Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur
Þá ætla ég að fara með ykkur aðeins
aftur til síðustu aldar eða réttara sagt að
fá ykkur til að skoða myndir af skipa-
gerðum sem þá klufu heimsöldurnar.
Miklar breytingar hafa orðið á skipum í
gegnum tíðina og finnst eflaust mörgum
sem fegurð þeirra skipa sé margfalt meiri
en skipagerða dagsins í dag. Ég er viss
um að þeir eru fáir útgerðarmennirnir
sem vildu vera með þessi gömlu skip í
rekstri í dag þar sem þau voru bæði
hæggeng, mannfrek og brenndu dýru
eldsneyti. Slóðin www.photoship.co.uk
leiðir okkur inn í heim liðinna ára í
skipahönnun.
Nýlega hefur orðið mikil breyting á
einni umferðamestu ferjuleið hér við
land þegar Vestmannaeyjaferjan Herjólf-
ur hætti siglingum til Þorlákshafnar en
fór þess í stað að sigla til nýrrar hafnar í
Landeyjafjöru. Ferjusiglingar hafa aldrei
verið í miklu mæli hér við land en öðru
máli gegnir um frændur okkar Dani.
Mikil gróska hefur alla tíð verið í ferju-
siglingum hjá þeim og á síðunni Dansk
Færgehistorisk Selskap á slóðinni www.
dfhs.dk er að finna mikinn fróðleik um
þessa skipagerð þar í landi. Þeir sem hafa
áhuga á dönskum ferjum geta gengið til
liðs við þennan félagsskap.
Síðasta síðan að þessu sinni er reynd-
ar könnun sem ég hvet alla fiskimenn
sem þetta lesa til að taka þátt í. Um er að
ræða könnun sem rannsóknarstofnun í
Noregi SINTEF hefur sett á netið en
verkefnið er unnið í samstarfi við Inter-
national Maritime Health Association og
er tilgangur hennar að afla upplýsinga
um klæðnað sjómanna sem og öryggis-
búnað til að nýta í hönnun og þróun á
framtíðarbúnaði m.a. til að auðvelda
björgun manna úr sjó. Slóðin á könnun-
ina er www.sintef.no/safeatsea-survey og
er hægt að fylla hana út á átta tungu-
málum. Því miður er íslenska ekki eitt
þeirra en það ætti að vera ykkur vanda-
laust að fylla könnunina út.
Lokaorðin mín að þessu sinni verður
hvatning til ykkar sem lesið þetta um að
skoða slóðirnar og jafnframt að skella
ykkur í að taka þátt í könnuninni en ég
er viss um að niðurstöður hennar eiga
eftir að skila miklum árangri. Gleymið
svo ekki að senda áhugaverðar slóðir á
netfangið iceship@heimsnet.is.
Merkileg hvalabók
Ég má til með að vekja athygli ykkar á flottri bók sem mér
barst í hendur á dögunum. Sú heitir einfaldlega, Hvalir, og
er eftir þá Jón Baldur Hlíðberg og Sigurð Ægisson sem báðir
eru – við skulum ekkert draga af því – snillingar til verka.
Jón Baldur gerir myndirnar sem eru hreint út sagt frábærar
og Sigurður sér um efnismikinn og fróðlegan texta. Á tæp-
um 160 síðum fræðumst við um alla þá hvali sem við get-
um vænst að finna í norðanverðu Atlantshafi. Okkur er
kennt að þekkja dýrin í náttúrunni, fræðumst um mataræði
þeirra og hvernig líf þeirra gengur fyrir sig. Auk þess fljóta
með ýmsir fróðleiksmolar um þessi merku dýr jarðar.
Vissuð þið til dæmis að í Færeyjum létu prestar kirkju-
dyr standa opnar til marks um að sést hefði til grindhvala-
vöðu og jafnframt til að þakka guði sendinguna.
Eða að skíði sléttbaka voru eftirsótt í lífstykki handa
kvenfólki er vildi tolla í tískunni.
Sem sagt, Hvalir er rétta bókin handa öllum þeim er vilja
fræðast um þessi stærstu spendýr jarðar og sem hafa dug til
að leita þeirra í náttúrunni. Þá er gott að hafa bókina við
höndina til að hjálpa sér að þekkja dýrið sem fyrir augu
ber.
Til að gefa ykkur nasaþefinn af snilld Jóns Baldurs eru
hér tvær mynda hans úr bókinni; önnur af leiftri, hin
hnúfubaki.