Fréttablaðið - 27.08.2022, Page 84
Gamlir plástrar halda
samfélaginu gangandi,
höktandi þó, á svo
mörgum sviðum.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það er því miður ekki hægt að ræða
fréttir vikunnar án þess að minnast
á hörmungarnar á Blönduósi. Margt
er enn óljóst í málinu en þó ekki það
að margir eiga um sárt að binda og
sá skaði sem orðinn er verður aldrei
bættur.
Það er sorglegt að atburðir á borð
við þennan eigi sér stað í okkar
fámenna samfélagi. Í annað skiptið
á innan við þremur mánuðum er
saklaust fólk myrt á Íslandi.
Öllum hlýtur að vera ljóst að það
þarf átak í geðheilbrigðismálum.
En bjartsýnin í þeim efnum er ekki
mikil þegar maður staldrar við þá
staðreynd að um er að ræða lítinn
hluta af heilbrigðiskerfinu í heild.
Nær vikulega yfir lengri tíma
heyrast hjálparköll af Landspítal-
anum þar sem staðan er jafnan sögð
aldrei hafa verið jafnslæm, og virðist
þó aðeins versna. Landsmenn bíða
í vikur eða mánuði eftir tíma hjá
lækni á heilsugæslunni.
Það er svo margt stórkostlegt við
okkar fallega land sem hefur allt til
alls, eintóm tromp á hendi. En samt
getum við ekki spilað spilunum
okkar rétt út. Gamlir plástrar halda
samfélaginu gangandi, höktandi þó,
á svo mörgum sviðum. n
Sorg á Blönduósi
n Frétt vikunnar
Kolbeinn Tumi Daðason
Kolbeinn Tumi Daðason.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
STÓLA
DAGAR
18. - 31. ágúst
20%
afsláttur
af öllum
stólum
Fullt verð: 199.900 kr.
Nú 159.920 kr.
AVIGNON
hægindastóll með skammel
Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum
skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður.
Fullt verð: 169.900 kr.
Nú 135.920 kr.
KOLDING
hægindastóll
með skammel
Stillanlegur hægindastóll
með skemli. Svart, rautt eða
grátt leður/PVC.
Fullt verð: 199.990 kr.
Nú 159.992 kr.
CANNES hægindastóll
með skammel
Vandaður, glæsilegur og þægilegur
hægindastóll með þykku leðri á
slitflötum á sterkum snúnings fæti.
Koníaksbrúnt, svart, grátt
eða rautt leður.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
Björgvin Halldórsson hefur
gefið út lagið Allt sem ég vil
ásamt söngkonunni Stefaníu
Svavarsdóttur. Dúettinn er
alls ekki sá fyrsti sem Björg-
vin gefur út og eflaust ekki sá
síðasti en hann hefur gefið út
þrjár dúettaplötur á ferlinum.
ragnarjon@frettabladid.is
„Þetta lag er búið að vera í pokanum
hjá mér í nokkur ár,“ segir Björgvin
Halldórsson, sem hefur sent frá sér
nýtt lag í samstarfi við söngkonuna
Stefaníu Svavarsdóttur.
Nýja lagið, sem nefnist Allt sem
ég vil, kemur út í dag á öllum helstu
streymisveitum og mun ef laust
hljóma á f lestum útvarpsstöðvum
landsins um helgina.
Lagið sem upp kom aftur og aftur
„Ég er mikið að hlusta á alls kyns
tónlist en þetta þetta lag var alltaf
að koma upp aftur og aftur og aftur
og ég ákvað að það væri bara best
að slá til.”
Aðspurður segir hann að sam-
starf hans og Stefaníu hafi komið
til þar sem þau hafi margoft sungið
saman á tónleikum.
„Svo var hún á Jólagestunum í
fyrra. Mér fannst alveg tilvalið að
hún kæmi inn í þetta því hún er
alveg gjörsamlega frábær söng-
kona. Ein af okkar bestu í dag,“
segir Björgvin, en þetta er vissu-
lega ekki hans fyrsti dúett því hann
hefur áður gefið út þrjár dúetta-
plötur þar sem hann starfaði með
mörgum af þekktustu söngvurum
landsins.
Sjálfur segist Björgvin vera í
miklu stuði þessa dagana enda
loksins komið alvöru „ágústsumar“
en hann segir að ákveðnu tímabili
sé nú að ljúka eftir að faraldurinn
lagðist af.
„Sjálfur fékk ég Covid og varð
frekar slappur bara. En allt í kring,
tónlistarmennirnir sem ég er að
vinna með mikið, það var enginn í
stuði. Það var engin stemning. Svo
maður bara hélt sér til hlés og var
bara að gramsa í lögum og svona.
En núna væntanlega er þetta að
koma,“ segir Björgvin.
Jólagestir úr vör á næstunni
Björgin vinnur nú hörðum hönd-
um að því að koma tónaleikaröð
sinni Jólagestir Björgvins af stað
en tónleikarnir verða nú haldnir í
sextánda skipti þessi jólin.
„Við erum langt komin með
það. Það er búið að velja alla lista-
menn og við erum núna að liggja
yfir lagavalinu með söngvurunum.
Það er allt klárt og verður ýtt úr vör
á næstu dögum eða vikum,“ segir
Björgvin. n
Björgvin er í miklu stuði og
sendir frá sér nýjan dúett
Björgvin Halldórsson er í miklu stuði þessa dagana og fagnar því með glænýju lagi. MYND/AÐSEND
Stefanía Svavarsdóttir vann lagið
með Björgvin en hann segir hana
eina bestu söngkonu landsins um
þessar mundir.
Í Covid var engin
stemning. Svo maður
hélt sér til hlés og var
að gramsa í lögum og
svona. En núna vænt-
anlega er þetta að
koma.
44 Lífið 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ