Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur Inn í miðja bryggju Við þurftum inn á Akureyri í hvert sinn sem landað var til að taka ís og olíu. Annarsstaðar var þetta ekki afgreitt norð- anlands. Einu sinni sem oftar er við vor- um búnir að taka ísinn þurftum við að færa skipið að olíubryggjunni sem var gömul trébryggja. Olíulögnin var fest ofan á bryggjudekkið og dælan á endan- um á leiðslunni í smáskýli. Skipið kom að á of mikilli ferð og rann langt inn í bryggjuna, sópaði á undan sér olíuleiðslu og dælu. Eftir á sagði 2. stýrimaður í gríni að fúinn í bryggjunni hefði verið svo mikill að hefði mátt rækta þar kartöflur. En olíuna fengum við eftir að búið var að lagfæra skemmdir á olíu- leiðslunni. Fullir og veiðist eitt tundurdufl Fréttir komu frá togurum sem voru að mokveiða á Grímseyjarsundi. Í flýti var skipverjum smalað um borð en fáir voru vinnufærir vegna ölvunar svo að legið var út við Hrísey á meðan rann af mann- skapnum. Það passaði, er áhöfnin var orðin vinnufær var fiskiríið búið á Sund- inu. Eitt sinn vorum við að toga í Straum- nesröstinni og var lítið að hafa nema smákropp af steinbít. Í einu halinu, þeg- ar búið var að taka pokann og leysa frá honum í stíu sem á dekkinu var, sáum við að tundurdufl var í steinbítshrúg- unni. Var belgurinn á trollinu hringaður í kring um duflið til að skorða það af og siglt inn á sundin við Ísafjörð og beðið þar eftir mönnum frá Landhelgisgæsl- unni til að gera duflið óvirkt. Í ljós kom að duflið var virkt þó það væri illa út- lítandi af ryði. Fleiru markverðu man ég ekki eftir í fljótu bragði. Ég fór heim í sauðburð- inn um vorið og þar með lauk minni reynslumiklu og viðburðaríku sjó- mennsku á síðutogaranum Norðlendingi. Strandar í Færeyjum og svanasöngur Kristján skipstjóri heimsótti mig eftir að hann var hættur á Norðlendingi og sagði mér frá því að hann hefði farið í nóvem- ber til Færeyja til að sækja þangað þar- lenda menn á skipið. Þeir hefðu komið til hafnar í Trangisvogi í Suðurey og tekið menn um borð síðan höfðu þeir farið til annarrar eyjar, sem ég man ekki nafn á, til að sækja fleiri menn. Á þeirri leið lenti togarinn á blindskeri sem Kristján sagði að ekki hefði verið merkt inn á sjókortið sem hann hafði af sigl- ingarleiðinni. Fyrir stuttu áttum við tal saman Ósk- ar Jónsson, yfirlæknir á Sjúkrahúsi Sauð- árkróks, þar sem Norðlending bar á góma. Hann sagði mér að eftir að ég fór af skipinu hefði hann ráðið sig þar um borð. Hann hefði verið á skipinu er það strandaði og var frásögn hans í megin dráttum sú sama og hjá Kristjáni skip- stjóra. Eftir strandið fór útgerðarstjórinn Gunnar Halldórsson til Færeyja og sótti Norðlending, sem þá var búið að gera við, og sigldi honum heim. Síðan fór Gunnar eina veiðiferð með skipið og 1. stýrimaður tvo túra en þá voru enda- lokin ráðin á útgerð Norðlendings. Út- gerðarfélagið Norðlendingur h/f var orð- ið gjaldþrota. Skipið fór á nauðungar- uppboð og hreppti Útgerðarfélag Akur- eyringa það. Hjá ÚA fékk skipið nafnið Hrímbakur. Þar sem skipið var orðið lé- legt og rekstur þess gekk ekki sem skyldi var ákveðið að selja það út í brotajárn. Ef ég man rétt úr fréttum urðu enda- lok skipsins þau að lagt var af stað með það út ásamt öðru skipi. Þeir hrepptu versta veður í hafi og Hrímbakur slitnaði aftan úr dráttarskipinu og endaði á hafs- botni. Höfundur er frá Reykjarhóli í Austur-Fljótum, nú búsettur á Sauðárkróki. Tundurdufl ið komið um borð í Norðlending. Landað úr Norðlendingi í Sauðárkrókshöfn með skurðgröfu sem Ræktunarsamband Skagafjarðar átti.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.