Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur henni falið að stytta dauðastríð hins helsærða óvinar. Sprengjukastið hélt áfram og þegar vertíðinni lauk lágu að minnsta kosti 600 dýr í valnum, var mat Agnars, sem flaug ávalt með Bandaríkjamönnunum og réði för. Flogið var sem næst hvala- vöðunum, helst þannig að sprengjan kæmi í miðjan flokkinn. Oftsinnis kom það fyrir að háhyrningarnir virtust heilir eftir sprenginguna en voru engu að síður dauðadæmdir. Þrýstingurinn beinlínis sprengdi þá innan frá, innyflin voru í mauki og blóð rann út um vit hvalsins sem flaut í skamma stund en seig síðan niður til botns þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Eitt sinn hafði Agnar séð 30 hvali snúa upp kviðnum eftir sprengju- kast og sjóinn litast rauðan þar sem þeir vögguðu í yfirborðinu stutta stund en sukku svo. Bar sprengjukastið árangur? Þessari spurningu er erfitt að svara. Menn voru þó ekki í nokkrum vafa um að vertíðinni 1955 var beinlínis bjargað af varnarliðinu. Morgunblaðið skrifaði 8. janúar 1956: „Uppgripa síldarafli var í Faxaflóa í öndverðum mánuðinum og var síldin bæði stór og feit. Háhyrningar gerðu nú minni usla en áður og var það þakkað herförum þeim, sem farnar hafa verið gegn þeim.“ Undir þetta tók Sturlaugur Böðvars- son á Akranesi. Við hefðum einfaldlega neyðst til að hætta reknetaveiðunum á miðri vertíð ef varnarliðið hefði ekki lagt okkur lið með þessum hætti, var skoðun Sturlaugs.6 Agnar skipstjóri var ekki í nokkrum vafa heldur. Hann gekk reyndar svo langt að halda því fram að með sprengjukast- inu mætti svo gott sem útrýma háhyrn- ingum af Íslandsmiðum. Það var líka fyllsta og fúlasta sannfæring bátakarlana að sprengjukastið væri eina vopnið sem dygði og þeir voru fljótir að láta vita ef þeir urðu varir við háhyrningsvöður. Það styrkti óneitanlega þessa trú að Agnar og fleiri þóttust sjá þess mörg 6 „Fyrsta sprengjuárásin ... “, Vísir 14. ágúst 1956. merki að háhyrningurinn, sem í fyrstu hafði engu skeytt um flugvélahljóð, var nú orðinn svo var við sig að hann bók- staflega ærðist ef flugvél nálgaðist. Karlarnir sögðu sömu sögu af skothvell- um sem höfðu áður ekki virst trufla há- hyrninginn hið minnsta. Nú synti hann á braut við fyrsta skot. Þannig var það almenn trú að sprengjukastið héldi illhvelinu í skefjum. Alþýðublaðið skrifaði hinn 21. október 1956: „Fyrr í vikunni var afli harla góð- ur. Lítið hefur borið á háhyrningi undan- farna daga og virðast loftárásirnar hafa mikla þýðingu. Um 70 háhyrningar voru drepnir í vikunni ... “. Voru einhverjir á móti? Fáir skutu skildi fyrir háhyrningana. Þetta eru illhveli, sögðu menn og hug- suðu þeim þegjandi þörfina. Sumum blæddi þó í augum sóunin. Haraldur Böðvarsson vildi nýta hræin. „Hví eru háhyrningar ekki skutlaðir og bræddir?, spurði blaðið Frjáls þjóð og „Suðurnesja- maður“ kallaði aðfarirnar villimennsku; ekki þó drápin heldur að dýrin skyldu ekki nýtt. „Þetta gerist í landi, sem býr við gjaldeyrisskort. Það minnir á þá tíma, er fólk lagði sér ekki hrossakjöt til munns, enda þótt hungurdauði sækti þjóðina heim á fárra ára fresti“, skrifaði „Suðurnesjamaðurinn“ og gat ekki leynt hneykslan sinni.7 Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var vorið 1956, tók í sama streng og sendi frá sér eftirfarandi sam- þykkt: „Ennfremur vill fundurinn benda á, hvort ekki væri ráðlegt að hefja skipu- lagðar veiðar háhyrnings og nytja hann sem útflutningsvöru. Þessi vágestur hefur með öðru orsak- að síminnkandi þátttöku í reknetjaveið- um við Suðvesturland og gæti haft þær afleiðingar að þær legðust niður með öllu, og það orsakað beituvandræði á þorskvertíð.“8 Að öðru leyti þóttu drápin ekki að- 7 „Hví eru ... “ og „Villimennska, Frjáls þjóð 20. ágúst 1955 og 1. september 1956. 8 „Jafnvægi verður að vera ... “, Vísir 4. maí 1956. finnsluverð fyrr en „Jón sjómaður“ steig fram á ritvöllinn. Hann vogaði sér ekki að skrifa undir réttu nafni enda fann hann háhyrningsdrápunum allt til for- áttu.9 Þetta er „viðurstyggileg dráps- aðferð“ og hrein „óhæfa“,, skrifaði Jón og dró í efa gagnsemi sprengjukastsins, nema sem skemmtun fyrir þá sem tóku þátt í því. „Það veit hver sjómaður að það sem háhyrningnum var kennt um var raunar alls ekki alltaf af hans völdum. Reyni hver sem er að draga bunkuð net í hauga sjó, já jafnvel ný net og sjáið hvernig þau fara. Það þarf ekki háhyrning til að eyði- leggja þau. Því stundum koma teinarnir inn yfir rulluna og ekkert annað. En aðalatriðið er það að margt bendir til þess að háhyrningar og hvalir hafi áhrif á göngu síldarinnar, en engin vissa er um það að hve miklu leyti, en reynsla síld- veiða við Ísland í nær 100 ár bendir til og rökstyður þá skoðun að síld og hvalur hverfa jafnt. Að vísu lifir hvalurinn á síldinni og myndi því hverfa af miðun- um ef síld væri þar ekki, en það virðist óeðlilegt að síldin hverfi á brott af því að hvalurinn er eyddur, nema því aðeins að hvalur ætti nokkurn þátt í að hún leitaði á grunnmið. Og þetta er einmitt skoðun mín og margra sem ég hef talað við. Drepið ekki háhyrninginn því það er ekki víst nema hann geri gagn að þessu leyti og eitt er víst, að honum er kennt meira tjón en hann vinnur.“10 Niðurlag Þrátt fyrir ótvírætt forustuhlutverk FÍ í stríðinu við háhyrningana komu orrust- urnar, tilhögun þeirra eða réttmæti, aldrei til umræðu á stjórnarfundum fé- lagsins. Ekki er heldur alveg víst hvenær stríðinu lauk. Seinasta fjárveiting Al- þingis til þess var 1960 en það ár bók- færði Fiskifélagið hins vegar engan stríðskostnað vegna hvalanna sem var í fyrsta skiptið síðan 1954 að stríðið hófst fyrir alvöru. 9 „Jón“ minnist reyndar á að „dýraverndunarfé- lagið“ hafi hreyft mótmælum sem ég hef ekki fundið. 10 „Bergmál“, Vísir 3. desember 1958.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.