Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31
Titanic
Í síðasta tölublaði sagði ég frá ný útgefinni bók 101 Things You
Thought You Knew About the Titanic...But Didn‘t. Ekki veit ég
hversu margir lesendur blaðsins urðu forvitnir um hvað í bókinni
stæði en ég varð sannarlega það forvitinn að ég festi kaup á henni
skömmu síðar. Bókin er afskaplega áhugaverð og mun ég segja í
næstu blöðum frá hinu og þessu sem í henni kemur fram. Vona ég
að þið hafið gaman af.
Í síðasta blaði sagði ég frá því að Capt. Smith hafði lent í óhappi
með systurskip Titanic, Olympic, en eftir lestur bókarinnar kom
skýring á þessu. Þessi systurskip voru á þeim tíma stærstu skip
heims eða 41 þúsund tonn. Þau voru hvorki meira né minna en
42% stærri en næst stærsta skip heimsins Mauritania. Smith var því
fyrsti og eini maðurinn sem hafði gengt skipstjórn á svo stóru skipi
og var sannarlega að læra margt nýtt. Hann hafði orð fyrir að vera
einstaklega laginn með skipið (Olympic) og kunni vel að beita því
við erfiðar aðstæður. En slysið mun hafa verið tilefni fyrsta alvöru
fjölmiðafársins sem sögur fara af en í New York Times voru fyrstu
12 síður blaðsins fullar af fréttum af atburðinum. Til að bera þetta
saman við nútíma atvik þá segja menn að áhrif slyssins á þeim tíma
hafi verið álíka og árásin á Tvíburaturnana 11. september 2001
hafði á heimsbyggðina. En hvaðan kom nafnið á skipið? Eigandi
skipsins White Star Line, leitaði til grísku goðafræðanna eftir nöfn-
um á þrjú systurskipin, Olympic, Titanic og Britannic, og var nafn
Titanics dregið af Títönum með ic endingu en öll skip útgerðarinnar
höfðu þá endingu í nöfnum sínum. Hefði skipið verið í eigu aðal-
keppinautar White Star Line, Cunard, hefði nafnið orðið Titania en
skip þeirra útgerðar höfðu endinguna ia í nöfnum sínum. Meira í
næsta blaði.
Ný þjálfun
Í janúar s.l. gengu í gildi nýjar reglur um þjálfun fillippínskra sjó-
manna en nú er þeim gert skylt að sækja námskeið sem fjallar um
hvernig eigi að bera sig að í tenglsum við sjórán. Námskeiðið á að
undirbúa þá fyrir að takast á við aðdraganda, ástandið meðan sjó-
ræningjar halda skipinu sem og eftirköst þessa atburða. Reyndar
munu þessar þjálfunarkröfur einungis ná til þeirra sjómanna sem
eru í langsiglingum en eflaust verður ekki langt að bíða að þeir sjó-
menn sem eru í heimasiglingum þurfi einnig að taka þessi nám-
skeið. Töluvert hefur verið um sjórán innan landhelgi Fillippseyja
eins og áður hefur komið fram á þessum síðum. Langstærsti hluti
kaupskipasjómanna eru Fillippseyjingar og hafa þarlend yfirvöld því
haft vaxandi áhyggjur af sínum mönnum sem fórnarlömbum sjó-
rána. Á námskeiðunum er fjallað um líkamleg, andleg og fjármálaleg
áhrif sjórána á sjómennina en um er að ræða eins dags námskeið.
Gáfust upp
Nýlega hófust málaferli á Spáni vegna erfiðleika við smíði á skipi
fyrir danska fiskveiðieftirlitið. Skipasmíðastöðin Astillero M Cies í
Vigo hóf smíði á nýju eftirlitsskipi til að leysa af hólmi 40 ára
gamalt skip fyrir tæpum tveimur árum síðan en nú er svo komið að
skipasmíðastöðin fór í greiðslustöðvun í september. Ekkert hefur
verið unnið við skipið í nærri ár en afhending átti að fara fram í
september s.l. Um 80% af smíði skipsins var lokið en nú hefur verið
ákveðið að rifta samningnum um skipið og telja Danirnir nokkuð
öruggt að þeir fái til baka þær innborganir sem þegar höfðu verið
greiddar inn á skipasmíðasamninginn. Munu þeir ætla að halda
áfram rekstri á hinu 40 ára Nordsjöen enn um sinn.
Mikilvægar rannsóknir
Nýlega var hrundið af stað rannsóknum á sálrænum áhrifum sjó-
rána á sjómenn og fjölskyldur þeirra. Verkefninu er stjórnað af Dr.
Michael Stuart Garfinkle en það var The Seamen‘s Church Institute
(SCI) sem hratt því af stað. Verkefnið mun taka nokkur ár og ná til
allra þjóðerna þrátt fyrir að verkefninu sé stjórnað frá Bandaríkju-
num enda gerir Dr. Michael ráð fyrir að flestir þeir sem þátt taka í
verkefninu séu búsettir utan Bandaríkjanna. Í tengslum við verk-
efnið hafa verið gefnar út leiðbeiningar um hvernig menn eigi að
bera sig að í tengslum við sjóræningja. Á undanförnum árum hafa
þúsundir sjómanna lennt í höndum sjóræningja með mis hörmu-
legum afleiðingum. Ekki hefur Víkingurinn fregnir af því að íslensk-
ir sjómenn hafi lent í höndum sjóræningja og er það von okkar að
svo verði aldrei. Engu að síður verða okkar sjómenn sem sigla á öll-
um heimshöfum að búa sig vel undir að fá hugsanlega slíka vágesti
um borð til sín. Bendi ég þar á meðal á síðu SCI www.seamensch-
urch.org með leiðbeiningar.
Kreppan brátt að baki
Nú eru víða komin teikn á lofti í skipaheiminum að ástandið sé
farið að batna og að útgerðir séu að koma upp úr öldudölum fjár-
málakreppunnar. Stórar útgerðir sjá fram á að EBITDA staða fyrir-
tækjanna fari batnandi þótt reyndar að síðasta ár hafi ekki verið gott
hjá gámaskipaútgerðum. Reyndar var þá í fyrsta sinn í sögunni sem
gámaskipadeild A.P. Möller skilaði tapi en það var upp á litla 11,2
milljarða DKR. Nú keppast dönsku skipafélögin við að kynna veru-
lega uppsveiflu við sex mánaða uppgjör ársins. Árið 2010 hefur
farið vel af stað hjá mörgum og hefur t.a.m. gámaskipum, sem hafa
verið í legu, fækkað umtalsvert það sem af er árinum. Fyrir ári síðan
var um 1.035 milljón TEU‘s í legu á móti 633 þúsund í byrjun mars
s.l. Það mun hafa verið um 9,4% gámaskipaflotans sem þá var í legu
vegna verkefnaskorts. Hluta af þessari breytingu má meðal annars
rekja til fjölda skipa sem seld hafa verið til niðurrifs en einnig eru
flutningar að aukast á ný. Meiri eftirspurn er orðin eftir skipum yfir
4.000 TEU‘s sem hefur valdið hækkun á leigutöxtum. Þá sjá menn
einnig breytingu á eftirspurn eftir skipum í stærðarflokknum 1.000
til 1.700 TEU‘s sem rekja má til nýrra siglingaleiða.
Gömlu þyrlurnar kveðja
Nú hafa þyrlumál okkar Íslendinga hrunið mörg ár aftur í tímann
og nú er svo komið að sjómenn verða að fara að krefjast aðgerða
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason, skipstjóri:
Árið 2009 varð sögulegt fyrir gámaskipahluta A.P. Möller en þá varð tap á
rekstri þeirra, hið fyrsta í sögu fyrirtækisins.