Mosfellingur - 13.01.2022, Page 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Mosfellsbær Þverholt 2, 270
Mosfellsbær í samstarfi við Miðstöð hönnunar
og arkitektúrs efnir til opinnar hugmyndasamkeppni
um nýjan miðbæjargarð, upplifunar- og áningarstað
í miðbæ Mosfellsbæjar.
Tilgangurinn er að skapa spennandi svæði
í miðbænum sem íbúar og gestir eiga greiðan
aðgang að. Hugmyndafræði hans miðast út
frá framtíðarsýn bæjarins sem fjölskylduvænt,
heilsueflandi og framsækið bæjarfélag sem setur
umhverfið í öndvegi og hefur þarfir og velferð
íbúa að leiðarljósi.
Skilafrestur til og með 21. mars 2022
Samkeppnin er opin öllum, fagfólki, hönnuðum
og arkitektum í samstarfi við aðra fræði- og faghópa
og er sérstaklega hvatt til þverfaglegrar nálgunar.
Nánari upplýsingar um samkeppnina má finna á
heimasíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs:
www.honnunarmidstod.is
Hugmynda-
samkeppni
um nýjan
Miðbæjargarð
í Mosfellsbæ
Í september síðastliðnum tóku þeir Ólafur
Guðmundsson og Einar Gústafsson við
rekstrinum á veitingastaðnum Blik Bistro
sem rekinn er í Kletti, íþróttamiðstöð Golf-
klúbbs Mosfellsbæjar.
„Við tókum við hér í lok golftímabilsins
og líka veitingasölu í Bakkakoti í Mosfells-
dal. Við höfum síðan þá reynt að vera hug-
myndaríkir hvernig við getum gert hlutina
sem best á þessum skrýtnu tímum.
Við erum báðir í Golfklúbbi Mosfells-
bæjar og sjáum mikla rekstrarmöguleika
hér á þessum frábæra stað, held að það
séu ekki margir veitingastaðir á höfuð-
borgarsvæðinu sem bjóða upp á fallegri
staðsetningu og útsýni,“ segir Ólafur en
þeir félagar hafa mikla reynslu í þessum
geira, Ólafur sem rekstrarstjóri og Einar
sem matreiðslumaður.
Pizzatilboð á fimmtudögum
„Þetta hefur gengið vel og við lítum á
staðinn sem veitingastað fyrir Mosfellinga,
leggjum mikla áherslu á fjölbreyttan og
vandaðan matseðil og framúrskarandi
þjónustu.
Við erum með alls kyns nýjungar, til
dæmis byrjaðir með tilboð á pizzum á
fimmtudögum. Allar pizzur eru þá á 1.990
kr. Við erum alltaf með með eina pizzu vik-
unnar sem er þá ekki á matseðli til að auka
fjölbreytnina og kanna viðtökur.
Það er margt fram undan og ætlum við
að stíla meira upp á beinar útsendingar frá
íþróttaviðburðum og vera þá með tilboð í
samræmi við það,“ segir Einar.
Þorrablót og aðrar uppákomur
Boðið verður upp á fimm rétta matseðil
á bóndadaginn og þann 22. janúar verður
þorrablót á Blik. „Við ætlum að vera dugleg-
ir að nýta þessa sérstöku daga og þar sem
búið er að fresta Þorrablóti Aftureldingar
ætlum við að bjóða upp á að litlir hópar geti
komið hingað í staðinn og blótað þorra.
Einnig ætlum við að vera með uppákom-
ur á Valentínusardaginn og konudaginn.
Þessir viðburðir verða sérstaklega stílaðir
á Mosfellinga svo að bæjarbúar þurfi ekki
að leita út fyrir bæinn til að gera sér glaðan
dag.“
Vínklúbbur
„Það er gaman að segja frá því að við
erum að byrja með í samstarfi við birgjana
okkar, vínklúbb. Það verður þannig að í
hverri viku, líklega á miðvikudagskvöldum
kemur einn af birgjunum og kynnir ákveðin
vín og jafnvel pörun á víni og mat. Hug-
myndin er svo að rétt áður en golftímabilið
byrjar þá höldum við veglegt galakvöld fyrir
meðlimi vínklúbbsins.
Allar upplýsingar um vínklúbbinn og aðr-
ar uppákomur er hægt að nálgast á heima-
síðunni okkar og facebook. Það verður
mikið um að vera hjá okkur og við hvetjum
alla til að fylgjast með,“ segir Ólafur.
Einstakur staður á einstökum stað
„Okkur hefur verið tekið rosalega vel af
klúbbmeðlimum og Mosfellingum öllum.
Það er gaman upplifa þessa skemmtilegu
bæjarstemningu, nálægðina við fólkið og
náttúruna. Við erum með opið kl. 11-22
alla virka daga, við erum með rétt dagsins
og bjóðum fyrirtækjum upp á klippikort
á sérstökum kjörum. Við erum alla vega
spenntir fyrir komandi tímum og hlökkum
til að taka á móti sem flestum Mosfelling-
um,“ segja þeir félagar að lokum.
Fjölbreyttur matseðill og
framúrskarandi þjónusta
Nýir rekstraraðilar á Blik bjóða upp á ýmsar nýjungar
ólafur og einar,
vertar á blik bistro