Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2022, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 27.08.2022, Qupperneq 22
Himinninn var stjörn- um skrýddur og tungl- ið óð í skýjum. Mér fannst einhverjir nornakraftar vera í loftinu en ég gat ekki ímyndað mér að neitt slæmt gæti hent á svo fögru kvöldi. Hrafn Jökulsson stendur örvum glaður í stærstu orr- ustum lífs síns. Upp á líf og dauða við æxli í hálsi sem hann kallar Surtlu og sam- tímis við íslenska ríkið sem hann stefnir fyrir harkalega frelsissviptingu og læknamis- tök sem eru líkleg til að kosta hann lífið. Það eru mikil forréttindi að fá að takast bæði á við íslenska ríkisvaldið og hana Surtlu mína í öllu sínu veldi samtímis. Ég er í engum vafa um hvernig viðureign mín við íslenska ríkið fer en ég hef ekki hugmynd um hvort ég lifi sjálf- ur að sjá réttlætinu fullnægt. En sá dagur mun koma,“ segir Hrafn, þar sem hann situr í sólinni fyrir utan Sjúkrahótel Landspítalans þar sem hann dvelur á meðan ráðist er að lófastóru meininu í hálsi hans með geislum og krabbameinslyfjum. „Ég veit ekki hvernig staðan er núna með Surtlu. Læknir í Fossvogi sem ég fékk til að tala mannamál, taldi að þetta væri „game over" á nokkrum vikum – með fyrirvara um kraftaverk,“ segir Hrafn, en ljóst er að Surtla hefur haft nokkur ár til að koma sér fyrir. „Ég las eitthvað um það að krabbameinssjúklingar brygðust við greiningu í einhverjum stigum: vanmáttur, afneitun, reiði og þung- lyndi og eitthvað en ég fór beint á YES! stigið. Gaman, gaman í stríðinu enda hafði ég ekki tíma til þess að fara í gegnum öll hin stigin.“ Sex vikna planið Hrafn segist þarna strax hafa farið að vinna eftir því sem hann kallar sex vikna planið. „Bíddu, hvað seg- irðu? Sex vikur. Ég get verið fúll í kortér,“ segir Hrafn, sem þarna fann skýringu á hvað hafði ýtt honum út í djúpa sjálfsskoðun sem hófst í heimsfaraldrinum. „Þetta gaf mér skýringar á af hverju ég hafði verið í þessu. Það var bara Surtla að knýja mig upp- gjörs svo ég væri búinn að ganga í gegnum það þegar á hólminn væri komið. Og nú er ég hérna.“ Hrafn rifjar upp að hann hafi ákveðið að hætta að drekka í byrjun árs 2020 þegar hann heyrði fyrst af heimsfaraldrinum, þar sem hann lá á bráðamóttökunni vegna hjarta- meins sem rakið var til áfengis- neyslu. „Ég sór minn eið á sjúkramót- tökunni 17. janúar um að ég myndi ekki framar taka sjúkrahússpláss vegna drykkju,“ segir Hrafn, sem réðist í meiriháttar tiltekt í nátt- úrunni og lífi sínu. Hann hófst síðan handa, eins og frægt er orðið, við hreinsun fjörunnar sinnar hjart- fólgnu í Kolgrafarvík. Sjálfboðaliðasamtökin Veraldar- vinir gengu í framhaldinu til liðs við Hrafn og hreinsunarstarfið teygði sig langt út fyrir Strandir. Það var síðan í varnarþingi Veraldarvina á Brú í Hrútafirði sem stríðshanskan- um var kastað og mesti átakakafli í viðburðaríkri ævisögu Hrafns hófst. Nýtt líf „Nú er ég loksins tilbúinn að leggja fram mitt mál eftir að hafa í næstum tvö ár þurft að rannsaka sjálfur með hjálp lögmanns míns, Reimars Péturssonar, og ómetanlegra vina, ráðgátuna miklu um hvað gerðist á Brú í Hrútafirði 31. október 2020 klukkan 23.06. Þegar sérsveitir rík- islögreglustjóra úr tveimur lands- fjórðungum og gjörvallt lögreglu- lið Vestur-Húnavatnssýslu ásamt samningateymi ríkislögreglustjóra og héraðslækni á Hvammstanga voru saman komin á Brú í Hrúta- firði, þar sem ég var að ganga til náða eftir viðburðaríka viku og Hrafninn flýgur yfir gaukshreiðrið Hrafn Jökulsson mætir Surtlu æðrulaus þótt læknir hafi gefið honum skamman tíma, að vísu með fyrirvara um kraftaverk. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þórarinn Þórarinsson thorarinn @frettabladid.is hlakkaði til þess að vakna frjáls maður 1. nóvember þegar ég yrði 55 ára og ætlaði að byrja nýtt og enn þá skemmtilegra líf.“ Hrafn rekur atburðarásina síðan eins og honum einum er lagið og segir ósköpin hafa byrjað þegar hann stóð upp frá tölvunni í mat- salnum klukkan 23.03. „Ég hafði sent vinum mínum hvatningarorð í tilefni af afmæli mínu og beðið þá um að gefa nú Veraldarvinum afmælisgjöf af þessu tilefni. Síðan gekk ég fram á tröppurnar til þess að kalla á hundinn Mosa. Hundur- inn Mosi ætlaði með mér í frelsið daginn eftir. Ég stóð þarna í myrkrinu. Him- ininn var stjörnum skrýddur og tunglið óð í skýjum. Mér fannst ein- hverjir nornakraftar vera í loftinu en ég gat ekki ímyndað mér að neitt slæmt gæti hent á svo fögru kvöldi. En þar sem ég stóð þarna og ætlaði að kalla á hann Mosa minn byrjuðu allt í einu blá og rauð ljós að blikka í myrkrinu. Á þeim var ekkert form og það fyrsta sem þessum fjörulalla datt í hug var: En gaman, er þetta geimskip? Upp með hendur! En þá heyrðist rödd úr myrkrinu sem kallaði: „Vopnuð lögregla! Hrafn, upp með hendur!“ Þá hugsaði ég og ég man hverja nanósekúndu eins og ég man líf mitt mestan part: Ekki geimskip, vopnuð ríkislög- regla?? Þá komu, eins og í Andrés- blöðunum tvö spurningarmerki. Og síðan setningin á ensku, einhverra hluta vegna: „I hit the jackpot.““ Hrafn segist að sjálfsögðu hafa farið að fyrirmælum lögreglu og 22 Helgin 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.