Mosfellingur - 13.01.2022, Blaðsíða 31

Mosfellingur - 13.01.2022, Blaðsíða 31
Það var árið 2008 sem við „Á allra vörum“ stöllurnar hittum Ásgeir Sveinsson í fyrsta skiptið, en hann var þá framkvæmdastjóri Halldórs Jónssonar ehf., umboðsaðila Dior á Íslandi. Ástæða fundarins var að fá hann til liðs við okkur þegar við undirbjuggum okkar fyrsta átak þ.e. að selja varagloss til styrkt- ar góðu málefni. Markmiðið var að vekja þjóðina til umhugsunar um brjóstakrabba- mein kvenna og safna fyrir lokagreiðslu í nýju brjóstamyndatæki fyrir Krabbameins- félagið. Þrautseigi Ásgeir Það gilda strangar reglur um sölustaði hjá snyrtivörumerki eins og Dior og þegar Ásgeir kynnti hugmyndina fyrir því magn- aða fyrirtæki fékk hann vægast sagt dræmar viðtökur. En hann lét ekki segjast og eftir ótal símtöl og heimsókn til höfuðstöðva fyrirtækisins í París tókst honum að sann- færa fólkið um að taka þátt í þessu einstaka átaki. Þar með fékkst leyfi til að selja Dior í stórmörkuðum, til fyrirtækja og einstakl- inga sem skilaði frábærum árangri og upp- skárum við 20 þúsund seld eintök. Það má fylgja sögunni að Diorfólk hafði svo sann- arlega ekki búist við öðrum eins árangri og botnaði hvorki upp né niður í þessari glossglöðu þjóð. Það er alveg á hreinu að þrautseigja og úthald Ásgeirs hafði allt um það að segja að leyfi fékkst. Pottþétti Ásgeir Við kynntumst Ásgeiri bæði persónu- lega og viðskiptalega á þessu brölti okkar. Í stuttu máli má segja að allt hafi staðist eins og stafur á bók. Við höfum oft talað um það okkar á milli að hann eigi mikið í velgengni Á allra vörum og það sé ekki síst honum að þakka hversu vel okkur tókst að kynna átakið. Það skipti máli að vera með ábyggi- legan samstarfsaðila og getum við þakkað hversu vel var vandað til verka í upphafi og var Ásgeir stór hlekkur í þeirri keðju. Dugnaðarforkurinn Ásgeir Ásgeir starfaði náið með okkur í öllum undirbúningnum, lánaði okkur húsnæði og var boðinn og búinn að létta undir á allan hátt. Við nutum góðs af hans hæfileikum í rekstri og stjórnun auk þess sem alltaf var hugsað í lausnum með þau fjölmörgu verkefni sem komu upp og þurfti að leysa. Hann er skipulagður og hefur einstakt lag á að fá fólk til að vinna með sér, enda lagði hann alltaf áherslu á liðsheild og passaði að allir hefðu hlutverk og væru á réttum stað á réttum tíma, enda tók starfsfólk HJ þátt með okkur af heilum hug eftir hans hvatningu. Áfram Ásgeir Um leið og við þökkum Ásgeiri stuðn- inginn við okkur stöllur í gegnum tíðina viljum við hvetja hann til dáða í baráttunni um leiðtogasæti Sjálfstæðisflokksins í Mos- fellsbæ fyrir næstu kosningar. Þú ert réttur maður á réttum stað og íbúar geta hrósað happi að fá annan eins dugnaðarfork og framkvæmdamann sem oddvita Sjálfstæð- isflokksins í Mosó. Áfram þú, elsku Ásgeir! Gróa, Elísabet og Guðný. Á allra Vörum. Gleðilegt ár kæru Mosfellingar og takk fyrir stuðninginn við okkur í Aftureldingu á liðnu ári. Á sunnu- daginn sl. vorum við í Aftureldingu með okkar árlegu uppskeruhátíð. Hátíðin var smá í sniðum þetta árið en alltaf jafn dásamlegt að fá að taka þátt í að upplifa uppskeru með fólkinu okkar. Hver deild tilnefnir sitt íþróttafólk sem nefnd á vegum Aftureldingar tekur svo að sér að velja úr. Öll sem tilnefnd voru eiga það sammerkt hversu sterkar og góðar fyrirmyndir þau eru og mikið eiga yngri iðkendur okkar það gott að eiga ykkur til þess að líta upp til. Hlutskörpust í kjörinu í ár voru þau Þórður Jökull Henrysson karate og Thelma Dögg Grétarsdóttir blaki, þau hafa bæði skarað fram úr í sinni grein og átt gríðar- lega gott ár. Vinnuþjarkur Aftureldingar er einn af uppáhalds titlunum í mínum huga en við erum svo heppin að eiga marga og góða sjálfboðaliða sem alltaf eru boðnir og búnir, í þetta sinn varð fyrir valinu Haukur Sörli Sigurvinsson. Í mörg ár hefur Haukur verið lykilmaður i meistaraflokksráði karla í handbolta og verið formaður þess síðan 2018. Haukur er harðduglegur og leggur mikinn metnað í störf sín fyrir félagið sitt. Sterk keðja Öll erum við sem komum að Aftureldingu hlekkir í sterkri keðju. Afreksfólkið okkar, allir iðkendur, þjálfarar, sjálfboðalið- ar, velunnarar, styrktaraðilar og Mosfellsbær. Við erum ekkert án hvers annars og í ár þökkuðum við Bakka byggingafélagi sérstak- lega fyrir okkur. Bakki hefur stutt ríkulega við Aftureldingu í um 30 ár og verið okkur ómetanlegur bakhjarl bæði í afreksstarfinu sem og barna- og unglingastarfinu, en án góðra styrktaraðila og velunnara værum við ekki þar sem við erum í dag. Ég ætla ekki að telja alla upp hér sem fengu viðurkenningu enda yrði það langt mál, allar upplýsingar má finna á heim- síðunni afturelding.is, en mig langaði að nefna þessa hér að ofan og þakka fyrir mig og óska ykkur öllum innilega til hamingju. Fram undan er vonandi gott ár hjá okkur og vonandi getum við sem fyrst farið að starfa óhindrað og taka á móti ykkur sem áhorfendum kæru stuðningsmenn af því að það er svo gaman. Það er fátt betra en að tilheyra svona flottum hóp sem Aftur- elding er. Áfram Afturelding, Birna Kristín Jónsdóttir, formaður Aftureldingar. Uppskera Áfram Ásgeir! Ég, Kolbrún Guðný Þorsteinsdóttir, býð mig fram í fyrsta sætið í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins þann 5. febrúar. Ég er kennari og lýðheilsufræð- ingur að mennt og er að ljúka námi í stjórnun menntastofnana. Ég hef setið sem bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í tvö kjörtímabil. Áður var ég varabæjarfulltrúi og formaður fjölskyldunefndar. Nú er ég formaður fræðslunefndar og eiga skóla- málin því stóran part af hjarta mínu. Ég hef búið í Mosfellsbæ frá 9 ára aldri og hér liggja mínar rætur. Ég býð mig fram í fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins því ég hef reynslu, þekkingu og getu til að leiða stærsta stjórnmálaaflið í Mosfellsbæ. Mín sýn Ég vil áfram styðja við okkar mikilvæga skólastarf og halda áfram að byggja upp góða leikskóla. Ég mun halda áfram að styrkja innviðina samhliða fjölgun íbúa eins og nauðsynlegt er. Mikilvægt er að fötluð börn fái þjónustu við hæfi og þarf að endurskoða stefnuna um skóla án aðgrein- ingar. Það krefst samtals við ríkið um meira fjármagn til skólanna fyrir börn sem þurfa meiri stuðning. Ég vil hefja stórsókn í að skapa skilyrði fyrir fyrirtæki sem vilja byggja upp skap- andi greinar eða græna nýsköpun þar sem hringrásarhagkerfið verður í hávegum haft. Mosfellsbær er í góðri stöðu til að bjóða til sín slíkum fyrirtækjum og er atvinnusvæðið í Blikastaðalandi t.d. kjörið til slíkrar upp- byggingar. Fyrsta skrefið verður að móta áræðna atvinnustefnu sem hefur bæði jákvæð umhverfis- og efnahagsleg áhrif fyrir bæjarfélagið. Við ætlum að vera eitt lið Mosfellsbær er fyrsta sveitarfélagið sem varð Heilsueflandi samfélag og vil ég styrkja þá starfsemi enn frekar. Bærinn á að vera leiðandi í heilsueflingu með kröftugum markmiðum eins og fram koma í nýrri lýðheilsu- stefnu bæjarins. Mosfellsbær er íþrótta– og heilsubær umkringdur fallegri náttúru og er fyrsta val fólks sem vill búa, njóta og vinna þar sem slíkar aðstæður eru fyrir hendi. Þá vil ég tengja saman íþróttafélögin, skólana, Reykjalund og atvinnulífið – fella múra og að við verðum eitt lið sem hefur það að markmiði að efla heilsu allra bæjarbúa. Ég treysti mér fyllilega til að leiða þetta mik- ilvæga verkefni því ég veit að það er mikill mannauður í Mosfellsbæ sem vill hefja þennan leiðangur saman. Þannig gerum við Mosfellsbæ að sönnum íþrótta– og heilsubæ. Íþrótta– og tómstundafélögin kalla á meira fjármagn og betri aðstöðu til iðkunar og hefur samráðsvettvangur Aftureldingar og bæjarins sett fram stefnu um uppbygg- ingu að Varmá. Það er metnaðarfullt plan sem vonandi flestir geta sæst á. Það þarf stöðugt að hugsa til framtíðar og halda áfram að byggja upp. Börn og ungmenni hafa mikið val um íþróttir og tómstundir og þannig viljum við að það verði áfram. Það þarf reynslu, þekkingu og dugnað Til að láta drauma okkar rætast þarf kraft- mikla forystu sem hefur reynslu af rekstri sveitarfélagsins. Okkar helsta aðalsmerki hefur verið góð fjármálastjórn og ábyrg- ur rekstur og það verður að vera áfram. Í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins eru einstaklingar með fjölþætta reynslu og bakgrunn. Ég vil leiða þennan hóp til áframhaldandi góðra verka fyrir okkar góða samfélag. Gerum þetta saman. Kolbrún G. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi og fram- bjóðandi í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Forysta með framtíðarsýn Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins: www.mos.is/storf Laus störf í Mosfellsbæ SÆTI Rú r Br i Guðlau sson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ 5. FEBRÚAR 2022 OKKAR BÆR - BETRI BÆR 95D3FF SÆTI Rúnar Bragi Guðlaugsson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ 5. FEBRÚAR 2022 OKKAR BÆR - BETRI BÆR 95D3FF SÆTI Rúnar Bragi Guðlaugsson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ 5. FEBRÚAR 2022 OKKAR BÆR - BETRI BÆR 95D3FF SÆTI Rúnar Bragi Guðlaugsson í prófkjöri Sjálfstæðisflo ksins í Mosfellsbæ 5. FEBRÚAR 2022 OKKAR BÆR - BETRI BÆR 95D3FF Aðsendar greinar - 31

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.