Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 46
haust. Systurskipið var komið í slipp þar sem verið var að framkvæma viðgerð á skrúfubúnaði þess. Það fyrsta sem vakti athygli mína var að enga Rússalykt var að finna um borð sem virkilega hefur einkennt rússnesk skip. Ekki fór á milli mála að vel hafði verið vandað við smíði skipsins og þýskt yfirbragð á öllu um borð. Skipið bar það með sér að hafa nánast ekki verið í neinni notkun því allt var eins og nýtt. Íbúðir skipverja voru ýmist eins eða tveggja manna klefar en aðeins yfir- mannaíbúðir og ásamt einum klefa, ætlaður konum í áhöfn, voru búin salerni og sturtum. Gufubað var einnig til staðar. Hvar sem litið var mátti sjá að öllu var hagalega fyrir komið um borð og mjög fullkominn búnaður hvar sem litið var. Mjög fullkomið hita og loftræsti- kerfi er í skipinu enda gert ráð fyrir að það væri á svæðum þar sem hitastigið gæti farið niður fyrir -25°C og jafnmikið ef ekki meiri í hina áttina. Lítið notuð – annað selt Tvö skipanna, Kaspryba 2 og 3, fóru til veiða í Kasbíahafi um skamman tíma en númer eitt fór aldrei til veiða. Kaspryba 2 fór þá til Marokkó en þær veiðar gengu ekki upp og var því lagt í Las Palmas þar sem það hefur legið síðan. Til að átta sig á hversu lítið skipin voru notuð þá var aðalvél í Kaspryba 1 aðeins verið keyrð 1800 tíma en í hinum skip- unum er keyrslan 5000 tímar. Skipin eru búin tæplega 1000 kW aðalvélum og var ganghraðinn 12 hnútar í reynslu- siglingu. Öll skipin þrjú hafa verið til sölu hjá Álasunds skipasölunni en brátt líður að því að annað skipanna, Kaspryba 3, haldi héðan á brott en búið er að selja það til norskra aðila. Stendur til að skipið verði notað sem móðurskip minni fiskiskipa á Arabíuflóa. Er búist við að skipið haldi héðan í kringum sjómannadaginn sem verður fyrstu helgina í júní. Hin tvö skipin eru í söluferli þannig að búast má við að síðara skipið sem liggur í Reykja- vík muni fylgja brátt í kjölfar systurskip síns og kveðja höfnina eftir tveggja ára legu. Ps: Ég vil bæta við að greinina skrifaði ég snemma sumars, nokkru fyrir sjó- mannadaginn, en nú er september og enn liggja Kaspryba 1 og 3 við Skarfa- bakkann í Sundahöfn. Kaspryba 3 dregin inn í Reykjavíkurhöfn í lok apríl s.l. vegna slipptöku. 46 – Sjómannablaðið Víkingur Guðríður B. Jónsdóttir og Þórður Vilhjálmsson Getraunin – lausn Nú vildi svo til að enginn hitti á rétt svör við öllum spurningunum. Sem er í fyrsta skiptið síðan getraunin hóf göngu sína. Svona getur lukkan verið hverful og er svo sem ekkert um það að segja – nema – kærar þakkir fyrir að taka þátt. Koma svo rétt svör um leið og við óskum ykkur öllum velfarnaðar á sjó og landi. Getraunin samanstóð af átta spurningum. Upphafsstafir svara við fyrsta lið spurninganna mynduðu nafn á skipi sem Noregskonungur gaf landnámsmanni sem flutti mikinn húsavið til Íslands. Skipið hét Stígandi. 1. Steingrímur Hermannsson - Gunnar Thoroddsen 2. Tumi Sighvatsson - Sighvatur Sturluson 3. Ísak Jónsson - Þönglabakki 4. Grímsey (á Steingrímsfirði) - Noregi 5. Andey - Páll Ólafsson 6. Nikólína Weiwadt - Teigarhorn 7. Davíð Stefánsson - Sigling inn Eyjafjörð 8. Ingjaldur - Gísli Súrsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.