Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 24
„Því deild 32C er sannkallað hel- víti á jörðu. Versti staður sem ég hef komið á í lífinu og ég hef komið alls staðar og séð allt. Á B-gangi þar sem ég var lengst af eru aðeins fjögur herbergi og þetta er lokaðasta deild á Íslandi. Þar þurfti að knékrjúpa fyrir ungum starfsmönnum ef mann langaði í sígarettu og það var alls ekki sjálf- gefið að maður fengi að fara og lesa í bók eða ná sér í kaffi. Þetta þurfti allt að bera undir g r ímu k lædda einkennisbú na starfsmenn sem voru með fimm- tán sekúndna athyglisgáfu og voru þar að auki alltaf önnum kafnir við að spritta. En gott og vel. Ég náði nú sem betur fer til margra úr hópi starfsmanna og á margar góðar minningar þaðan.“ Í nýjum heimi Hrafn segir bestu minningarnar frá 32C tengjast félögum sínum og vinum til lífstíðar sem hann eignaðist þar. „Ég stofnaði Vina- félagið 1.  nóvember, á afmælinu mínu. Strax fyrsta daginn þegar ég var lentur í nýjum heimi. Alveg eins og þegar ég var lentur í nýjum heimi á Vöggustofunni, eða nýjum heimi hvar sem er í nýju lífi. Og hvað er það sem mann vantar í nýjum heimi? Jú, mikilvægast af öllu er að eignast fyrsta vininn og ég eignaðist fyrsta vininn 1. nóvember 2020, þegar við Guðni kynntumst. Hann hefur verið í klóm kerfisins allt sitt líf. Hann er alvöru hetja. Við stofnuðum Vinafélagið saman, kölluðum okkur Krumma Klakason og Guðna ekki forseta,“ segir Hrafn og bætir við að Vinafélagið hafi verið liður í því að skapa úr veru- leikanum. „Veruleikinn er yndislegt kaós og býður upp á endalausa sköpun ef maður er ekki hræddur og gefst ekki upp. Hvað gerir maður í nýjum heimi? Jú, maður heldur áfram að skapa. Maður gefst ekki upp þótt manni sé hent eins og rottu í Svan- dísarvíti og allur heimurinn stimpli mann geðveikan. Maður berst áfram, að sjálfsögðu.“ Öll sund lokuð Eftir tveggja vikna baráttu og fram- lengingu nauðungarvistarinnar um tólf vikur segist Hrafni hafa orðið ljóst að hann slyppi aldrei úr klóm kerfisins. „Allt vegna þess að ég neitaði að taka lyfin og 9. nóvem- ber varð mér ljóst að þeir ætluðu að halda mér til eilífðarnóns, ef þess þyrfti, til þess að ég tæki lyfin þeirra og viðurkenndi að ég væri geðveikur. Ég varð því að gjörbreyta um strategíu og bjó til furðusögu um að ég hefði verið að reykja eiturlyf sem heitir spice sem ég hef reyndar aldrei prófað en að aukaverkanir af þessu spice-i hefðu lýst sér í hegðun sem gæti átt sér samsvörun við lýsingu þeirra á maníu. Þannig að á pappírum þá gátum við náð saman um það.“ Hrafn segir læknana þó hafa verið fasta við heygarðshornið um lyfin og hafa verið byrjaða að hóta því að kalla út hið svokallaða varnarteymi geðsviðsins. „Og nauðungarsprauta mig, þvert ofan í það sem ég hafði sagt þeim, að það samrýmdist ekki trúarbrögðum mínum. Þetta væri bara eins og að neyða beikon ofan í múslima,“ segir Hrafn, sem beið staðfastur þess sem verða vildi. „Svo rann stóri dagurinn upp að læknarnir misstu þolinmæðina og kölluðu á varnarteymið til þess að sprauta mig. Mér var gert ljóst að ef ég tæki ekki pillu yrði mér haldið niðri og ég sprautaður. Ég og varnarteymið áttum afskap- lega skemmtilega kvöldstund. Ég rabbaði fyrst við strákana um ýmis siðfræðileg málefni og þeirra eigin framlag til lífsins og hvað þeir hefðu lagt til málstaðarins. Við áttum saman góða stund fyrir aftökuna og svo var ég tekinn og mér var haldið niðri af fjórum fullfrískum karlmönnum og sprautaður með  þessum ógeðslegu kemísku efnum, sem samrýmist ekki mínum lífs- skoðunum og trúarbrögðum. Surtla birtist Íslenska heilbrigðiskerfið er á síð- ustu þremur árum búið að eyða tugum milljóna í að lækna mig af sjúkdómi sem ég er ekki haldinn. Síðustu tvö ár hef ég margoft fundið fyrir eymslum í hálsi og verið send- ur í hvert Covid-prófið á fætur öðru. Í mars á þessu ári fann ég að þetta var ekki einleikið og bað um lækni á deildina 33C þar sem ég var þá. Læknirinn kom og leit á háls- inn á mér, sagði að þetta væri ekki eðlilegt, lét taka blóðprufu og svo heyrði ég aldrei neitt meira.“ Það var svo ekki fyrr en 24. júní að Surtla fannst eftir að Jóhanna Engil- ráð, dóttir Hrafns, rak pabba sinn til læknis. „Og ég fékk að vita af Surtlu í vikunni á eftir. Það fyrsta sem íslenska ríkið hefði átt að gera þegar það svipti mig frelsinu og lífinu og öllu 1. nóvem- ber hefði að sjálfsögðu átt að vera að setja mig í allsherjar athugun. Fyrst að íslenska ríkið vildi lækna mig þá átti það að taka stöðutékk á mér.“ Hrafn segist ítrekað hafa beðið læknana um að rannsaka á honum líkamann. „Og ég skal sýna ykkur hvernig einn miðaldra, útbrunninn alkóhólisti breytti á tíu mánuðum líkama sínum úr því að hann gat varla risið upp við dogg yfir í það að hann getur barist einn við allan heiminn. Af hverju athugið þið það ekki? Og ég var líka að biðja þá um að skoða hausinn á mér. Skoðið hvern- ig ég hugsa áður en þið læknið mig, viljið þið ekki vita hvernig ég hugsa? Ég hugsa ekki eins og þið. Ég hugsa allt öðruvísi. Ég mótaði hugsun mína sjálfur. Og allt mitt líf byggist á sköpun. Því sem ég skapa í mínum eigin huga og því sem ég geri með mínum tveimur höndum. Einsamall og berhentur og með huga mínum. Aldrei glaðari Ákærurnar tvær snúast um plataf- mælið á Brú og fangelsið í Svan- dísarvíti. Hin ákæran snýr að van- rækslu og mistökum sem eru nú að öllum líkindum að leiða til dauða míns. Þannig að við förum í mann- bótamál að fornum sið,“ segir Hrafn, sem sjálfum sér líkur mætir örvum glaður í bæði stríðin; við Surtlu og íslenska ríkið. „Drottinn minn dýri. Ég hef aldrei verið glaðari heldur en núna því ég hef aldrei verið sáttari við líf mitt. Mér finnst líf mitt fullkomið eins og það er og ég hef náð að leysa mína lífsgátu. Og er svo þakklátur fyrir það tækifæri að geta verið að skoða líf mitt og njóta lífsins en vera ekki allt í einu dauður sísona. Það er enn þá verk að vinna í þágu málstaðar- ins,“ segir Hrafn sem hvorki bregður sér við sár né bana. „Það er gaman að vera í lífshættu. Þá er maður á lífi. Svona á þetta að vera. Ég vil vera úti á dekki í pusinu. Og gleðjast,“ segir Hrafn sem hefur síðustu vikur skemmt sér við að líta um öxl yfir ævintýralegan og fjöl- breyttan feril þar sem hann, iðulega ófyrirsjáanlegur, hefur meðal ann- ars verið; ljóðskáld, blaðamaður, stríðsfréttaritari í Bosníu, skáktrú- boði, Grænlandsvinur, rithöfundur og óþreytandi baráttumaður fyrir aðeins betri heimi ýmsum vett- vangi. Þegar að því kemur, tékkarðu þig út sáttur eftir að hafa litið yfir farinn veg og það sem eftir þig liggur. Allar minningarnar, ljóðin, blöðin, tíma­ ritin, bækurnar, litlu byltingarnar hér og börnin þín fjögur…? „Sannarlega! Þetta er búið að vera stórkostlegt líf. Ég held að ég hafi ekki fengið níu líf. Ég held að ég hafi fengið átján. Svona þegar ég hef verið að skoða mitt ævin- týralega lífshlaup. Ég held það séu átján, kannski er ég bara búinn með sautján.“ Höfundur eigin lífs Við höfum verið vinir í tvo áratugi þannig að ég þekki þig náttúrlega vel og veit að kvarnirnar í hausnum á þér snúast stöðugt á öðru hund­ raðinu þannig að hugmyndirnar streyma fram svo hratt að ég get stundum beinlínis orðið þreyttur af því einu að taka við þeim öllum. „Já, svo er það munurinn á að fá hugmyndir og framkvæma þær. Er það ekki? Já, við höfum alltaf verið svolítið góðir í því,“ segir Hrafn og hlær lágt. „Já, já. Ég hef komið víða við en ég hef líka alltaf verið á mínu ferðalagi. Og ég hef aldrei verið upptekinn til dæmis af áliti annarra eða skoðun- um annarra. Ég hef aldrei borið mig saman við aðra. Hvort sem ég hef verið í blaðamennsku, eða verið að skrifa eða sama hvað ég er að gera. Ég ber mig ekkert saman við aðra af því að eini höfundurinn sem ég hef lært af það er ég sjálfur og það geri ég með því að lesa mína eigin texta aftur og aftur og aftur þang- að til þeir verða betri og betri og skýrari og skýrari. Svo er auðvitað gaman að lesa aðra höfunda ef þeir eru skemmtilegir.“ Ekkert að óttast Tölu verður ekki með góðu móti komið á öll þau góðgerðarmál og fjársafnanir sem Hrafn hefur lagt lið eða staðið fyrir til þess að rétta þeim sem minnst mega sín, ekki síst börnum, hjálparhönd nær og fjær. Þú hefur lítið verið að hugsa um eigin hag og efnahag í öllum þessum ævintýrum þínum sem hafa nú ansi oft hafist með þessum orðum: Jæja, hvernig eigum við að réttlæta tilveru okkar í dag? „Ég er ferðalangur og ferðalangur þarf ekki hús eða íbúð. Ég hef aldrei átt hús eða íbúð. Ég man ekki hvort ég hef einhvern tímann verið skrif- aður fyrir bíl. En hvernig réttlætum við tilveru okkar? Við réttlætum til- veru okkar einfaldlega með því að reyna að vera svolítið næs hvert við annað. Er það ekki? Byrja þar.“ Og fegra lífið aðeins? „Já! Lífið er skemmtilegt. Það er engin ástæða til þess að vera hræddur. Við lifum í samfélagi sem er gegnsýrt af ótta. Mörgum finnst dauðinn vera tabú og erfitt að tala um hann. Ég hef vanið mig á að hugsa um og fást við dauðann allt mitt líf. Hann hefur verið förunautur minn og ég þekki hann svo vel. Ég hef svo oft verið þar sem hann átti að vera en hann hefur ekki verið þar. Þannig að ef þú vilt vita leynd- armál þá er hann ekki til, skilurðu? Þannig að við þurfum ekki að vera hrædd við eitthvað sem er ekki til. Ekki satt? Við getum byrjað þar. Ekki vera hrædd.“ n „Ég ákæri allt íslenska lýð- veldið, alla stjórnmála- menn, alla geð- lækna, alla ráða- menn íslenska lýðveldisins. En ég geri það með bros á vör.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Veruleikinn er yndis- legt kaós og býður upp á endalausa sköpun ef maður er ekki hrædd- ur og gefst ekki upp. 24 Helgin 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.