Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur Haustmyrkrið tók að þéttast og hval- irnir færðu sig upp á skaftið. „Eftir að nótt tók að dimma nokkuð að ráði, hafa þeir eyðilagt síldarnet í svo stórum stíl, að tjónið nemur tugum þúsunda“, til- kynnti Tíminn undir lok september þetta ár. Karlarnir náðu ekki upp í nefið á sér fyrir reiði. Það hafði stefnt í metvertíð en nú máttu þeir sumir prísa sig sæla að hafa upp í veiðarfærakostnað. Í Sand- gerði og Grindavík var tjónið hvað mest en bátar frá Hafnarfirði og Keflavík höfðu einnig misst net, jafnvel svo tug- um skipti á einni nóttu. Gripið var til vopna. Dregnar voru fram fornfálegar selabyssur, rifflar og jafnvel sprengikúlubyssur. Svo var haldið uppi látlausri skothríð á hvalina sem að vísu flæmdust burtu í bili en voru svo komnir jafnharðan aftur. Þetta virtist vonlaus barátta. Fiskifélagið lætur sig málið varða Málið kom til kasta Fiskifélags Íslands og á Fiskiþingi 1953 var samþykkt að fara þess á leit við Alþingi „ ... að taka upp í fjárlög næsta árs fjárhæð, sem nægi til að halda úti tveimur bátum til eyð- ingar háhyrnings á reknetjasvæðinu við Suðvesturland.“2 Féð var veitt, 50.000 krónur alls – barnakennarar í Hafnarfirði höfðu þá sett á oddinn 4000 króna lág- markslaun á mánuði og brennivínsflask- an kostaði 85 krónur. Fiskifélaginu var falinn umráðaréttur yfir þessum pening- um og mátti því með nokkrum sanni segja að félagið væri um leið komið í all- stórt forystuhlutverk í orrustunni gegn háhyrningunum. Sem gekk reyndar ekkert sérstaklega vel. Fiskifélagið fékk fyrst einn bát og síðan annan til að vakta netin en allt kom fyrir ekki. Fjárframlag ríkisins hækkaði úr 50 þúsundum í 100 þúsund og síðan í 160 þúsund, svo mikl- ar áhyggjur höfðu oddvitar þjóðarinnar af þessum vágesti. Og kom engum á óvart. Jafnskjótt og haustaði tóku blöðin að keppast við að flytja fréttir af veiðar- færatjóni reknetabátanna. Hárhyrningar rifu og slitu nær alla 2 Skýrsla Fiskifélags Íslands 1952-1953, bls. 76. netatrossu vélbátsins Þorbjörns, Ægir missti 30 net og á einni nóttu töpuðu Akurnesingar netjum fyrir hálfa milljón. Sex til átta bátar misstu öll net sín. Svona voru fréttirnar haustið 1954. Karl- arnir voru alveg að gefast upp en þá var blásið til stórsóknar. Fiskifélagið hafði samband við varnarliðið og karlarnir söfnuðu liði. Svo létu 50 bátar úr höfn frá Sandgerði, Grindavík og Keflavík. Sjóorrustan mesta Hrefnubyssur, haglabyssur, rifflar, fram- hlaðningar, að ógleymdum hríðskota- byssum af Keflavíkurflugvelli, öll þessi skotvopn var að finna um boð í flotanum er lét úr höfn árla morguns 21. septem- ber 1954. Alls 79 varnarliðsmenn voru í herliðinu. Sumir þeirra höfðu fengið eldskírnina í seinni heimsstyrjöld, aðrir í Kóreu og nú átti að herða fáeina í eldin- um gegn háhyrningunum. Í hópnum voru snilldarskyttur og aðrar lakari. Á Hafnfirðingi GK 330 voru tveir ungir hermenn, rétt um tvítugt. Þeir komu víg- reifir um borð í fullum herskrúða, klyfj- aðir töskum, skotfærum og vopnum. Loksins var eitthvað að gerast á þessu skeri sem var að drepa þá úr leiðindum. Annar þeirra varð strax fárveikur. Hann reyndi þó að harka af sér, fór fram á dekk og lagðist þar með byssuna. En sjóveikin heltók hann og hrakti í koju. Hinn hafði hins vegar gaman af volkinu, stóð ölduna og skaut eins og brjálaður maður. Karlarnir dáðust að honum í laumi og sögðu seinna frá afrekum hans: „Hann var harður af sér og skaut meira að segja í sundur einn eða tvo vanta hjá okkur! Dekkið við brúna var alveg þakið tómum skothylkjum, þau runnu til í veltingnum. Og þeir voru með nóg af skotfærum.“3 Víðir úr Garði og Guðbjörg frá Sand- gerði lentu í stórri torfu háhyrninga og skothríðinni linnti ekki fyrr en tugir hvalanna lágu eða öllu heldur flutu í valnum. Sjórinn litaðist rauður í kjölsogi bátanna. Fleiri höfðu svipaða sögu að segja. Einn hafði komið að nokkrum háhyrn-ingum, sem voru að velta sér í netunum, og náð að stráfella þá. Um hádegisbil daginn eft- ir kom flotinn að landi aftur og hafði að sögn fellt nokkur hundruð óvini og stökkt öðrum á flótta út í hafs- auga. Karlarnir voru ennþá vígreifir. Nú 3 „Dekkið á bátnum ... “, Morgunblaðið 21. sep- tember 2003. Þrátt fyrir að Agnar væri ekki nema rétt rúmlega fertugur þegar hann tók að stjórna sprengju- kasti varnarliðsins átti hann að baki ákaflega litríkan feril á sjó og landi. Hann hafði verið á íslenskum og erlendum skipum og oftsinnis siglt með fisk til Bretlands á stríðsárunum. Agnar var stýrimaður á Arinbirni hersi RE 1 þegar þýsk flugvél gerði árás á skipið 1940. Dagur 26. október 1956: „Fyrra þriðjudag lagði eftirlitsfl ugvél ameríska sjóhersins, VP-7, upp í aðra her- ferðina gegn háhyrningum á þessu ári.“ Þetta var Lockheed Neptune-fl ugvél, kölluð „augu og eyru“ fl otans. Neptune átti að fi nna og eyða óvinum, jafnt ofan- sem neðansjávar. Í október 1951 komu slíkar vélar fyrst til Kefl avíkur, hlaðnar 350 punda djúpsprengjum.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.