Fréttablaðið - 27.08.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 27.08.2022, Síða 20
Í dag og næsta laugardag, 3. september, verður boðið upp á listasmiðju í Gerðar- safni í Kópavogi sem ber heitið Stenslagerð í Múmín- dal. Anja Ísabella Lövenholdt leiðbeinandi lofar umhverfis- vænum efniviði og verk- efnum fyrir allan aldur. bjork@frettabladid.is Þetta er fjölskyldusmiðja svo ég ætla að vera með misjöf n er f iðleikastig enda býst ég alveg eins við að þarna detti inn börn á öllum aldri,“ segir Anja Ísabella. Smiðjan er hluti af Vatnsdrop- anum, þriggja ára alþjóðlegu sam- starfsverkefni Menningarhúsa Kópavogs við Múmínálfa- safnið í Tampere, H.C. And- ersen safnið í Óðinsvéum og Ilon’s Wonderland safnsins í Haapsalu í Eistlandi. Eitt meginmarkmið verk- efnisins er að tengja saman boðskap og gildi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálf bæra þróun við sígild skáldverk höfundanna Tove Ja n s s on , A st r id Lindgren og H.C. Andersen. „Verkefnið á sér ót r ú l e g a m a r g a anga. Ég var ráðin inn í fyrra til að halda utan um listasmiðjur og hef síðan þá verið að taka einstakar smiðjur og þróa fræðsluefni sem byggir á þessu konsepti, finna nýja anga og tengja saman Menningarhúsin. Eitt þeirra er Náttúrufræðistofa Kópavogs og ég vildi nota náttúrulegan efnivið í þessa smiðju, það talar svo fal- lega við ævintýri Tove Jansson um Múmínálfana.“ Endurnýta efni í föndrið Anja Ísabella segist jafnframt vilja vera trú heimsmarkmiðunum en eitt þeirra er ábyrg neysla og fram- leiðsla. „Því finnst mér mikilvægt að kaupa helst ekki nýtt efni í smiðj- urnar. Við notum tímarit sem falla til á bókasafninu og við hvetjum til skapandi hugsunar auk meðvitund- ar um umhverfið. Ég er svo búin að vera í nokkrar vikur að pressa blóm sem hægt er að nota til skrauts. Eins verð ég með tvær útgáfur stensla svo hægt sé að klippa og teikna sjálf en líka tilbúnar fígurur fyrir yngstu börnin,“ segir Anja Ísabella. Aðspurð hvort allir íbúar Múmíndals komi við sögu segist hún helst hafa einbeitt sér að Múmínfjölskyldunni sjálfri og svo fái einhverjir f leiri að f ljóta með, líklega Mía og Snabbi. Sjálf segist Anja Ísabella mjög tengd öllum þremur höfundum. „Ég vann um tíma í Nor- ræna húsinu og er sjálf hálf- dönsk svo ég ólst upp við þessar sögur. Ég á allar Múm- ínálfabækurnar, f lestar Ast- rid Lindgren sögurnar og H.C Andersen sögurnar á ég meira að segja á dönsku,“ segir hún og hlær. Fylltist gleði þegar Snúður kom Aðspurð hver sé hennar eftirlætis íbúi Múmíndals liggur ekki á svari hjá Önju Ísabellu. „Fyrsta ástin mín var Snúður!“ segir hún ákveðin. „Það er gegnum- gangandi að það er smá Snúður í þeim aðilum sem ég hef verið skotin í.“ Aðspurð hvaða eiginleikar það séu, svarar hún: „Ævintýragirni, blíðleiki og þetta dreymandi heim- spekiyfirbragð. Snúður er auðvitað ferðalangur sem býr í tjaldi og er sjálfum sér nógur en alltaf þegar hann heimsótti Múmíndal fylltist maður gleði enda kom Snúður alltaf með vorinu.“ Anja Ísabella segir smiðjuna hafa vakið það mikla athygli að ákveðið hafi verið að endurtaka hana á sama tíma að viku liðinni í tilefni af Karnivali í Kópavogi. „Þá verðum við í fjölnotasal bóka- safnsins þar sem er pláss fyrir enn f leiri. Múmínsögurnar eiga mjög stóran fylgjendahóp og foreldrar eru alltaf að leita að einhverju skemmtilegu að gera með börnum sínum. Múmínævintýrin hafa snert við mörgum hjörtum.“ Opið verður í einn og hálfan tíma í dag og er fólki frjálst að koma og fara. Anja Ísabella segir líklegasta aldurinn til að taka þátt vera börn frá fjögurra ára og upp í 11-12 ára. „En ég hef alltaf haft þá stefnu að svo lengi sem er hjartarúm er húsrúm og ég reyni að sníða verkefnin að þeim sem koma.“ Smiðjurnar verða báðar frá klukkan 13.00-14.30 og aðgangur er ókeypis. n Ástfangin af Snúði Anja Ísabella ólst upp við lestur sagnanna um Múmínálfana og segir að Snúður með sitt heimspekilega yfirbragð, hafi verið fyrsta ástin. Í dag býður hún upp á stenslagerð í Múmínálfaþema fyrir alla fjölskylduna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Þessari lánlausu ríkisstjórn stýrir formaður hverfandi smáflokks. Ólafur Arnarson n Í vikulokin Móttöku- herbergið kallar hann grafhýsi, enda er það tómt og laust við alla hlýju. BJORK@FRETTABLADID.IS Hjólagarði í Skálafelli Á sumrin er rekinn hjólagarður í Skálafelli og fer hver að verða síð- astur að prófa áður en svæðið verður aftur skíðasvæði. Hjólreiðafólk getur þar fundið brautir og stökk- palla en f lestir geta fundið leiðir við sitt hæfi á svæðinu. Opið er á morgun en nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á Facebook og Instagram undir Skálafell Bike Park. Heimsókn að Skógafossi Samkvæmt verðurspásíðu Einars Sveinbjörssonar á blika.is er fínasta göngu- og útileguveður á Skógum um helgina. Engin úrkoma og hiti í tveggja stafa tölu, hvað getum við beðið um meira? Hvort sem þú ert manneskja í góðan bíltúr og jafnvel smá göngu, eða eina síðustu úti- legu sumarsins þá er góða veðrið á þessum slóðum. n Við mælum með Viðtal við Hrafn Jökulsson sem birtist í þessu tölublaði er fyrir marga hluti merkilegt. Hrafn fékk í lok júní dauðadóminn frá lækni sínum, krabbamein í hálsi á loka- stigi. Óumflýjanlegur dauðinn er skyndi- lega nálægur en Hrafn dregur þó ekkert úr og stefnir ríkinu vegna frelsissviptingar og í kjölfarið langvinnrar nauðungarvistunar á geðdeild. Mann setur hljóðan við lestur lýsinga Hrafns á frelsissviptingunni og í framhaldi vist hans, á því sem hann lýsir sem versta stað sem hann hafi komið á, deild 32C – bráðageðdeild Landspítala. Móttökuherbergið kallar hann grafhýsi, enda er það tómt og laust við alla hlýju. „Alveg eins og grafhýsi. Grafhýsið sem er notað utan um þá sem ríkisvaldið sviptir því eina sem er heilagt, frelsið. Frelsið,“ segir Hrafn í viðtalinu. Geðhjálp hefur vakið athygli á þvingunarúrræðum sem þeim sem Hrafn ræðir og hefur lagt til að Ísland verði gert að þvingunarlausu landi, sem tilraun til þriggja ára. Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er hvers kyns nauðung og þvingun óheimil. Ísland hefur enn ekki lögfest þennan samning og hefur ítrekað verið bent á að þvingun í meðferð einstaklinga með geðrænar áskoranir standist ekki lög. Nú lætur Hrafn reyna á það – og vonandi endist honum ævin til að fagna sigri í því máli. n Þrjátíu og tvö sjé Ýmislegt forvitnilegt má lesa úr nýrri skoðanakönnun Maskínu á fylgi stjórnmálaflokka. Sjálfstæðisf lokkurinn er áfram stærsti flokkur landsins, með ríflega 20 prósent og Framsóknarflokkur- inn er næstum jafnstór. Þriðji stjórnarflokkurinn, Vinstri græn, mælist með 7,5 prósent. Kjós- endur kalla ekki sérstaklega eftir ríkisstjórnarþátttöku þess f lokks, hvað þá stjórnarforystu. Sósíalista- flokkurinn mælist nánast jafnstór og VG en á engan þingmann nú. Samtals mælist fylgi ríkisstjórn- arflokkanna 48 prósent. Stjórnar- f lokkarnir hafa tapað 6,3 pró- sentustigum frá því í kosningunum síðastliðið haust – Sjálfstæðisflokk- urinn tapar 3,5 prósentustigum og VG 5,1 en Framsókn hefur bætt við sig 2,3 prósentustigum. Miðflokkurinn og Flokkur fólks- ins eru báðir undir fimm prósenta markinu og næðu því ekki inn á þing samkvæmt þessari mælingu. Kjósendur hafna jaðarflokkunum í ríkisstjórninni. Framsókn bætir við sig. Það gera einnig Píratar, Sam- fylking og Viðreisn. Saman njóta flokkarnir fjórir, sem starfa saman í meirihluta í Reykjavík, nú stuðnings 55,3 prósenta kjósenda. Kjósendur kalla eftir frjálslyndri miðjustjórn í anda meirihlutans í Reykjavík. Fylgi VG hríðfellur í þessu stjórn- arsamstarfi og með sama áfram- haldi gæti flokkurinn dottið af þingi í næstu þingkosningum. Traust kjósenda á Katrínu Jakobsdóttur og flokki hennar er horfið. Ríkisstjórn- Kjósendur vantreysta ríkisstjórninni og vilja breytingar in hefur misst tök á stjórn efnahags- mála og fram undan eru vandasamir kjarasamningar bæði hjá ríkinu og almennum vinnumarkaði. Þessari lánlausu ríkisstjórn stýrir formaður hverfandi smáflokks. Í f lestum lýðræðisríkjum þætti fráleitt að formaður f lokks sem nýtur stuðnings 7,5 prósenta kjós- enda færi með forystu í ríkisstjórn. Hverjir eru hagsmunirnir sem Sjálf- stæðisf lokkurinn og Framsókn meta svo mikilvæga að hægt sé að púkka upp á slíkt til að verja þá? n 20 Helgin 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.