Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 15
hvers staðar í Bretlandi). Þarna á Aski var ég, þar til skólinn byrjaði 1. október 1959, Stýrimannaskólinn. Sumarið 1960 var ég kominn á síld á Hafþór Guðjónsson VE 265 frá Vest- mannaeyjum. Ætlaði að klára skólann veturinn eftir með kaupinu, sem ég fengi yfir sumarið á síldinni. En svo lítill var síldaraflinn, að ég átti ekki fyrir því að fara í skólann um haustið. Engin náms- lán á þeim árum, ekki búið að finna þau upp, varðst að eiga fyrir öllum hlutum. Ég var svo vitlaus seinna að þiggja ekki boð þeirra hjá Akureyrarútgerðinni, þeir buðust til að styrkja mig; og þá yrði ég bundinn þeim í nokkurn tíma á eftir, sem hefði verið í bezta lagi. Um haustið er ég á Gullborginni hjá Binna í Gröf, vorum á trolli. Gaman af karlinum. Gull- borgin er geymd í sjóminjasafninu núna, en mynd af henni með gömlu brúnni finn ég ekki. Þá kom togarinn Haukur (upphaflega Austfirðingur) til Vest- mannaeyja, vantaði menn, sama útgerð með hann og Hvalfellið, Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjan h/f. Geiri Gísla (Ásgeir Gíslason) var með Hauk, einn af þessum toppfiskiskipstjórum, og Bubbi var fyrsti stýrimaður hjá honum og Belló annar. Ég og Friðrik, sonur Binna, fórum á Hauk RE 27. Þá var það Egill Skallagrímsson, skipstjóri Gunnar Ólafsson og stýrimað- ur Rafn Kristjánsson. Af Agli fór ég á Sigurð, splunkunýjan 1000 lesta togara. En honum var lagt eftir tvo túra, og ég komst á systurskipið Frey, þeir voru al- veg eins. Ég var bátsmaður á Steingrími trölla hjá Guðmundi Halldórssyni. Vorum í Reykjarfjarðarál á Húnaflóa í blönduðum fiski, þegar ég skaut á Bretann eins og Guðmundur segir frá í viðtalsbókinni. Þetta var í þorskastríðinu. Bretinn kom siglandi upp að okkur til að trufla veið- arnar ... já, hann kom aftur og aftur, og ég fór inn og náði í haglabyssuhólk og skaut yfir togarann. Þeir fleygðu sér flatir á dekkið, Tjallarnir, og Gvendur var í glugganum og kallaði: „Hvað gerirðu, drengur?“ Mikill hávaði varð í talstöðinni hjá Bretanum á eftir. Við færðum okkur utar. Guðmundur tók ekki af mér byssuna, en segir í bókinni, að þessi bátsmaður hafi verið svolítið hrekkjóttur4. Daginn eftir vildi svo „skemmtilega“ til, að við feng- um tundurdufl í trollið. Guðmundur kallaði strax í freigátuna og segir þeim að koma og hreinsa þetta, duflið sé frá þeim. Bretinn var tregur til, en komu svo og voru allir vopnaðir handvélbyssum, 10–12 af þeim! Gerðu duflið óvirkt, það var híft í sjóinn og því sökkt. Hvergi betri bæjarútgerð Benedikt: Árið 1963 er ég fluttur til Sauðárkróks, hef stofnað heimili, en er á Harðbak og Svalbak hjá Útgerðarfélagi Akureyrar. Þessir tveir voru svo til eins, matsalurinn var þó frammi í keisnum á Harðbak, stærri og huggulegri, og minnisstætt er mér litla afturmastrið á Svalbak. Rætt hefur verið, hversu framar- lega stýrið var í brúnni á þessum tog- urum. Það var framarlega í þessum báðum. Hvergi liðið betur en á Harðbak og Svalbak, og hvergi verið hjá betri útgerð en Ú.A. Vilhelm Þorsteinsson var skip- stjóri á Harðbak, varð síðan forstjóri út- gerðarinnar. Alltaf góður mannskapur hjá Villa. Nú heitir einn frystitogarinn eftir honum, Vilhelm Þorsteinsson EA- 11, og annar eftir tvíburabróður hans, það er Baldvin Þorsteinsson EA-10. Vil- helm bauðst til að styrkja mig í skólann, ég var þá annar stýrimaður á Svalbak á undanþágu. Halldór Hallgrímsson var með Svalbak. Sem sjómenn eru Villi á Harðbak og Dóri á Svalbaki mér minnis- stæðastir, þegar ég lít yfir tímann. Þegar ég hætti á Akureyrartogurun- um, var ég skipstjóri á bátum frá Sauð- árkróki. Flutti svo suður rétt fyrir 1970 og þá austur á land með seinni kon- unni. Fyrir austan tekur við nýtt tíma- bil, skuttogarar, var 2. stýrimaður á Otto Wathne frá Seyðisfirði, kallaður „ljóti andarunginn“, var einnig á Hólma- tindi frá Eskifirði, sem Alli ríki átti. Síðast á Snæfuglinum í 3–4 ár. Það var gamla gula Guggan. Mér fannst hún leiðinlegt skip, leiðinlegar hreyfingar. Það átti kannski við um alla skuttogara, mér leiddust þeir ... var vanur öðrum hreyfingum. Síðutogaratímabilið þykir mér vænt um. Þegar maður skoðar myndir af gömlu togurunum, fær maður saknaðar- tilfinningu, af því að nú eru þeir allir horfnir. Síðasti síðutogarinn, sem gerður var út, var líklegast Rán frá Hafnarfirði; Ásgeir Gíslason og Kjartan Ingimundar- son voru með hann undir það síðasta þar Sjómannablaðið Víkingur – 15 Olav Öyahals, annar vélsjóri á Guðmundi Júní. Ljósmynd: Haukur Brynjólfsson. Ólafur Halldórsson loftskeytamaður á Guðmundi Júní. Ljósmynd: Haukur Brynjólfsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.