Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 7
Sjómannablaðið Víkingur – 7 Færeyingarnir koma og einn hringar sig niður í brúnni Siglt var á Nýfundnalandsmið, svokall- aðan Ritubanka, sem er 80 sjómílur suð- ur af Nýfundnalandi. Þar höfðu fundist gjöful karfamið. Allt gekk eins og í sögu. Skipið var fyllt og við komum heim til Sauðárkróks og lönduðum þar eftir 18 sólarhringa túr. Karlarnir sem fengust á skipið í Reykjavík reyndust flestir frá- bærlega vel í alla staði, flestir vanir sjó- menn. Þegar hér var komið var búið að semja við sjómenn og verkfallið í Færeyj- um leyst. Nú streymdu Færeyingar til landsins á þau skip sem búið var að ráða þá á. Þá var aftur farið til Reykjavíkur og skipt um áhöfn, nema Óla Færeying, hann var áfram á skipinu. Óli var sérstök persóna. Hann sóttist eftir að vera við stýrið, þetta var maður fáskiptinn og blandaði lítið geði við samskipsmenn sína. Er hann átti frívakt svaf hann oftast í brúnni og hringaði sig niður í fata- hrúgu á gólfinu í einhverju horni brúar- innar þar sem lítið fór fyrir honum. Þetta var stór hópur Færeyinga sem kom um borð, eða hálf önnur vakt. Mér virtist allir vera komnir yfir miðjan aldur nema tveir bræður sem voru langtum yngstir af hópnum, annar var trésmiður en hinn rafvirki. Færeyingarnir höfðu gaman af að fá sér í staupinu og fóru vel með það nema þessir bræður, þeir drukku illa og kom fyrir að þeim lenti saman. Þeir eldri skiptu sér ekkert af þeim en sögðu bara að svona væri ung- dómurinn í dag. Nú þegar Færeyingarnir voru komnir um borð var ekki til setunnar boðið, kostur tekinn í túrinn og landfestar leystar, stefnan sett fyrir Reykjanes og á sömu mið skyldi halda. Meðan skipið stansaði í Reykjavík höfðu nokkrir skipverjar brugðið sér í land. Ég átti hundavaktina, það er frá miðnætti fram að fjögur. Nú kom í ljós að annar kyndarinn sem koma átti á vaktina með mér hafði ekki skilað sér um borð. Þurfti ég því bæði að sjá um kyndinguna og vélina. Ekki tók betra við þegar annar vélstjóri átti að taka við vaktinni af mér. Hann lá blindfullur í koju og þóttist vera fárveikur. Ég varð þá að bæta hans vakt við mig líka. Þegar við komum fyrir Garðskagann var komið snarvitlaust suðaustan rok og stórsjór. Um nóttina fékk skipið á sig feikna mik- ið brot og braut botninn á bakborðs- björgunarbátnum. Ekki var hægt að keyra meira en hálfa ferð vegna veðurs. Einu sinni kom það fyrir í mestu látunum að vélsíminn hringdi á fulla ferð, ég svaraði „fulla ferð“ á vélsímann en bætti ekki við vél- ina. Eftir smástund kom önnur hringing úr brú um hálfa ferð og ég svaraði sem áður. Þetta var í einasta skiptið sem ég óhlýðnaðist skipun úr brú vegna þess að ég vissi að stjórnandinn var ekki alveg edrú. Þetta fannst mér einna ömurlegasta nóttin um borð. Einn að skrölta í véla- rúminu og réði mér vart fyrir látum svo feginn varð ég þegar fyrsti vélstjóri leysti mig af klukkan átta, ég beint í koju því þreytan var farin að segja til sín. Eftir þetta þurfti ég ekki að standa einn í véla- rúmi og sjá um vél og kyndingu því ráð- inn var Færeyingur í kyndarastarfið, gamall vélstjóri og vanur sjómaður til margra ára. Skipið fer á hliðina Veðrið skánaði lítillega eftir þetta en var samt leiðindaskakstur alla leiðina, þar til á miðin kom um miðnætti laugardaginn 7. febrúar. Þá snögglyngdi allt í einu með mikilli logndrífu, eitthvað heyrði ég um að togarinn Júlí væri skammt frá okkur þarna í sortanum. En þetta reyndist svikalogn og stóð ekki lengi. Eins og hendi væri veifað rauk hann upp í norð- anofsa, síðan í norðvestrið með miklu frosti. Ég var á vakt í vél frá miðnætti til fjögur um nóttina. Skipssíðurnar tóku að héla og voru orðnar hvítar er ég fór af vaktinni. Ég stoppaði stutt við í eldhúsi en dreif mig í koju sem var bakborðs- megin. Ég var búinn að vera smástund í koju er skipið lagðist á bakborðshliðina og ég ligg ofan á sænginni á skipssíðunni og rúmdýnan ofan á mér. Skipið rétti sig fljótt en rúllaði þá yfir á stjórnborð. Sjór- inn fossaði niður um uppgönguna sem hafði verið opin. Ferðataskan undan föt- um mínum sem kominn voru í fataskáp- inn, flaut um gólfið. Ég hékk á koju- stokknum og hafði það af að halda mér meðan á þessu stóð. Ekki veit ég hvað skipið lá lengi á hliðinni. Mér fannst það óhugnanlega langur tími. Svo rétti skipið sig hægt og rólega og valt ekki úr því. Eftir á sagði 2, stýrimaður mér að skipstjórinn hefði verið ræstur og hann þá verið búin að dreyma látna föður- móður sína. Hún hefði komið til sín og skipað sér að snúa skipinu undan veðr- inu, sem hann ákvað að gera er hann kom upp, en það verið orðið svo ísað að það þoldi ekki veðrið á hliðina, og jafn- framt að brúargluggar hefðu farið á kaf í sjó. Ég veit að það sem hefur bjargað því að við fórumst ekki var að ísinn var frosinn í stump í lestinni og haggaðist ekki. Hefði hann farið af stað og kastast til hefðu leikslokin orðið önnur. Lítið gat ég sofið það sem eftir lifði nætur. Á vaktina mætti ég svo aftur kl. 12. Þá var komið þykkt lag af hrími á skipsíðurnar og sjódælur. Skipið stóð á endum á sjónum, mikill hvinur heyrðist áður en brotin skullu aftanundir skipið. Það hreinsaði alveg undan því fram und- ir miðju, þannig að sjódælurnar fylltust af lofti. Ég tók það ráð að stilla loftkran- ana þannig að dælurnar lofttæmdust

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.