Fréttablaðið - 31.08.2022, Qupperneq 25
Jesú er til, hann spilar á
banjó ber með sér
nemendabrag sem er
ekki óeðlilegt eða af
hinu slæma.
tsh@frettabladid.is
Óperan Mærþöll eftir Þórunni Guð-
mundsdóttur verður frumsýnd í
Gamla bíói næstkomandi fimmtu-
dag. Óperunni er lýst sem fullorðins
ævintýraóperu og er söguþráðurinn
byggður á Mærþallar sögu, gömlu
íslensku ævintýri.
„Það er svo skemmtilegt að það
eru svo margar kvenpersónur í
þessu ævintýri, þar á meðal þrjár
álfkonur. Það er nú þannig bæði í
leikritum og óperum að það hallar
svo oft á konur, það eru gjarnan
miklu fleiri karlhlutverk. Þannig að
þegar ég fann þessa sögu þá fannst
mér alveg tilvalið að taka hana og
vinna með hana tónlistarlega,“ segir
Þórunn sem skrifar bæði libretto og
tónlist óperunnar.
Þórunn kveðst hafa uppgötvað
Mærþallar sögu í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar og fundist hún vera full
af skemmtilegum uppákomum og
sterkum tilfinningum á borð við
glettni og harm.
„Það eru ýmis minni þarna sem
maður kannast við úr öðrum ævin-
týrum, álög, galdrar og afbrýðisemi.
Svo finnst mér alltaf svo skemmti-
legt með þessi íslensku ævintýri
að það eru oft bara kotungsfólk og
hversdagspersónur sem kynnast
fólki frá hirðinni, prinsum og líka
yfirnáttúrulegum verum eins og
álfum.“
Sönghópurinn samanstendur
bæði af reynsluboltum úr óperu-
heiminum og yngri söngvurum
svo sem Bjarna Thor Kristinssyni,
Hönnu Dóru Sturludóttur, Eyjólfi
Eyjólfssyni, Björk Níelsdóttur, Erlu
Dóru Vogler, Gunnlaugi Bjarnasyni,
Halldóru Ósk Helgadóttur, Heiðdísi
Hönnu Sigurðardóttur, Kristínu
Sveinsdóttur, Lilju Guðmundsdótt-
ur, Ólafi Frey Birkissyni og Þórgunni
Önnu Örnólfsdóttur.
„Það er bara mjög skemmtilegt að
sjá þennan hóp vinna saman því það
virðast allir geta sýnt sínar sterkustu
hliðar. Ég er mjög ánægð með þenn-
an sönghóp og það er valinn maður
í hverju rúmi,“ segir Þórunn.
Meðleik á sýningum annast átta
manna kammersveit, konsertmeist-
ari er Hildigunnur Halldórsdóttir.
Búninga- og leikmyndahönnuður er
Eva Björg Harðardóttir og leikstjóri
er Bjarni Thor Kristinsson.
Að sögn Þórunnar höfðar óperan
bæði til barna og fullorðinna og ætti
alls ekki að einskorðast við þá sem
eru vanir óperuforminu.
„Við höfum fengið fólk á æfingar
og það hafa allir náð að hrífast með
myndi ég segja. Þetta er alls ekki
þannig að maður þurfi að vera
einhver sérfræðingur í óperum til
að geta notið þess að koma. Þetta
er hugsað fyrir fullorðna en ég er
viss að börn geta líka notið þess að
koma.“
Þá segir Þórunn einstaklega
gaman að fá að sýna óperuna
í Gamla bíói þar sem Íslenska
óperan sleit barnsskónum. „Okkur
finnst fara mjög vel um þessa her-
togahöll, þar sem verkið gerist
aðallega, í þeirri höll sem Gamla
bíó er.“ n
Ævintýraópera fyrir alla aldurshópa
Í óperunni Mærþöll koma fram ýmsar skemmtilegar kvenpersónur, þar á
meðal þrjár álfkonur. MYND/EYÞÓR
Þórunn Guð-
mundsdóttir
LEIKHÚS
Jesú er til,
hann spilar á banjó
Hákon Örn Helgason
Tjarnarbíó
Leikstjóri og flytjandi: Hákon Örn
Helgason
Leikarar: Almar Blær Sigurjónsson,
Andrés Pétur Þorvaldsson, Arnór
Björnsson, Jökull Smári Jakobsson
og Stefán Þór Þorgeirsson
Dramatúrg: Magnús Thorlacius
Leikmyndahönnun: Rakel
Andrésdóttir
Tónlist: Inspector Spacetime
Sigríður Jónsdóttir
Leikárið er hafið! Þá er viðeigandi
að kíkja í Tjarnarbíó og sjá hvað
framtíðin ber í skauti sér. Einn
góðan veðurdag er Hákon Örn
Helgason á barmi örvæntingar í
Vesturbæjarlaug. Hann er á bóla-
kafi í langtímabömmer þegar ljúfir
banjótónar svífa allt í einu yfir
vötnum sundlaugarinnar. Á forláta
bekk situr maður, sem minnir hann
á Jesú, í gulri sundskýlu og spilar á
banjó. Hákon uppljómast allur. Hver
er þessi maður? Af hverju er hann
þarna? Finnst manninum þetta ekk-
ert vandræðalegt? Hákon kann ekki
við að nálgast tónlistarmanninn,
sér síðan strax eftir því og ákveður
að hefja rannsókn á málinu.
Hákon Örn er höfundur, leikstjóri
og aðalf lytjandi verksins sem var
útskriftarverkefni hans frá Sviðs-
höfundabraut Listaháskóla Íslands
síðastliðið vor. Sumir þekkja hann
kannski sem meðlim í hinum vin-
sæla uppistandshópi VHS eða
spunahópnum Improv Ísland. Hér
er á ferðinni endurleikin minning,
til að nota hans orð, og svamlar sýn-
ingin á mörkum ýmissa listforma.
Uppistand, leiksýning, tónleikar,
rannsókn …
Leikhús sem rannsóknarstofa
Rannsóknir af öllu tagi eru vin-
sælar hjá yngra listafólkinu um
þessar mundir þar sem sviðslista-
formið er teygt og togað til að skoða
hin ýmsu málefni, svo sem eitraða
karlmennsku, þá ólíklegu hluti sem
fólk geymir í geymslum og sjálfið.
En spyrja má hvort leiksviðið hafi
ekki alltaf verið rannsóknarstofa
fyrir mannlegt eðli. Þarf að skil-
greina og setja sviðslistina fram á
þennan máta?
Hákon reynir að snúa upp á vænt-
ingar áhorfenda í þessum rann-
sóknarleiðangri með því að brjóta
fjórða vegginn, mistakast og taka
sjálfan sig ekki of alvarlega. Að svið-
setja sjálfið er tækni sem þarfnast
reynslu og þekkingar, ekki eingöngu
vettvangur til að f lagga öllu því
sem þér liggur á hjarta hverju sinni.
Nálgunin hér ber vott af yfirborðs-
kennd og kaldhæðni þar sem ekkert
er tekið alvarlega, ekki einu sinni
sýningin sjálf. Því fylgir ákveðin
uppgerð sem birtist í framsetningu
og leikstjórn, þó er húmorinn aldrei
langt undan.
Upprennandi sviðslistafólk
Almar Blær og Andrés Pétur eru
Hákoni til halds og traust á svið-
inu. Þeir eru sömuleiðis að stíga
sín fyrstu skref á atvinnuleiksviði,
með viðkomu í Þjóðleikhúsinu og
Borgarleikhúsinu á síðasta leik-
ári. Viðvera þeirra á sviði er með
ágætum en einkennist einmitt
af ofangreindri uppgerð sem má
skrifa á leikstjórnina og drama-
túrginn. Leynivopn sýningarinnar
er þó hinn geðþekki Andre Negrier,
óvæntur og heiðarlegur andvari inn
í ógrundaðan heim.
Rakel Andrésdóttir hannar leik-
myndina og vonandi fáum við að
sjá meira frá henni á leiksviðinu.
Hönnunin ber með sér skemmtileg
einkenni naívisma og naumhyggju,
einkar vel heppnuð. Egill Gauti
Sigurjónsson, Vaka Agnarsdóttir
og Elías Geir Óskarsson, betur þekkt
sem hljómsveitin Inspector Space-
time, sjá síðan um tónlistina sem er
hressandi viðbót en vannýtt.
Jesú er til, hann spilar á banjó ber
með sér nemendabrag sem er ekki
óeðlilegt eða af hinu slæma. Ungt
listafólk þarf andrými til að prufa
sig áfram í listsköpun sinni, leik-
húsgestir eru hvattir til að fylgjast
með. Listræna vegferðin er löng og
strembin, þá er samt ekki nóg að
leita til áhorfenda fyrir uppklapp
heldur þarf að líta í eigin barm og
skoða hvað skal gefa þeim. n
NIÐURSTAÐA: Sveimandi hug-
leiðingar og góðlátlegt grín ein-
kenna sýningu sem þarf listræna
jörð.
Sveimhuga spæjari í sjálfsleit
Hákon Örn
Helgason leikur
sjálfan sig í
sýningunni Jesú
er til, hann spilar
á banjó.
MYND/EVA ÁGÚSTA
ARADÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2022 Menning 21FRÉTTABLAÐIÐ