Fréttablaðið - 27.08.2022, Page 82

Fréttablaðið - 27.08.2022, Page 82
Ég náttúrlega byrja rétt fyrir Guð blessi Ísland. Svo stóð til að ég myndi slútta þegar Covid brast á. Ég gat bara ekki gert þjóðinni það að hætta strax. Þegar Hlö-vélin er beðin um að skilja eftir traustan lagalista fyrir þá hlustendur sem sitja eftir með sárt ennið í heitum pottum umhverfis landið, segir hann slíkan lista þegar vera til. „Pottapartí-diskurinn sem var sá síðasti í Veistu hver ég var? seríunni stendur alltaf fyrir sínu og ég gerði eitt sinn playlista á Spotify sem heitir Pottapartý Sigga Hlö. Þar er að finna slatta af neðangreindum lögum af þessu þriggja diska meist- arastykki. Diskur 1 - Potturinn 1. Rydeen - Yellow Magic Orchestra 2. Abracadabra - Steve Miller Band 3. Save Me - Clout 4. You’ll Never Know - Hi Gloss 5. Last Night A DJ Saved My Life - Indeep 6. Hallelujah - Milk & Honey 7. What Are You Doing Tonight - Tomas Ledin 8. Maria Magdalena - Sandra 9. You're My Heart, You're My Soul - Modern Talking 10. Couldn’t Get It Righ. - Climax Blues Band 11. Owner Of A Lonely Heart - Yes 12. Don't Stop Believin' - Journey 13. It Started With A Kiss - Hot Chocolate 14. Can't Fight This Feeling - REO Speedwagon 15. Ain’t Nobody - Chaka Khan & Rufus 16. Hold Me Now - Thompson Twins 17. I Want Your Love - Chic 18. Such A Shame - Talk Talk 19. Self Control - Laura Branigan Diskur 2 - Partýið 1. Born To Be Alive - Patrick Hernandez 2. You Think You’re A Man - Divine 3. Fame - Irene Cara 4. Gonna Get Along Without You Now - Viola Wills 5. The Safety Dance - Men With- out Hats 6. Funky Town - Lipps Inc. 7. Celebration - Kool & The Gang 8. Heat Of The Moment - Asia 9. Beat It - Michael Jackson 10. Baggy Trousers - Madness 11. Pop Muzik - M 12. S.O.S. Fire In The Sky - Deodato 13. Never again - Classic Nouveaux 14. Turn Me Loose - Loverboy 15. Save A Prayer - Duran Duran 16. Eyes Without A Face - Billy Idol 17. To Cut A Long Story Short - Spandau Ballet 18. Dancing With Tears In My Eyes - Ultravox 19. Let’s All Chant - Michael Zager Band Pottapartí Sigga Hætt er við að eitthvað kólni í heitu pottunum þegar Siggi fer upp úr. Meistari, meistari kveður. Hlö out! Ekkert mál að úthýsa Michael Jackson Sjálfsagt er stærsta ritstjórnar- lega ákvörðunin sem Siggi Hlö tók á þeim fjórtán árum sem Veistu hver ég var? gekk á Bylgjunni sú að hætta að spila lög með Michael Jackson. Siggi ákvað þetta þegar ásakanir um að poppgoðið hefði áreitt unga pilta kynferðislega komust í hámæli. Þótt Jackson hafi verið frekur til fjörsins og feykivinsæll á því árabili sem þátturinn teygir sig yfir segir Siggi þetta hafa verið ósköp lítið mál. „Já, ég gerði það og það var bara ekkert mál. Það er fólk sem skilur mig ekki og svo er fólk sem skilur mig. Og mér er bara alveg sama, þú veist. Ég á þetta og má þetta,“ segir Siggi sem sér ekki eftir neinu. „Þetta er bara mín persónulega ákvörðun. Ég er svo sem ekki að dæma eitt né neitt en mér líður bara betur með að spila hann ekki.“ Þegar ásakanir um kynferðis- brot Jacksons komu fram af þunga kaus Siggi að vísa 80’s stjörn- unni á dyr. Vinsælasti útvarpsþáttur landsins um langt árabil, Veistu hver ég var?, fer í loftið í síðasta sinn á Bylgjunni í dag og aðdáendur Sigga Hlö. munu sjálfsagt margir hverjir dansa með tárin í augunum þegar meistari, meistari kveður ef að líkum lætur í síðasta sinn með þessum löngu sígilda frasa: Hlö out! toti@frettabladid.is Sítt að aftan gleðin verður nokkuð tregablandin á Bylgjunni frá klukk- an 16 fram að kvöldfréttum og bjór- inn dálítið beiskur í heitu pottunum þegar Siggi Hlö lýkur sínum síðasta Veistu hver ég var? þætti eftir að hafa haldið gleðinni gangandi með tónlist frá árunum 1975 til 1995 frá því skömmu fyrir hrun. „Ég byrjaði í maí 2008 þannig að þetta eru fjórtán ár og einhverjir mánuðir,“ segir Siggi og staðfestir að vissulega hafi hann orðið var við nokkurn harmagrát eftir að hann lét þau boð út ganga að hætta bæri leik þótt hátt hann stæði, eftir allan þennan tíma. „Já, já. Fólk er alveg sorgmætt yfir þessu og ég líka. Ég á eftir að sakna þess að vera ekki á þessum tíma en þetta bara passar ekki lengur inn í mitt líf og mitt starf þannig að þá bara verður maður að taka hefti- plásturinn og rykkja honum af.“ Hættir á toppnum Siggi segir kveðjustundina þó ekki jafn tregafulla og ætla mætti enda gengur hann sáttur frá borði. „Samkvæmt Gallup-könnun held ég að þetta hafi verið vinsælasti þátturinn fyrstu helgina og hann hefur nánast alltaf verið það síðan og er ennþá vinsælasta útvarpsefni á Íslandi. Fréttir og talmál og allt þetta er langt fyrir aftan mig.“ Enda er aldurshópurinn sem hlustar á sígilda tónlistina, sem Siggi hefur gert út á með þessum líka stórgóða árangri, breiður. „Sumir sem eru að hringja inn voru ekki einu sinni fæddir þegar þáttur- inn byrjaði. Pældu í, bara að segja þessa setningu,“ segir Siggi og hlær. „Sumir vita ekki einu sinni hvað 80’s er. Slakiði á! Og svo er þetta bara alveg upp úr.“ Þegar Siggi er spurður hvort hann kunni skýringar á bæði vinsældum tónlistar þessa tuttugu ára tímabils og þáttarins segir hann að það sé af nógu að taka í tónlistinni. „Það er náttúrlega nóg af músík þarna og nóg af tónlistarstefnum en ég hef alltaf sagt að það hafi keyrt mig áfram þannig að ég er búinn að nenna þessu svona lengi er fólkið sem hafði gaman af þessu að mér. Burt með bölmóð og pólitík Það er mitt mesta hrós að fólk nennti að sprella með mér. Aldrei talað um pólitík eða neinn bölmóð. Það var bara lokað á það. Alltaf gaman, allir í góðu skapi og sumir alveg, jú, jú komnir með vel í tána. En aðrir ekki.“ Siggi lýsir þættinum þannig sem hamingjustund þjóðarinnar. „Hægt að gleyma bölmóðnum og hringja í kallinn. Ég segi alltaf að ég hafi bara stungið á einhverju kýli sem var alltaf þarna. Þú veist, ég bjó þetta ekki til. En þetta er bara svona staður í helginni þar sem fólk er komið heim, byrjað að græja steikina og þau sem eru að fá sér rauðvín eða bjór eru svona að opna einn bauk upp úr fjögur. Og ef þú ert í sumar- húsi þá ferðu í pottinn á þessum tíma. Þetta er ekki nýtt. Þetta var búið að vera svona löngu áður en ég byrjaði í útvarpi en allt í einu opnaðist gluggi fyrir fólk að sprella. Hafa gaman og á því hefur íslenska þjóðin þurft að halda nokkur skipti í þessi fjórtán ár. Ég náttúrlega byrja rétt fyrir Guð blessi Ísland. Svo stóð til að ég myndi slútta þegar Covid brast á. Ég gat bara ekki gert þjóðinni það að hætta strax,“ segir Siggi sem telur rétt að láta nú staðar numið. „Það eru mjög margir sem átta sig ekki á því að ég er tvo og hálfan tíma í loftinu á viku og eyði átta til tíu klukkutímum á viku í að undir- búa mig. Ég er með þrettán síðna handrit og þetta eru 750 þættir og það kostar vinnu. Ég er að hætta vegna þess að dagvinnan mín þarf alla mína athygli,“ segir Siggi sem er kominn á kaf í ferðaskrifstofu- bransann. Þreytist ekki á ELO Þegar Siggi er beðinn um að taka til spilunarlista fyrir aðdáendurna sem hann er að skilja eftir í heitu pott- unum vísar hann einfaldlega á þá safndiska sem hann hefur gefið út undir merkjum þáttarins. „Ég fékk náttúrlega gullplötu á þessari vegferð minni og þessir Veistu hver ég var? diskar eru auð- vitað stóri „play listinn“ minn,“ segir hann og hlær áður en hann nefnir sérstaklega lögin Don’t stop believin’ með Journey og Turn me loose með Loverboy sem dæmi um lög sem hann hafi gefið frí eftir ofspilun. „En ég þreytist aldrei á að spila ELO. Líklega langmest spilaða hljómsveitin í sögu þáttarins og þeir bara þreytast ekki.“ n Hlö out – í síðasta sinn Siggi Hlö hefur staðið gleðivaktina með þjóðinni í gegnum súrt og sætt síðustu fjórtán árin en telur tímabært að ljúka keppni þar sem dagvinnan kallar hátt. Einhver söknuður fylgir aðskilnaðinum við símaglaða pottverja en Hlö-vélin kveður sátt og í sínu venjulega stuði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 42 Lífið 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.