Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 14
borðsalurinn var stærri. Frammi í hval-
bak var frystiklefi bakborðsmegin, lík-
legast var hann fyrsti frystitogarinn
okkar, þótt lítið væri það notað. Á Óla
Jóh var ég í ein þrjú ár. Þá fór ég aftur á
Hvalfellið, og nú var Guðbjörn Jensson,
Bubbi, með hann og Jói Belló stýrimaður
(Jóhann Björgvin Sigurgeirsson). Bubbi
léttur, kátur, sagðist vera miklu meiri
söngmaður en Ketill, bróðir hans. Ég átti
að verða söngmaður, sagði hann um
sjálfan sig. Jói Belló var seinna stýri-
maður hjá Bubba Jens á Hallveigu
Fróðadóttur, en þar kom ég stutt við,
sem betur fer. Þeir voru góðir saman,
Bubbi og Jói.3
Næst fór ég 2–3 túra á nýja Fylki.
Auðun Auðunsson var einnig skipstjóri á
þessum Fylki, en Sæmundur, bróðir
hans, var að grípa í hann af og til og fór
á honum sumarið 1958 og fann karfa-
miðin við Nýfundnaland á Ritubanka.
Ekki fannst mér nú Auðun skemmti-
legur, ákaflega húmorslaus. Var svo
persónulegur, ef hann yrti á menn,
nefndi þá fullu nafni. Fylkir var nýr,
smíðaður 1958 og með lórantæki. En
frammi í lúkar var ekkert nýtt. Hann var
þröngur að framan, mjósleginn, vel
lagaður til gangs og gekk vel með 1.500
hestafla vél, 650 tonna togarinn! Hafði
mikinn togkraft. Miklir fiskimenn voru
þeir allir þessir bræður. Einna minnst
bar á Gunnari, kannski vegna þess að
hann fiskaði svo mikið, reif lítið, enginn
netaböðull, var vinsæll af mannskapnum,
auðveldara að vera með honum.
Ólafur: Sagt er, að Gunnar hafi alltaf
kallað úr brúarglugganum: „Nú er það
Þórscafé, strákar!“ – þegar veiðum var
lokið, taka ætti inn trollið, gera sjóklárt
og halda heim.
Benedikt: Var eiginlega feginn að geta
farið að yfir á Ask. Guðmundur Ásgeirs-
son var stýrimaður þar, honum hafði ég
kynnzt áður á bv. Ólafi Jóhannessyni.
Guðni Sigurðsson var með Ask, hann
tók seinna Frey og var með hann, þar til
að Bretinn keypti Frey (hét eftir það
Ross Revenge og heitir enn, þar sem
hann hefur legið lengi við bryggju ein-
14 – Sjómannablaðið Víkingur
Benedikt, 15 ára pjakkur á spilinu á bv. Elliða SI 1. Ljósmynd: Benedikt
Brynjólfsson.
Benedikt við vírastýrið á bv. Elliða frá Siglufi rði. Ljósmynd: Benedikt
Brynjólfsson.
Um borð í bv. Guðmundi Júní. Látið fara. Ljósmynd: Benedikt Brynjólfsson. Skúli Einarsson kokkur á Guðmundi Júní árið 1959. Hann gerðist verkalýðs-
foringi á efri árum og formaður Félags matreiðslumanna. Þykist hér vera neta-
maður. Ljósmynd: Haukur Brynjólfsson.