Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 19
Hundavaktin“, frá miðnætti til 04:00
á síðnóttu, var oftast róleg um
borð í MS. Gullfossi. „Brandvaktarmað-
urinn“, sem var í raun öryggisvörður
um borð, var þriðji hásetinn á vaktinni,
við hinir tveir stóðum vaktina á stjórn-
palli ásamt 3. stýrimanni.
Hlutverk brandvaktarmannsins var að
fara í reglulegar eftirlitsferðir um vistar-
verur skipsins og gæta að öryggi farþega
og áhafnar sem og að taka sig af þeim
sem voru á ónæðissömu fylleríi á göng-
um eða í klefum eftir lokun á börunum.
Því vorum við sem stóðum vaktina á
stjórnpalli blessunarlega lausir við að
annast, það sem nú kallast áfallahjálp,
fyrir þá sem töldu sig drekkja sorgum
svikinna ásta eða þagga niður í söng-
þörf ölvaðra hetjutenóra. Það sem þó gat
truflað hug okkar, sem vorum á vakt í
brúnni, frá skyldustörfum við stjórn
skipsins, var ef við sáum par paufast eftir
myrkvuðu fordekkinu til ástarleikja.
Slíkir leikir voru stundum iðkaðir milli
bíla sem voru keðjaðir fastir á tvölúg-
unni framan við brúna. Þar var myrkur
og fólk gerði sér ekki grein fyrir að á bak
við myrkvaða glugga brúarinnar voru
menn sem voru búnir að venjast
myrkrinu og sáu allt sem fram fór. Ef
fólk valdi sér staði þar sem það var í
hvarfi frá brúnni séð, sem var sjaldnast,
urðum við að ímynda okkur framgang
leiksins eftir tímalengd viðdvalarinnar.
Ímyndun jafnast þó hvergi á við raun-
verulega sýningu í þessum efnum.
Fólk sem hafði ekki aðstöðu í eigin
klefa varð að láta fara nógu notalega um
sig á lestarlúgu á Gullfossi til að losa út
Sjómannablaðið Víkingur – 19
Guðjón Petersen fyrrv. háseti á MS. Gullfossi
Dvergurinn í skápnum
- Saga sem sögð er úr fortíð er sambland af þeim sannleik og skáldskap
sem minningar vefa
MS Gullfoss var 3.858 lestir, smíðaður hjá Burmeister og Wain í Kaupmannahöfn þar sem honum var hleypt
af stokkunum árið 1950. Myndin er tekin hjá Dönunum en ekki er víst hvert skipið er. Gullfoss, sem rúmaði
liðlega 200 farþega, hvarf úr íslenskri eign (Eimskipafélagsins) 1972 og hafa Íslendingar ekki síðan átt
farþegaskip.
Rómantíkin var aldrei langt undan þar sem Gullfoss klauf öldurnar. - Ljósmynd: Poul Erik Olsen.