Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 41
Starfssvið og helstu verkefni:
Safnstjóri Listasafns Íslands ber stjórnunarlega og fjárhagslega
ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi safnsins.
Að öðru leyti eru starfsskyldur safnstjóra m.a.:
• Dagleg stjórnun og rekstur safnsins svo sem fyrir er mælt
í lögum og reglum.
• Yfirstjórn og varðveisla safneignar.
• Fjárhagsleg ábyrgð, áætlanagerð um meðferð fjármuna
og rekstur safnsins.
• Stjórnun listaverkainnkaupa til safnsins.
• Stjórnun sýningarhalds, fræðslustarfsemi, útgáfu og þjónustu
við safngesti, þ.m.t vörusölu.
• Stjórnun lána á listaverkum til hins opinbera og til annarra
safna í samræmi við lög og reglur.
• Skipulagning og tilhögun rannsókna sem safnið hefur með höndum.
• Leiða ráðgjafahlutverk og samvinnu viðurkenndra listasafna
á landsvísu.
• Móta framtíðarsýn fræðslu, miðlunar og sýningarhalds safnsins.
• Ábyrgð á öryggi safneignar og húsakosts.
• Annast umsýslu safneignar, aðgengi og kynningu fyrir
almenning og opinbera gesti.
• Að vera menningar- og viðskiptaráðuneyti til ráðgjafar
um myndlist og listsögulegan menningararf.
Hæfniskröfur og eiginleikar umsækjanda eru m.a.:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi og staðgóð þekking
á starfssviði Listasafnsins.
• Þekking á starfsumhverfi og lögum um Listasafn Íslands.
• Framúrskarandi leiðtogahæfni, skipulagshæfni, frumkvæði
og sjálfstæði.
• Árangursrík reynsla af stjórnun og mótun liðsheildar.
• Árangursrík reynsla af mannauðsmálum, mannþekking og drifkraftur.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu og lagaumhverfi opinberra stofnana.
• Nánar á Starfatorg.is.
Nánari upplýsingar:
Áhugasamt fólk, óháð kyni, sem uppfyllir skilyrði ráðningar og býr
yfir þeirri hæfni og eiginleikum sem er áskilið, er hvatt til að sækja
um embættið.
Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára
að fengnu mati hæfnisnefndar. Gert er ráð fyrir að skipað verði
í embættið frá og með 15. október 2022. Umsóknarfrestur er til
og með 12. september 2022. Frekari upplýsingar um hæfniskröfur
og umsóknarferli má finna á www.starfatorg.is.
Upplýsingar veitir Skúli Eggert Þórðarson ráðuneytisstjóri
í síma 5459825.
Embætti safnstjóra Listasafns Íslands er laust til umsóknar.
Safnstjóri Listasafns Íslands stjórnar starfsemi og rekstri safnsins
og mótar listræna stefnu þess.
Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og höfuðsafn á sviði myndlistar.
Hlutverk safnsins er m.a. að safna íslenskri myndlist og vera miðstöð
varðveislu, rannsókna, heimildasöfnunar og miðlunar á íslenskri
myndlist. Það veitir öðrum söfnum ráðgjöf, stuðlar að samvinnu
listasafna og vinnur að samræmdri safnastefnu á sviði myndlistar.
Safnið heyrir undir menningar- og viðskiptaráðuneytið og annast
rekstur þriggja safnhúsa í Reykjavík; Aðalsafnhús, Listasafn
Ásgríms Jónssonar og Safnahúsið við Hverfisgötu.
Listasafn Íslands stendur að öflugu sýninga- og fræðsluhaldi árið
um kring. Það kaupir listaverk í samræmi við lög og reglugerð sem
gilda um safnið og tekur á móti listaverkagjöfum.
Leitað er að einstaklingi til að stýra Listasafni Íslands sem hefur
sýnt ótvíræða leiðtogafærni og hefur til að bera þá þekkingu,
reynslu og aðra eiginleika til að takast á við það verkefni, svo sem
frekar greinir í auglýsingu þessari.
Leiðtogi óskast
Listasafn Íslands