Fréttablaðið - 27.08.2022, Side 62
Hugtakið „þróun“ hefur
talsvert verið í orðræðunni
undanfarin misseri. Við
lifum í síbreytilegu sam-
félagi þar sem áherslubreyt-
ingar og ný verkfæri sem
styðja við störf almennt líta
dagsins ljós nokkuð ört og
jafnvel of ört fyrir mörg.
Að sögn Selmu Kristjánsdóttur,
fagstjóra starfsmenntamála hjá
VR, verður fólk oftar en ekki að
tileinka sér ný vinnubrögð og bæta
við sig aukinni hæfni til þess að
hægt sé takast á við og geta nýtt
þessa þróun. „En hvernig veit fólk
hverju skal við bæta og hvernig
það getur styrkt sig til að takast á
við þessar áskoranir sem framtíðin
ber í skauti sér?
Hæfni framtíðarinnar
The World Economic Forum, eða
Alþjóðaefnahagsráðið, er sjálf-
stæð alþjóðastofnun sem sérhæfir
sig í greiningu á framtíðarhæfni
á vinnumarkaði. Stofnunin er
staðsett í Genf í Sviss, er ekki
bundin sérhagsmunasamtökum
og starfar ekki í hagnaðarskyni.
Stofnunin á í samstarfi við
opinbera og einkageirann við
að greina mögulega framtíðar-
hæfni fólks í takti við þær öru
breytingar sem eru og verða á
vinnumarkaði. Á nokkurra ára
fresti gefur Alþjóðaefnahagsráðið
frá sér skýrslu sem kallast „The
Future of Jobs Report“. Í þessum
skýrslum kortleggur ráðið framtíð
starfa og birtir þá hæfniþætti sem
munu teljast mikilvægir fyrir störf
framtíðarinnar, tækninýjungar og
innleiðingu þeirra í alþjóðasam-
félaginu út frá þeim atburðum eða
breytingum sem hafa átt sér stað í
gegnum tíðina.
Tíu mikilvægustu
hæfniþættirnir 2025
Í skýrslu ráðsins má meðal annars
finna útlistun á tíu mikilvægustu
hæfniþáttum starfa árið 2025
sem Alþjóðaefnahagsráðið telur
mikilvæga í framtíðinni. Má nefna
sem dæmi að hæfni til að leysa
úr flóknum vandamálum er einn
þeirra þátta sem atvinnurekendur
trúa að muni áfram vera mikilvæg-
ir á næstu árum, en þessi þáttur
hefur verið á lista hjá stofnuninni
yfir mikilvæga hæfniþætti síðan
árið 2016. Aðrir hæfniþættir sem
eru að ryðja sér til aukins rúms eru
þættir er lúta að sjálfsstjórn starfs-
fólks. Má þar nefna virka þátttöku
í lærdómsferli, seiglu, streituþol
og sveigjanleika. Þar sem margir
þessara hæfniþátta snúa að sjálfs-
stjórn og persónulegri hæfni fólks
er brýnt að hver og einn einstakl-
ingur taki þátt í eigin starfsþróun,
hugi að hæfni sinni og hafi þessa
mikilvægu hæfniþætti sér til hlið-
sjónar.
Í höndum einstaklinga
og fyrirtækja
Möguleikar til eigin starfsþró-
unar eru margir og þegar horft er
til kostnaðarhliðarinnar koma
starfsmenntasjóðir stéttar-
félaga oftar en ekki dyggilega til
stuðnings. Starfsmenntasjóður
verslunar- og skrifstofufólks er
starfsmenntasjóður félagsfólks
aðildarfélaga og fyrirtækja sem
Losnar fólk aldrei undan pressunni að læra?
Selma Kristjánsdóttir segir að hæfni til að leysa úr flóknum vandamálum
hafi verið á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir mikilvæga hæfniþætti á at-
vinnumarkaði síðan 2016 og verði þar áfram. Fréttablaðið/anton brink
starfa eftir kjarasamningi VR,
Landssambands íslenzkra verzl-
unarmanna og Samtaka atvinnu-
lífsins. Styrkjamöguleikar sjóðsins
eru nokkrir sem meðal annars má
sjá í útlistun á leiðunum þremur
hér á síðunni. Til viðbótar við þær
mögulegu leiðir sem færar eru þarf
að huga að því hvað telst styrkhæft
í sjóðinn og þá flokkun má sjá í
töflu félagsfólki VR/LÍV til frekari
útskýringar.“ n
6 kynningarblað A L LT 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR