Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 19
Rauða Stjarnan tapaði
einvíginu við Maccabi
Haifa samtals 5–4 sem
varð til þess að liðið
fór ekki í Meistaradeild
Evrópu. Það kostaði
þjálfarann Dejan
Stancovic starfið.
Kaupverðið á Isak er
rúmir 10 milljarðar
króna.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FÓTBOLTI Newcastle United, ríkasta
knattspyrnulið heims, sló í gær
klúbbmet þegar keyptur var fram-
herjinn Alexander Isak. Hinn 22 ára
Svíi vakti athygli á Evrópumótinu í
fyrra en hann hefur leikið undan-
farin þrjú tímabil með spænska
liðinu Real Sociedad.
Eftir að hið sádí-arabíska félag PIF
keypti hið fornfræga knattspyrnu-
lið frá Norður-Englandi í október
síðastliðnum hafa margir beðið eftir
því að liðið myndi byrja að notfæra
sér hið fjárhagslega bolmagn eig-
endanna. En þeir eru margfalt fjár-
sterkari en allir aðrir eigendur liða
í ensku úrvalsdeildinni samanlagt.
Það hefur hins vegar ekki gerst fyrr
en nú.
Kaupverðið á Isak er 63 millj-
ónir punda, eða rúmir 10 milljarðar
króna. Það er næstum tvöföld upp-
hæðin sem Newcastle greiddi fyrir
Joe Linton árið 2019. n
Sádarnir byrjaðir
að eyða stórfé
Alexander Isak er orðinn dýrasti
leikmaður í sögu Newcastle.
Milos Milojevic, sem áður
þjálfaði Víking og Breiðablik
hér á Íslandi, var í gær til-
kynntur sem þjálfari Rauðu
stjörnunnar. Hann tekur
við af Dejan Stankovic sem
mistókst að koma liðinu í
Meistaradeild Evrópu.
benediktboas@frettabladid.is
FÓTBOLTI Milos Milojevic hefur
verið ráðinn þjálfari Rauðu stjörn-
unnar í heimalandi sínu Serbíu.
Þessi fyrrum þjálfari Víkings og
Breiðabliks var rekinn frá Malmö í
Svíþjóð á dögunum. Milos var hins
vegar ekki lengi án starfs og hefur nú
landað stærsta starfinu í Serbíu.
Rauða stjarnan er eitt stærsta
íþróttalið Balkanskagans en í könn-
un frá árinu 2008 sögðust 48 prósent
Serba halda með félaginu.
Félagið hefur unnið deildina 33
sinnum og 26 sinnum orðið bikar-
meistari. Þá hefur liðið komist í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar og í
16 liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Milos var áður aðstoðarþjálfari
Rauðu stjörnunnar en hann fór svo
og starfaði í Svíþjóð en snýr nú aftur
heim.
Dejan Stanković var í starfinu en
sagði starfi sínu lausu eftir að hafa
mistekist að koma liðinu í Meistara-
deildina og það opnaði dyrnar fyrir
Milos sem skrifaði undir tveggja ára
samning.
Milos ráðinn til Rauðu stjörnunnar
Stutt er síðan Miloš Milojevic var þjálfari Víkings. Hann er nú orðinn þjálfari
Rauðu stjörnunnar sem er eitt stærsta félag í Austur-Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rauða stjarnan tapaði einvíginu
við Maccabi Haifa 5-4.
Þegar Milos var aðstoðarþjálfari
vann Rauða stjarnan tvo deildar-
titla og einn bikartitil. Á heimasíðu
félagsins er hann sagður barn Rauðu
stjörnunnar. Hann hafi alist upp á
vellinum og farið upp í gegnum aka-
demíuna. Hann verður kynntur í
dag og mun stýra liðinu gegn Javor.
Rauða stjarnan er á toppi ser-
bnesku deildarinnar eftir fimm
umferðir en liðið hefur ekki tapað
leik síðustu tíu deildarleiki. Javor
situr í sjötta sæti. n
Boðið verður upp á hressingu á fundinum.
Mótum
framtíðina
saman
Skannaðu inn
QR kóðann til
að skrá þig.
Forsætisráðherra býður til opins samráðsfundar í Ríma í Hörpu
miðvikudaginn 31. ágúst kl. 16:00-17:30 vegna vinnu við Grænbók
um mannréttindi. Á fundinum verður fjallað um stöðu mannréttinda
á Íslandi, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara.
Öll eru velkomin. Skráning fer fram á www.stjornarradid.is/mannrettindafundur.
Hægt er að fara inn á síðuna með því að skanna QR-kóðann í vinstra horni
auglýsingarinnar.
Opinn samráðsfundur um stöðu mannréttinda
í Reykjavík
Dagskrá
16:00-16:30
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Opnunarávarp
Dr. Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands
Hvað eru mannréttindi?
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
Örerindi um mannréttindi
16:30-17:30
Umræður
Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni.
Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.
Fundarstjóri er Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
Gott aðgengi fyrir hjólastóla.
Í könnun frá 2008
sögðu 48 prósent Serba
halda með Rauðu
stjörnunni.
LAUGARDAGUR 27. ágúst 2022 Íþróttir 19FRÉTTABLAÐIÐ