Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 76
Umfjöllun og
fréttir alla daga
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og
Kristján Þór Einarsson, GM, sigruðu
í Korpubikarnum sem fram fór í
samvinnu við Icelandair á Korpúlfs-
staðavelli dagana 19.-21. ágúst 2022.
Þau léku bæði frábært golf og líklega
er þetta besti árangur sem sést hefur
á stigamóti hér á landi. Leiknar voru
54 holur á þremur dögum en mótið
var jafnframt lokamótið á stiga-
mótaröð GSÍ.
Guðrún Brá lék snilldar golf og
endaði á 12 höggum undir pari vall-
ar. Hún sigraði með 12 högga mun.
Hún fékk þrettán fugla og tvo erni
á 54 holunum sem er frábært. Perla
Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Íslands-
meistari í golfi 2022, varð önnur á
pari vallar og Berglind Björnsdóttir,
GR, varð þriðja á 2 höggum yfir pari.
Kristján Þór, sem er Íslands-
meistari í golfi 2022, lék á 18 höggum
undir pari vallar, sem er samkvæmt
bestu heimildum besti árangur sem
íslenskur kylfingur hefur náð á 54
holum. Hann fékk tuttugu fugla á
54 holum og einn örn. Allir hring-
irnir voru undir 70 höggum sem er
afar sjaldgæft.
Kristján var með fjögurra högga
forskot fyrir lokahringinn en Axel
Bóasson, GK, veitti honum harða
keppni og náði að jafna hann á 10.
holu og komast í forystu á 12. braut
en hann var átta undir pari eftir
12 holur. Kristján fékk tvo fugla á
síðustu fjórum en Axel lék þær á
pari. Munurinn því tvö högg í lokin.
Næstir voru Hlynur Bergsson, Hjalti
Hlíðberg Jónasson, sem eru báðir úr
GKG, og Böðvar Bragi Pálsson, GR
léku allir á 8 höggum undir pari vall-
ar. Alls léku 16 leikmenn í mótinu í
karlaflokki undir pari vallar – sem er
frábær árangur í golfmóti á Íslandi.
Með sigrinum tryggði Kristján
Þór sér jafnframt stigameistara-
titilinn 2022. n
Kristján Þór og Guðrún Brá báru sigur
úr býtum í Korpubikarnum
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, er
stigameistari 2022 á stigamótaröð
GSÍ. Heiðrún Anna Hlynsdóttir,
GOS, varð önnur, skammt á eftir
Jóhönnu og Perla Sól Sigurbrands-
dóttir, Íslandsmeistari í golfi 2022,
varð þriðja.
Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhanna
Lea er stigameistari. Hún lék á alls
fjórum mótum af sex á tímabilinu.
Hún sigraði á einu þeirra, Leiru-
mótinu hjá GS, hún varð ein í öðru
sæti í Hvaleyrarbikarnum og í þriðja
sæti á B59 Hotel mótinu. Á Íslands-
mótinu í golfi endaði hún á meðal
20 efstu. n
Jóhanna Lea stigameistari
Íslenska kvennalandsliðið í golfi
hóf leik miðvikudaginn 24. ágúst á
Heimsmeistaramótinu í liðakeppni
áhugakylfinga, Espirito Santo Trop-
hy. Andrea Bergsdóttir, Hulda Clara
Gestsdóttir og Ragnhildur Krist-
insdóttir skipa íslenska liðið. Með
þeim í för eru Ólafur Björn Loftsson
afreksstjóri og Baldur Gunnbjörns-
son sjúkraþjálfari. Mótið fer nú fram
í 29. skipti og hefst keppni miðviku-
daginn 24. ágúst og lokadagurinn er
27. ágúst.
Keppt er á tveimur völlum, Le
Golf National og Golf de Saint-Nom-
La-Bretèche, sem eru rétt utan við
París í Frakklandi. Alls eru 56 þjóðir
sem taka þátt en mótið hefur aðeins
einu sinni verið með fleiri liðum, 57
á Írlandi árið 2018. Mótið er 72 holu
höggleikur, og 2 bestu skorin af alls
3 telja á hverjum degi. n
Keppa á HM í Frakklandi
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR,
nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi
2022, er í úrvalsliði meginlands
Evrópu sem keppir gegn úrvalsliði
Bretlands og Írlands í Junior Vagli-
ano liðakeppninni 2022.
Mótið er árlegur viðburður þar
sem að úrvalslið kvenna 16 ára og
yngri keppir sín á milli – og eru
aðeins kylfingar í fremstu röð á
heimsvísu valdir í þetta mót. Perla
Sól sigraði nýverið á Evrópumóti
stúlkna 16 ára og yngri – og er hún
fyrsti íslenski kylfingurinn sem
nær þeim árangri í stúlknaflokki.
Valnefnd á vegum EGA setti saman
liðið – sem er þannig skipað: Perla
Sól Sigurbrandsdóttir, Johanna
Axelsen (Danmörk), Anna Cañadó
(Spánn), Andrea Revuelta (Spánn),
Carla De Troia (Frakkland) og Lynn
Van Der Sljuijs (Holland) sem sigraði
nýverið á R&A áhugamannamótinu
í stúlknaf lokki fékk einnig sæti í
liðinu eftir sigurinn. n
Perla Sól keppir á stóru sviði í Evrópu
Kristján Þór Einarsson hefur
átt viðburðaríkt golftímabil
þar sem hann hefur skarað
fram úr og sópað að sér titlum
Hann segist ætla að halda
áfram að hafa gaman af golfi.
„Þolinmæði er það fyrsta sem
kemur upp í hugann og mikill
stuðningur frá fólkinu í kringum
mig,“ segir Kristján Þór Einarsson,
stigameistari GSÍ og Íslandsmeistari
2022, þegar hann er spurður hver sé
lykillinn að góðri spilamennsku að
undanförnu og í sumar.
Kristján segir að hann sé gamli
kallinn á mótaröðinni þar sem
margir ungir kappar undir tvítugu
og rétt rúmlega það séu meðal
keppenda. Hann er þó aðeins 34
ára. „Þeir segja stundum við mig á
fyrsta teig: Maður fær bara að spila
með gamla í dag“, segir Kristján og
hlær, en hann var einmitt tvítugur
þegar hann varð Íslandsmeistari
2008. Núna vann hann titilinn aftur
á sama stað fjórtán árum síðar.
Kristján Þór var heldur betur á
boltanum í Korpubikarnum um síð-
ustu helgi. Hann lék hringina þrjá á
18 undir pari, eitthvað sem hefur
aldrei sést á Íslandi áður. Hann
fékk tuttugu fugla og einn örn á 54
holum sem er frábært og magnað.
En hann fékk harða keppni frá
Keilismanninum og atvinnukylf-
ingnum Axel Bóassyni sem þurfti
að vinna upp fjögur högg í loka-
hringnum. Hann gerði það og gott
betur og var kominn í forystu þegar
fimm holur voru eftir, en Kristján
sýndi áfram seiglu og tryggði sér
sigur.
Hvað segir Kristján eftir þennan
annan sigur á móti í mánuðinum og
stigameistaratitilinn?
„Ég var alveg rólegur og naut þess
að sjá Axel í miklu stuði. Hann var
8 undir pari eftir 12 holur og hafði
unnið upp fjögurra högga forskot á
tíundu holu í lokahringnum og gerði
gott betur því hann var kominn í
forystu á tólftu. Ég náði frábæru
pútti á 14. f löt og var sterkur á loka-
holunum sem dugði til sigurs. Ég hef
aldrei leikið jafn gott golf og í þessu
móti. Aðstæður voru líka mjög
góðar. Korpan er í frábæru ásig-
komulagi og f latirnar sérstaklega
góðar, héldu mjög vel línu þann-
ig að það hjálpaði til í púttunum.
Svo eru fleiri mál sem hafa hjálpað
mér í sumar. Mér hefur aldrei liðið
jafn vel á golfvellinum. Ég var ekki
með mjög miklar væntingar í vor
en var ákveðinn í að spila mitt golf.
Ég hef þurft að vinna í erfiðum per-
sónulegum málum, barnaverndar-
máli sem endaði í forsjárdeilu og
það hefur tekið nokkurn tíma en
er nú að baki að mestu. Að ganga
í gegnum þá reynslu hefur kennt
mér meiri þolinmæði og mér finnst
það hafa hjálpað mér á golfvell-
inum. Það er frábært að geta leikið
áhyggjulaust golf þar sem ánægjan
og gleði hefur ráðið ríkjum.“
Hefurðu eitthvað hugsað um að
reyna við atvinnumennsku?
„Ég gerði það árið 2014 og það
hefur aldrei verið á dagskrá eftir
það.“
Kristján segir það svolítið sér-
kennilegt að keppnistíðinni sé lokið
hér heima.
„Það er nægur tími eftir af sumri
og ætti að vera hægt að spila í tveim-
ur mótum til vibótar.“
Kristján segist ætla að halda
áfram að æfa og leika keppnisgolf
og hafa gaman af því. „Það hefur
verið stígandi í mínum leik í sumar,
ég er kominn með meira sjálfstraust
sem kylfingur og persóna. Ég ætla
að halda áfram að æfa vel en svo
verð ég líka í golfi með börnunum
mínum tveimur sem eru 8 og 9 ára.“
En er eitthvað eitt sem stendur
upp úr eftir keppnissumarið hjá
Kristjáni?
„Já, þegar maður lítur til baka er
það sérstakt að í tveimur stórum
mótum, meistaramótinu og Íslands-
mótinu í Eyjum þurfti að aflýsa einni
umferð. Ég man ekki eftir að hafa
upplifað það á sama sumrinu,“ n
Þolinmæði og stuðningur
Kristján Þór Einarsson er stigameistari GSÍ.
Ég er kominn með
meira sjálfstraust sem
kylfingur og persóna.
Ég ætla halda áfram að
æfa vel
Perla Sól er einn
efnilegasti kylfingur
Íslands um þesar
mundir.
Jóhanna Lea skaraði fram úr.
Kristján Þór og Guðrún Brá spiluðu frábært golf í Korpubikarnum.
Perla Sól er Íslandsmeistari í golfi.
Íslenska kvennalandsliðið keppir á
heimsmeistaramóti áhugakylfinga.
36 Bílar 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐGOLF FRÉTTABLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR