Fréttablaðið - 27.08.2022, Page 35
Embætti hagstofustjóra
laust til umsóknar
Hagstofa Íslands starfar á grundvelli laga um Hagstofu Íslands, nr. 163/2007. Hún er
sjálfstæð stofnun sem heyrir undir forsætisráðherra. Hagstofan er miðstöð opinberrar
hagskýrslugerðar í landinu og hefur forystu um tilhögun, samræmingu og framkvæmd hennar
og um samskipti við alþjóðastofnanir um hagskýrslu- og tölfræðimál.
Leitað er að metnaðarfullum og framsæknum einstaklingi sem er vel fær um að takast á
hendur rekstur stofnunarinnar, sjá til þess að lögbundnum verkefnum hennar sé sinnt af
fagmennsku, geti sinnt og hafi skilning á þörfum samfélagsins og stjórnvalda fyrir vandaðar
hagskýrslur og talnaefni, svo sem á sviði sjálfbærrar þróunar og velsældarmarkmiða, og sjái
til þess að stofnunin sinni vel þjónustu við almenning og atvinnulíf.
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í hagfræði, tölfræði, félagsfræði eða skyldum greinum, þekking og reynsla af
hagskýrslugerð eða notkun hagtalna.
• Hæfileiki og þekking til að veita stofnuninni forystu og móta hlutverk hennar til framtíðar.
• Skýr sýn á hlutverk Hagstofunnar í nútíð og framtíð, m.a. þjónustuhlutverk hennar og
umbótaþörf með hliðsjón af þörfum samfélagsins, samfélagsbreytingum, tækniþróun og
upplýsingaþörf.
• Þekking á og reynsla af miðlun flókinna upplýsinga.
• Farsæl reynsla af umbótavinnu og breytingastjórnun er kostur.
• Hæfileiki til að tjá sig m.a. um málefni stofnunarinnar í ræðu og riti, a.m.k. á íslensku,
ensku og einu öðru Norðurlandamáli.
Við skipun í embætti hagstofustjóra verður einnig horft til þátta sem skilgreindir hafa verið
í stjórnendastefnu ríkisins sem eru heilindi, leiðtogahæfni, árangursmiðuð stjórnun og
samskiptahæfni.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá, þar sem fram koma upplýsingar um menntun og fyrri
störf, ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæður umsóknar og hvernig viðkomandi
uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið.
Um laun og önnur launakjör hagstofustjóra fer skv. 39. gr. a. laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2022 og skal umsóknum skilað á starfatorg.is
með viðeigandi fylgigögnum fyrir lok þess dags.
Forsætisráðherra mun skipa þriggja manna hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda og
skilar greinargerð til ráðherra.
Embætti hagstofustjóra er laust til umsóknar frá og með
1. nóvember 2022, en forsætisráðherra skipar í embættið
til fimm ára í senn.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Hlöðversdóttir,
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu;
bryndis.hlodversdottir@for.is
Erum við
að leita að þér?
ATVINNUBLAÐIÐ 7LAUGARDAGUR 27. ágúst 2022