Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 21
Við öpum margt eftir Kananum.
Til dæmis er hugmyndin um hinn
fædda tapara (eða „lúserinn“) ættuð að
vestan. Reynt er að klína á börn þegar í
uppvextinum að þau séu ekki fædd til
annars en að vera fótaþurrkur snilling-
anna sem bera gæða-genin utan á sér
strax í vöggu. Ég hef veitt því athygli í
vetur að íslenskir íþróttamenn temja
sér æ oftar að tala um sigurvegara –
þessi eða hinn er sigurvegari, er þá
sagt. Sjálfsagt er þá „lúserinn“ kominn
á kreik líka, þótt fari lægra.
Af þessu tilefni – og til nokkurs
lærdóms – skulum við líta á nokkra ein-
staklinga sem dæmdir voru misheppn-
aðir af samferðarmönnum sínum, voru
með öðrum orðum „lúserar“.
Albert Einstein
(1879-1955)
„Það mun aldrei verða mikið úr þér,
væni minn.“
Skólastjóri barnaskólans, þar sem Al-
bert Einstein sótti barnafræðslu, við
þennan „treggáfaða“ nemanda sem þá
var tíu ára gamall.
Franz Liszt
(1811-1886)
„Hann skrifar ljótustu músík okkar
tíma.“
Gagnrýnandi um Franz Liszt 1843.
Paul Cézanne
(1839-1906)
„Hvað viðkemur Cezanne, þá mun nafn
hans um ókomna framtíð tengt stærsta
listamannsbrandara síðustu fimmtán
ára.“
Gagnrýnandinn Camille Mauclair um
Paul Cézanne.
Johannes Brahms
(1833-1897)
„Ég fór yfir tónlist þessa hrapps sem
kallar sig Brahms. Þvílík hæfileikalaus
mannherfa. Það angrar mig að þessum
sjálfbirgingslega meðal-jóni skuli vera
hampað sem snillingi. Hvers vegna?“
Tchaikovsky í dagbók sinni 9. október
1886.
Stanley Matthew
(1915-
„Stanley Matthew vantar rétta keppnis-
skapið til að standa í erfiðri keppni.
Hann mun aldrei eiga fast leikmannasæti
meðal bestu liðanna.“
Ónefndur íþróttafréttamaður þegar
Matthew, sem átti eftir að verða fyrirliði
enska landsliðsins í knattspyrnu, þreytti
frumraun sína í ensku deildarkeppninni,
þá 17 ára gamall.
Bítlarnir
„Okkur líkar ekki tónninn hjá þeim.
Gítarsamleikur er að falla úr tísku.“
Með þessum orðum hafnaði Decca
hljómplötufyrirtækið Bítlunum árið
1962.
Og voru ekki einir um það því að Pye,
Columbia og HMV gerðu slíkt hið sama.
Sjómannablaðið Víkingur – 21
„LÚSERINN!”
Camille Pissarro málaði þessa mynd af Cezanne
árið 1874. Vonlaus málari, fullyrtu gagnrýnendur
en sjálfur sagði listamaðurinn: „Ekki gerast list-
gagnrýnandi. Málaðu. Þar liggur sálarheill okkar
allra.“
Eru þá Bítlarnir kannski „lúserar“ 20. aldar, eða
hvað?
Vonlaus keppnismaður? Ekki meiri en svo að 1964 var Stanley Matthews aðlaður, fyrstur enskra knatt-
spyrnumanna. Snemma á þessu ári seldust knattspyrnuskór Matthews, sem hann notaði í bikarúrslita-
keppninni 1953, fyrir nær 40 þúsund pund eða tæpar 8 milljónir íslenskra króna.