárásir á miðin. Hið einstaka stríð við háhyrn-
ingana.
Ráðherra fyrir misskilning.
Kaspryba, framandi skip í heimsókn. Hilmar
Snorrason fer niður að höfn í Reykjavík.
Getraunin, rétt svör.
Hilmar siglir um netið.
Um hvalabók, fróðleg og skemmtileg.
Frívaktin.
Þakkir. Guðmundur og Olga eru hætt.
Sjómenn og aðrir lesendur Víkings.
Sendið okkur línu um efni blaðsins, gagn-
rýni eða hrós, tillögur um efnisþætti og
hugmyndir um viðtöl við áhugaverða sjó-
menn, jafnt farmenn sem hina er draga fisk
úr sjó. Hjálpið okkur að halda úti þætt-
inum: Raddir af sjónum.
Netjið á jonhjalta@simnet.is
Forsíðumynd: Siglingakeppni á Pollinum
við Akureyri. Fjær er snekkjan, Octopus,
sem Hilmar minnist á í þætti sínum,
Sigling um netið. Ritstjóri vor, Jón
Hjaltason, tók myndina í sumar.
6
11
12
18
19
20
22
24
31
34
26
36
Útgefandi: Völuspá, útgáfa,
í samvinnu við Farmanna- og fi skimannasamband Íslands.
Afgreiðsla og áskrift: 462 2515/netfang: jonhjalta@simnet.is
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 462 2515,
netfang: jonhjalta@simnet.is Byggðavegi 101b, 600 Akureyri.
Auglýsingastjóri: Vilborg Aldís Ragnarsdóttir, sími 894 6811
Ritnefnd: Árni Bjarnason, Hilmar Snorrason og Jón Hjaltason.
Forseti FFSÍ: Árni Bjarnason.
Prentvinnsla: Ásprent.
Aðildarfélög FFSÍ: Félag skipstjórnarmanna, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta,
Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi, Vestmannaeyjum og Vísir, Suðurnesjum.
Sjómannablaðið Víkingur kemur út fjórum sinnum á ári og er dreift til allra félagsmanna
FFSÍ.
Blaðið kemur út fjórum sinnum á ári.
ISSN 1021-7231
29
38
43
47
44
46
50
48
49