Fréttablaðið - 27.08.2022, Page 48
Umsóknarfrestur er til og með 11. september nk.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfssferilskrá
og kynningarbréf.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir
til að sækja um starfið.
Upplýsingar veitir Þórdís Sif Arnarsdóttir,
thordis@hagvangur.is.
Verkefnastjóri framkvæmda
Starf í Borgarnesi
Leigufélagið Bríet ehf. leitar að verkefnastjóra bygginga framkvæmda með
starfsstöð í Borgar nesi. Leitað er að metnaðarfullum verkefnastjóra til að
taka þátt í uppbyggingu leigu húsnæðis á landsbyggðinni. Verkefnastjórinn
hefur umsjón með og ber ábyrgð á framkvæmda verkefnum á vegum
leigu félagsins og Brákar íbúða félags hses. og annast meðal annars gerð
verk-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlana. Starfinu fylgja mikil samskipti
við sveitarfélög, HMS og framkvæmdaaðila. Kostur er ef viðkomandi
hefur þekkingu á opinberri stjórn sýslu og húsnæðis markaðnum, þ.m.t.
þeim fjármögnunar möguleikum sem eru á húsnæðismarkaði.
Helstu verkefni
• Eftirfylgni verksamninga m.t.t. framvindu
• Kostnaðareftirlit framkvæmda
• Rýning og eftirlit með skilalýsingum
• Yfirferð byggingarteikninga og hönnunargagna
• Umsjón með gerð útboðsgagna
• Verkeftirlit og úttektir
• Samningagerð vegna byggingarverkefna
• Samskipti við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi s.s. iðn- eða tæknimenntun
• Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er nauðsynleg
• Reynsla af þátttöku í opinberum framkvæmdum er kostur
• Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
• Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð
• Mjög góð tölvufærni og skipulagshæfileikar
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Leigufélagið Bríet ehf. er óhagnaðardrifið
leigufélag með það megin markmið að stuðla
að auknu húsnæðisöryggi á landsbyggðinni.
Kjarnastarfsemi Bríetar ehf. er að eiga, reka
og leigja út íbúðarhúsnæði til langs tíma. Brák
íbúðafélag hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun
í eigu sveitarfélaga á landsbyggðinni með þann
tilgang að stuðla að uppbyggingu leiguíbúða
á landsbyggðinni utan höfuðborgarsvæðisins
með því að byggja eða kaupa, eiga og hafa
umsjón með rekstri og viðhaldi almennra íbúða
á landsbyggðinni utan höfuðborgarsvæðisins og
veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum
nr. 52/2016 um almennar íbúðir. Leigufélagið Bríet
ehf. og Brák íbúðafélag hses. hafa gert með sér
þjónustusamning og munu verkefni verkefnastjóra
framkvæmda felast í þjónustu við bæði félögin.
hagvangur.is
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
hagvangur.is
20 ATVINNUBLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR