Fréttablaðið - 27.08.2022, Qupperneq 80
BÆKUR
Hvað er Drottinn
að drolla?
Auður Haralds
Fjöldi síðna: 270
Útgefandi: JPV útgáfa
Kristján Jóhann Jónsson
Saga Auðar Haralds Hvað er Drott-
inn að drolla? er skemmtileg
aflestrar og stundum fyndin. Gæti
verið prýðilegt lesefni fyrir fram-
haldsskólanema. Farsæl skrifstofu-
kona lendir 676 ár aftur í tímann og
vaknar í smáþorpi á Mið-Englandi,
rétt áður en svarti dauði heltekur
Evrópu. Sögur af tímaf lakki eru
margar, bæði í bókmenntum og
kvikmyndum. Það er freistandi og
skemmtilegt að notfæra sér í frá-
sögn allt það smáa en mikilvæga
sem breyst hefur á löngum tíma og
bæði skopleg og raunaleg tilhugsun
að hversdagslífið geti skyndilega
snúist á haus.
Yfirburðir nútímans
Stundum kemur gesturinn í tíma-
f lakkssögum úr gamla tímanum
og inn í nútímann, verður kjána-
legur og gerir allt skakkt eins og
jólasveinunum okkar hættir til
þegar þeir koma ofan úr fjöllunum.
Í sögu Auðar kemur gesturinn úr
nútímanum inn í fortíðina og hefur
heilmikla yfirburði. Guðbjörg skrif-
stofukona lendir að vísu í líkama
miklu yngri konu, heitir þá Elísa-
bet og ber oft fyrir sig minnisleysi
þegar hana vantar þekkingu Elísa-
betar. Hins vegar er hún vel lesin í
miðaldasögu og veit allt mögulegt
sem hinir nýju „samtímamenn“
hennar hafa ekki aðgang að. For-
tíðin stendur nútímanum nokkuð
langt að baki. Guðbjörg sem nú
heitir Elísabet, spreytir sig dálítið
á sóttvörnum en fljótt verður ljóst
að í lágþróuðu samfélagi er ekki
hægt að verjast bakteríum. Það er af
tæknilegum ástæðum og auk þess
eru handhafar þekkingarinnar árið
1346 vantrúaðir á upplýsingar þess-
arar konu sem þeir vita ekki betur
en sé Elísabet.
Tvær pestir
Ef til vill mætti gagnrýna söguna
fyrir að fara eilítið hægt af stað.
Hreinlætismál verða að ásteytingar-
steini strax í upphafi og margsinnis
er hnykkt á þeim vanda áður en
yfir lýkur. Að vissu leyti réttlætist
það hins vegar í frásögninni þegar
pestin kemur og blómstrar í sóða-
skapnum. Það er líka umhugsunar-
efni hvernig svarti dauði birtist í
sögulegri skáldsögu rétt eftir Covid.
Drepsótt í varnarlausu samfélagi er
ansi mikið harkalegri en í okkar
tæknivædda nútíma. Við vældum
nú samt ef ég man rétt og hrinum út
af því hvað Covid væri okkur erfitt
og sumum virtist jafnvel finnast að
aldrei, hvorki fyrr né síðar, hefði
nokkur kynslóð lent í svo hræði-
legum raunum. Höf undurinn
lætur að þessu liggja í lok sögunnar
og umhugsunarefnið á fullan rétt á
sér. Erum við nútímamenn frekar
grátt leikin af sjálfsmeðaumkun?
Í því miðaldasamfélagi sem hér er
lýst túlka guðsmennirnir pestina
sem refsingu guðs og það verður
ekki með nokkru móti sagt að full-
trúar guðs í þessari bók beri honum
fagurt vitni. n
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg,
söguleg skáldsaga, nokkuð fyndin
og heldur uppi ágætri spennu.
Svarti dauði er uppistaða í þeirri
fortíð sem lýst er.
Drottinn og pestirnar hans
Hvað er drottinn að drolla? er
nýjasta skáldsaga Auðar Haralds.
Viftur
Heilbrigt loft - heilbrigt heimili
Betri loftgæði
Rétt rakastig
Minni líkur á myglusveppum
Minna ryk
Færri veirur og bakteríur
Minna orkutap
•
•
•
•
•
•
viftur.is
-andaðu léttar
Loftskiptikerfi
varmaendurvinnsla - loftsíun - loftskipti
tsh@frettabladid.is
Rússneski listahópurinn Pussy Riot
mun sýna verk í Þjóðleikhúsinu í
nóvember. Magnús Geir Þórðarson
þjóðleikhússtjóri staðfestir þetta.
„Pussy R iot-hópur inn kom
hingað á vordögum og vann hér í
húsinu sem var nú háleynilegt í upp-
hafi en hætti svo að vera leynilegt.
Þær unnu hér sýningu sem þær eru
búnar að túra Evrópu með og Þjóð-
leikhúsið aðstoðaði við og sú sýning
verður flutt í Þjóðleikhúsinu í nóv-
ember,“ segir Magnús Geir.
Að sögn hans er um að ræða leik-
sýningu, listgjörning og tónleika,
sem verður sýnd samhliða fyrstu
yfirlitssýningu Pussy Riot sem
verður opnuð í gallerí Kling & Bang
í nóvember.
Pussy Riot er femínískur listhóp-
ur sem notar list sína sem pólitískt
af l til að berjast fyrir lýðræði, mál-
frelsi, trúfrelsi og réttindum hin-
segin fólks í Rússlandi, meðal ann-
ars. Meðlimir hópsins eru harðir
andstæðingar Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta og hafa meðal
annars verið ofsóttir og fangelsaðir
af rússneskum stjórnvöldum.
Hópurinn kom hingað til lands
síðasta vor með aðstoð Ragnars
Kjartanssonar listamanns og æfði
í Þjóðleikhúsinu.
„Gjörningar Pussy Riot eru án
efa einhver mikilvægustu póli-
tísku listaverk 21. aldarinnar. Ef
einhverjir listamenn hafa gefið
allt fyrir listina þá eru það þessir
töffarar,“ sagði Ragnar í samtali við
RÚV í gær. n
Pussy Riot sýnir verk í
Þjóðleikhúsinu í vetur
Frá tónleikum Pussy Riot í Los Angeles þann 10. ágúst síðastliðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
40 Menning 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ