Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 10
Það verður að stöðva
öll viðskipti við Rússa.
Úkraínu vegna.
Gitanas Nauséda
Ef við hikum frekar
mun það kosta fleiri
úkraínsk mannslíf,
fleiri innviðir og
mannvirki munu
eyðileggjast
Gitanas Nauséda
Áhrifaríkasta leiðin til að
stöðva stríðið í Úkraínu er að
hætta öllum kaupum á gasi og
olíu frá Rússlandi. Þetta segir
forseti Litáen í viðtali við
Fréttablaðið. Með áframhald-
andi viðskiptum fjármagni
þjóðir heimsins stríð Pútíns.
bth@frettabladid.is
ALÞJÓÐAMÁL Gitanas Nauséda,
forseti Litáen, sagðist ekkert botna
í Íslendingum að hafa keypt Volgur
og Moskvich-bíla af Rússum í stað-
inn fyrir fisk áratugum saman.
„Það er ekki eins og þetta hafi
verið bestu bílar í heimi,“ sagði Git-
anas léttur á brún og uppskar hlátur
tiginna gesta og sérstaklega þeirra
sem muna tímana tvenna í hátíðar-
sal Háskóla Íslands í gær.
Þetta var eina athugasemdin sem
Gitanas gerði við ræðu Guðna Th.
Jóhannessonar, forseta Íslands, sem
þá hafði f lutt erindi og getið við-
skiptanna í sögulegu yfirliti. Tveir
menn komu saman í einum, annars
vegar sagnfræðingurinn Guðni og
svo forsetinn Guðni. Mjög góður
rómur var gerður að fyrirlestri hans
en í umræðum að honum loknum
fór nokkuð fyrir stöðu smáríkja í
skugga stórvelda.
Allir forsetar Eystrasaltsríkjanna
eru hér staddir vegna 30 ára lýðræð-
isafmælis ríkjanna og þeirrar stað-
reyndar að Íslendingar, undir stjórn
Jóns Baldvins Hannibalssonar utan-
ríkisráðherra, voru fyrstir fullvalda
þjóða til að styðja sjálfstæði Eist-
lands, Lettlands og Litáen.
Kom fram að heimsókn Jóns
Baldvins Hannibalssonar í janúar
1991 til Vilníus þegar ögurstund
var uppi um hvort ríkin næðu að
brjótast undan oki Sovétríkjanna
hefði haft mikla þýðingu. Með
sama hætti hefði Selenskíj, forseti
Úkraínu, margsagt eftir að Rússar
réðust inn í landið fyrir hálfu ári
að heimsóknir vinveittra leiðtoga
til Úkraínu frá innrás efli hugrekki
Segir að viðskiptum við Pútín verði að linna
Gitanas Nauséda, forseti Litáen, telur að lönd sem kaupa orku af Rússum séu
með beinum hætti að fjármagna innrás Rússa í Úkraínu.
Utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna og Íslands undirrita sameiginlega yfirlýsingu í tilefni af þrjátíu ára afmæli stjórnmálasambands ríkjanna við Ísland. Fyrir aftan þau standa forsetar ríkjanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gitanas Nausėda, forseti Litáen, ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands. Með þeim sjást Alar Karis, forseti
Lettlands, Sirje Karis, forsetafrú Lettlands, litáíska forsetafrúin Diana Nausėdienė og Egils Levits, forseti Eistlands.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
landsmanna, því þjóð sem fái opin-
bera heimsókn viti að hún hafi ekki
gleymst.
Gitanas, forseti Litáen, sagði í
samtali við Fréttablaðið áður en
hann steig upp í rútu á leið til Þing-
valla að Madrid-fundurinn hefði
verið gagnlegur hvað varðar ofur-
viðkvæma stöðu í heimshlutanum
næst veldi Rússa. „En athafnir þurfa
að fylgja orðum,“ sagði Gitanas.
Alþjóðastuðningur við Úkraínu
er ekki nægur að sögn forsetans.
Mikilvægt sé að útvega Úkraínu-
mönnum öflugri vopn.
„Við Litáar reynum að gera okkar
besta til dæmis með því að koma
hernaðargögnum til Úkraínu en
þeir þurfa mun öflugri og víðtækari
stuðning. Ef við hikum frekar mun
það kosta fleiri úkraínsk mannslíf,
f leiri innviðir og mannvirki munu
eyðileggjast,“ segir Gitanas.
Litáen er ekki í hópi ríkja á barmi
orkukreppu þrátt fyrir að Litáar
hafi ekki keypt neitt gas eða olíu
af Rússum. Gitanas segir að Litáar
standi í lappirnar með því að nýta
aðrar leiðir til orkuöflunar. Meðal
annars með innflutningi á rafmagni
frá Svíþjóð og Póllandi.
Ítrekað kom fram að Eystra-
saltslöndin telja öryggi þeirra hafa
aukist með inngöngu Finna og Svía
í NATO. Allir forsetar ríkjanna
þriggja eru aftur á móti gagnrýnir
á innkaup annarra þjóða á orku frá
Rússlandi.
„Við erum með innviði sem
gerðu okkur kleift að hætta öllum
viðskiptum við Rússa í apríl síðast-
liðnum. Annars tækjum við þátt í að
fjármagna innrás Rússa í Úkraínu.
Við hvetjum allar þjóðir til að gera
það sama. Það verður að stöðva
öll viðskipti við Rússa. Úkraínu
vegna,“ segir Gitanas Nauséda, for-
seti Litáen. n
10 Fréttir 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ