Fréttablaðið - 31.08.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 31.08.2022, Síða 20
Fram undan er verkefni sem við erum spenntar fyrir, þetta er í okkar höndum og við ætlum okkur þetta HM-sæti. Þetta gerist í raun og veru ekki stærra. Þetta er félag sem vill berj- ast um alla titla sem í boði eru. 16 Íþróttir 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR Berglind Björg Þorvaldsdóttir, atvinnu- og landsliðskona í knattspyrnu, hefur í nægu að snúast þessa dagana. Hún er hluti af landsliðshópi Íslands sem á fram undan úrslitaleiki í undankeppni heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu og þá skrifaði hún nýlega undir samning við franska stór- veldið Paris Saint-Germain. FÓTBOLTI Berglind var áður á mála hjá norska félaginu Brann en eftir aðeins nokkra mánuði í herbúðum félagsins kom kallið frá París þar sem hún skrifaði undir tveggja ára samning. Berglind segir, í samtali við Fréttablaðið, að aðdragandinn að félagsskiptunum hafi verið stuttur. „Forráðamenn félagsins höfðu samband við mig fljótlega eftir Evr- ópumótið. Ég heyrði náttúrulega af áhuga PSG á mér í fyrra og félagið reyndi að fá mig en það gekk ekki upp. Nú gekk þetta upp og ég er bara mjög ánægð með að vera orðin leik- maður þessa stóra félags.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Berglind spreytir sig í Frakklandi. Erfitt að segja nei við PSG aron@frettabladid.is FÓTBOLTI Arnar Bergmann Gunn- laugsson, þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara í Víkingi Reykja- vík, framlengdi í gær dvöl sína hjá félaginu út tímabilið 2025. Víkingar hafa undanfarin ár klifraði upp metorðastigann  í íslenskri knatt- spyrnu og nú berst félagið um titla. Vegferð Arnars með liðið hefur hins vegar ekki alltaf verið dans á rósum. Það er á erfiðu tímunum sem hefur reynt á samstarf Víkinga við Arnar en þá hefur stjórn félagsins haft trú á þeirri vegferð sem hann er á með liðið, það hefur nú skilað sér í glæstum árangri. „Það er ótrúlegt að finna fyrir þessu trausti,“ segir Arnar í sam- tali við Fréttablaðið eftir að hafa framlengt dvöl sína hjá Víkingi Reykjavík. „Stjórn félagsins á stór- an þátt í þessari velgengni okkar. Þegar maður finnur þennan sam- hljóm í vinnunni sinni, og það er sama hvort það er í fótbolta, endur- skoðun eða lögfræði, þá líður manni bara það vel að maður finnur enga ástæðu til að breyta til.“ Á fyrri hluta tíma Arnars með liðið reyndi virkilega á þolinmæði bæði stjórnar og stuðningsmanna en stjórn félagsins sýndi því skiln- ing og hafði trú á hugmyndafræði þjálfarans. „Ég hef alltaf sagt að það reyni aldrei á hugmyndafræði og leik- kerfi þjálfarans fyrr en illa gengur, þá virkilega fara menn að hvísla. Þá þarf þjálfarinn að hafa tiltrú stjórnarinnar með sér og sem betur fer hafði ég það þegar illa gekk hjá okkur.“ Árangri fylgir athygli og Arnar segist hafa heyrt af áhuga annarra knattspyrnufélaga. „Það er bara hluti af þessum leik okkar. Þegar það gengur vel, hvort sem þú ert leikmaður eða þjálfari, þá er alltaf verið að tala um það hvað gæti gerst og tilboð fara að berast. Auðvitað hef ég metnað fyrir því að reyna fyrir mér erlendis en mér liggur bara ekkert á. Ég er hjá félagi núna sem býður mér upp á að berjast um titla, hjálpa leikmönnum og þróa unga leikmenn. Það eru ekki mörg lið sem bjóða upp á það nema að það séu einhverjar óraunhæfar væntingar sem því fylgi. Á meðan svo er, þá er Víkin mjög góður staður til að vera á.“ n Á góðum stað og liggur ekkert á að reyna fyrir sér erlendis Arnar og Kári Árnason tókust í hendur eftir undirskrift. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kvennalands- liðið þurfti að æfa innan dyra í gær vegna veðurs á höfuð- borgarsvæðinu. Liðið er nú í dauðafæri á að komast í fyrsta sinn í sögunni inn á Heims- meistaramótið. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Aron Guðmundsson aron @frettabladid.is Hún var á mála hjá Le Havre þar í landi frá 2020 til 2021. Hún segir góða tilfinningu fylgja því að snúa aftur til Frakklands. „Mér hefur alltaf liðið vel í Frakk- landi en fyrst og fremst er það bara ótrúlega spennandi fyrir mig að vera mætt aftur í frönsku deildina. Hún er mjög skemmtileg og sterk. Nú er ég bara að reyna að koma mér almennilega fyrir þarna úti, leita mér að íbúð og öllu því sem þessum félagsskiptum fylgir. Ég fór strax í æfingaferð með liðinu til Barcelona en ég hef þá allavegana verkefni fyrir höndum þegar landsliðsverk- efninu lýkur.“ Hún segir það hafa heillað sig mest að hafa tækifæri til að spila fyrir jafn stórt félag og Paris Saint- Germain er, sannkallað stórveldi í evrópska boltanum. „Það er erfitt að segja nei við félag eins og PSG. Þetta gerist í raun og veru ekki stærra. Þetta er félag sem vill berjast um alla titla sem í boði eru bæði í Frakklandi sem og í Meistaradeild Evrópu. Þá hefur liðið frábærum leikmönnum á að skipa. Ég veit að ég mun bæta minn leik úti.“ Skilja sátt eftir krefjandi tíma Tími Berglindar hjá Brann fór ekki eins og vonir stóðu til. Hún var mikið meidd þessa mánuði sem hún var á mála hjá félaginu, eitthvað sem hryggir hana nú þegar hún lítur yfir farinn veg. „Við enduðum hins vegar okkar samstarf í góðu. Auðvitað er það erfið staðreynd að kyngja að ég var meidd stóran hluta af tíma mínum hjá félaginu og hvað mig persónu- lega varðar þykir mér það leitt að hafa ekki náð að gefa meira af mér fyrir félagið og liðið. Svona er bolt- inn hins vegar og maður veit aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sér.“ Þó svo Berglind eigi eftir að setja sér persónuleg markmið fyrir tím- ann hjá PSG eru markmiðin hjá liðinu skýr. „Fyrst og fremst vil ég bara hjálpa liðinu að vinna titla. Fram undan eru spennandi tímar og ég hlakka til að hefja þetta verkefni á fullu með félaginu.“ Áður en hún gerir það eru tveir mikilvægir leikir hjá íslenska kvennalandsliðinu í undankeppni HM sem bíða. Ísland er í öðru sæti síns undanriðils, tveimur stigum á eftir Hollandi. Ísland á hins vegar eftir að spila tvo leiki á meðan Hol- land á aðeins einn leik óspilaðan. Sá er einmitt innbyrðis viðureign liðanna tveggja. Full einbeiting á verkefninu Ísland mætir Hvíta-Rússlandi hér heima á föstudag, í leik þar sem stelpurnar okkar ættu að vera sigurstranglegri aðilinn. Vinni þær leikinn verða þær fyrir ofan Hol- land þegar liðin mætast innbyrðis á þriðjudag. Það myndi þýða að Ísland yrði með pálmann í hönd- unum fyrir þann leik. Jafntefli eða sigur myndi duga til þess að vinna riðilinn og tryggja sér farseðil beint á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári. Sigri Holland vandast hins vegar málið. Þá þarf Ísland að fara í umspil um sæti í lokakeppn- inni. „Við komum gríðarlega vel inn í þetta verkefni,“ segir Berglind. „Fram undan er verkefni sem við erum spenntar fyrir, þetta er í okkar höndum og við ætlum okkur þetta HM-sæti.“ Hún segir það ekki trufla liðið að síðari leikur liðsins, gegn Hollandi, sé sá leikur sem á endanum öllu skiptir. „Nei, þetta truf lar okkur ekki. Nú erum við bara með fulla ein- beitingu á leiknum gegn Belarús, þær eru fínar í fótbolta og ég býst við gríðarlega erfiðum leik. Við getum ekki leyft okkur að horfa lengra en akkúrat bara á þann leik fyrst, við verðum að klára hann og í kjölfarið getum við leyft okkur að hugsa um leikinn við Holland.“ n

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.