Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 50
50 – Sjómannablaðið Víkingur
Í lok júní sl. lét Guðmundur Steingrímsson að störfum fyrir
FS, Félag skipstjórnarmanna.
Guðmundur hóf störf hjá Skipstjórafélagi Norðlendinga 1.
nóvember 1979 og hefur því starfað í þágu skipstjórnarmanna í
um 30 ára skeið. Þar af í aldarfjórðung sem framhvæmdastjóri
Skipstjóra og stýrimannafélags Norðlendinga, eins og félagið
hét síðustu árin. Óhætt er að segja að á þessu árabili hafi
félagið stækkað og eflst með afgerandi hætti undir handleiðslu
Guðmundar og hafi í lok þessa tímabils verið eitt stöndugasta
og öflugasta aðildarfélagið innan vébanda FFSÍ. Árið 2004 urðu
þáttarskil í starfseminni þegar SSN stóð að stofnun FS ásamt
þorra félaga skipstjórnarmanna á Íslandi. Skrifstofan á Akureyri
var starfrækt áfram og hefur starf Guðmundar m.a. falist í að
hafa umsjón með félagaskrá og innheimtu á skilagreinum frá
útgerðum vítt og breitt um landið. Nú þegar Guðmundur lætur
af störfum fyrir aldurssakir eru mér efst í huga þakkir til þeirra
Guðmundar og Maríu konu hans fyrir 30 ára samvinnu og
vináttu.
Nú í ágúst lok kvaddi okkur hér á kontórnum Olga okkar
Herbertsdóttir sem starfað hefur hjá FFSÍ allt frá árinu 1989 eða
rúm 20 ár. Olga hefur um langa hríð verið fastur punktur í til-
verunni hjá öllum þeim sem starfað hafa á vettvangi FFSÍ og
því næsta víst að viðbrigðin verða mikil fyrir alla þá sem til
hennar hafa leitað í gegn um tíðina. Hún hefur hin síðari ár
verið í nokkurskonar mömmuhlutverki hér á skrifstofunni og
hugsað um okkur karlpungana eins og börnin sín. Þar af
leiðandi er ekki ósennilegt að einhverjir þurfi á áfallahjálp að
halda við brotthvarf hennar. Hvað sem því líður þá vil ég af
heilum hug þakka fyrir samstarf og samveru árin öll sem að
baki eru.
F.h. FFSÍ og FS óska ég þeim Guðmundi og Mæju, Olgu og
Ásgeiri velfarnaðar, gæfu og gengis í öllu því sem þau taka sér
fyrir hendur í framtíðinni.
Árni Bjarnason
Olga og Guðmundur slá á létta strengi.
Þakkir