Fréttablaðið - 31.08.2022, Page 2

Fréttablaðið - 31.08.2022, Page 2
Hundblautt Það rigndi eins og hellt væri úr fötu í miðborg Reykjavíkur í gærdag og dagurinn í dag á ekki að vera mikið skárri. Í kvöld gæti þó glytt í sól. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið benediktarnar@frettabladid.is ALÞINGI Fimm mánuðir eru síðan Sigurður Ingi Jóhannsson inn- viðaráðherra var kærður til for- sætisnefndar fyrir brot á siðareglum Alþingis fyrir ummæli sín um Vig- dísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, í gleðskap tengdum Búnaðarþingi. Varafor- seti forsætisnefndar segir ekkert hafa gerst í málinu frekar. „Það er ekki neitt að frétta. Þetta hreyfist ekkert hjá honum Birgi [Ármannssyni, forseta forsætis- nefndar] sem er ákvarðanafælnasti maður sem ég veit um. Hann þarf alltaf að fá eitthvert annað álit,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þing- maður Pírata. Hann býst ekki við að neitt gerist í málinu þangað til Alþingi kemur aftur til starfa í september. „Nei, líklega ekki, kannski verður eitthvað gert á sumarfundinum sem er í næstu viku,“ segir Björn. Hann segir að önnur mál hafi tekið athyglina, til að mynda sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka og skip- an Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, á Hörpu Þórs- dóttur í embætti þjóðminjavarðar. „Það kemur alltaf eitthvað nýtt í staðinn sem lætur alla gleyma gamla dótinu, kannski er verið að bíða eftir því að enginn skipti sér af þessu,“ segir Björn. ■ Aðgerðaleysi í máli Sigurðar Inga Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra sigurjon@frettabladid.is  MENNING Uppboðshúsið Fold hefur staðið í ströngu við sölu á hátt í þrjú hundruð verkum í eigu Bændasam- taka Íslands sem prýddu Hótel Sögu. Fold hefur nú tvö verk eftir Leif Breiðfjörð til sölu, bæði verkin eru frá árinu 1973 og héngu í Súlna- salnum. Annað listaverkið er metið á tæpar þrjár milljónir króna og hitt á tæpar tvær milljónir króna. Jóhann Ágúst Hansen, uppboðshaldari og framkvæmdastjóri Foldar, segir að þessi listaverk séu þau dýrustu sem seld hafa verið frá Bændasamtök- unum. „Svona er þetta, það er ekkert hægt að gera í þessu,“ segir Leifur Breiðfjörð hlæjandi um söluna. „Þessi verk voru í Súlnasalnum í gamla daga, fólk dansaði undir þessu.“ ■ Hafa selt nærri þrjú hundruð verk Hótel Sögu Í dag verður ráðstefna Sorgar- miðstöðvar um skyndilegan missi. Fagstjóri Sorgarmið- stöðvar segir að margt þurfi að laga þegar kemur að verklagi varðandi skyndilegan missi. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Það er ekki samræmt verklag sem styður aðstandendur eftir skyndilegan missi. Það getur haft áhrif hvaða dagur er, í hvaða hverfi viðkomandi býr, landshluta, hvort það sé reyndur aðili á vakt eða hvort það er sumarfrí. Þetta er því miður svo handahófskennt, ósam- ræmt og ómarkvisst,“ segir Guð- rún Jóna Guðlaugsdóttir, fag stjóri Sorgarmiðstöðvar, en í dag fer fram ráðstefna Sorgarmiðstöðvar um skyndilegan missi. Skyndilegur missir snertir marga og verður á ráðstefnunni fjallað um hann frá mismunandi sjónarhorn- um. Af vettvangi, á vinnustöðum, frá sjónarhóli aðstandenda og í pallborðsumræðum verður þeirri spurning velt upp hvernig hægt sé að gera betur fyrir syrgjendur sem missa skyndilega. Alma Möller landlæknir setur ráðstefnuna sem verður í sal deCODE, Sturlugötu 8, ásamt því að vera streymt en hún hefst klukkan eitt. Guðmundur Ingi Guðbrands- son, félags- og vinnumarkaðsráð- herra, mun fjalla um sorgarorlof. Anton Örn Karlsson, deildarstjóri hjá Hagstofunni, segir frá tölum og staðreyndum. Stefnir Snorrason, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins, segir frá komum slökkviliðsins á vettvang skyndilegs andláts. Rauði krossinn fjallar um sálræna hjálp og Inga Berg Gísla- dóttir, verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis, fjallar um vinnustaði. Kolbeinn Elí Pétursson segir frá sinni reynslu sem aðstandandi af skyndilegum missi áður en Guðrún Jóna kynnir verkefnið Hjálpum48. „Við viljum styðja fólk sem missir skyndilega og við viljum gera það á fyrstu 48 klukkutímunum frá and- láti,“ segir Guðrún Jóna um verk- efnið. „Við viljum byrja smátt og hafa verkefnið vel afmarkað og að þeir sem koma að því séu allir hags- munaaðilar því eins og staðan er núna er ekkert í boði. Heilsugæslan bendir á geðheilsu- teymið sem bendir á Landspítalann og enn aðrir segja að prestarnir séu með þetta á sinni könnu og enn aðrir benda á aðra. Þetta er veruleik- inn. Það benda allir hver á annan,“ segir hún. Guðrún Jóna segist vera spennt fyrir komandi ráðstefnu. „Það upp- lifa of margir ómarkvissan stuðning eða jafnvel engan.“ ■ Skyndileg dauðsföll eru yfir hundrað á hverju ári Skyndilegur missir snertir marga og verður fjallað um hann frá mismunandi sjónarhornum á ráðstefnunni sem fram fer í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Yfir hundrað á ári Anton Örn Karlsson, deildar- stjóri hjá Hagstofunni, mun ræða um tölur og staðreyndir um skyndilegan missi. Hann segir að ekki hafi áður verið teknar saman slíkar tölur. „Við byggjum á flokkun dánarmeina og það sem við sjáum þegar við tökum aldurinn 20-64 ára er að það séu um 117-144 skyndileg andlát á ári frá 2016-2020. Karlar eru fleiri í þessum hópi. Konur eru aðeins um 25 prósent á ári.“ Anton bar saman tölur frá Svíþjóð og er Ísland með svipaðar tölur og frændur vorir. „Núna þegar þetta er birt viljum við gjarnan fá viðhorf fólks um hvort við getum gert betur.“ Eitt verkanna sem voru á uppboði. 2 Fréttir 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.