Mosfellingur - 13.01.2022, Blaðsíða 14

Mosfellingur - 13.01.2022, Blaðsíða 14
 - Fréttir úr bæjarlífinu14 Takk fyrir sTuðninginn 30 X 50 CM Félagar í Björgunarsveit- inni Kyndli þakka bæjar- búum fyrir stuðninginn á árinu sem var að líða og óska þeim velfarnaðar á nýju ári.  -Kveðja  félagaríKyndli Þorrablót Aftureldingar hefur verið stærsti viðburður í skemmtana- og menningarlífi Mosfellinga mörg undanfarin ár. Mikil stemming hefur skapast fyrir blótinu og fólk skemmt sér konunglega og ávallt mikil eftir- vænting í loftinu þegar þorrinn nálgast. Á síðasta ári féll þorrablótið niður og nú er spurning hver staðan er. Rúnar Bragi Guðlaugsson og Ásgeir Sveinsson hafa ver- ið forseti og varaforseti þorrablótsnefndar Aftureldingar undanfarin 13 ár, og hafa þeir ásamt hópi af öflugu fólki í þorrablótsnefnd skipulagt þennan vinsæla viðburð allan þann tíma. Fleiri plön á teikniborðinu „Það var mjög leiðinlegt að þurfa að sleppa blótinu í fyrra og því miður eru blik- ur á lofti aftur í ár með þorrablótið,“ segja þeir félagar. „Upphaflegt plan var að halda þorrablót 22. janúar en nú er útséð með að það gangi vegna sóttvarnartakmarkana. Við í nefndinni viljum samt gera allt til þess að þorrablót verði haldið með ein- hverju sniði og við erum með plan B, C og D tilbúið eftir því hvernig staðan í faraldr- inum þróast. Plan B er að halda þorrablótið laugar- daginn 19. febrúar sem er síðasti laug- ardagur í þorra og yrði það þá með hefð- bundu sniði. Plan C er að halda viðburð 26. mars sem yrði með sams konar sniði og þorrablót, en öðruvísi mat og þema. Plan D er að halda viðburð 30. apríl með sama sniði og hefði verið haldið 26. mars. Ein stærsta fjáröflun Aftureldingar „Við finnum fyrir mkilli stemningu fyrir því að halda lífi í þessum viðburði þó svo að það þurfi að fresta honum eitthvað fram á vor og með þessu plani er nefndin að hugsa í lausnum og koma til móts við þær fjölmörgu óskir um að halda stóran styrktarviðburð fyrir Aftureldingu um leið og færi gefst. Mosfellingar eru orðnir spenntir fyrir því að komast á stórt og skemmtilegt djamm, og svo má ekki gleyma því að þetta er ein stærsta fjáröflun Aftureldingar á hverju ári og því mjög slæmt ef þetta fellur niður annað árið í röð. Við verðum bara að vona það besta og við sjálfboðaliðarnir í nefndinni og þeir fjölmörgu aðrir velunnarar Aftureldingar sem koma að þessu á hverju ári verðum tilbúin að setja þetta í gang þegar og ef aðstæður leyfa.“ Þorrablóti Aftureldingar aftur frestað • Hvenær næst? Þorrablótsnefndin með plan A, B, C og D ásgeir og rúnar bragi fara fyrir þorrablótsnefndinni stuð á þorrablóti 2019 Góður svefn í íslenskum ullarfaðmi eykur vellíðan Íslenskar ullarsængur Fáanlegar á Lopidraumur.is Mæðgur gefa sjúkrabílabangsa Hrund Jó- hannesdóttir og Sigríður Hanna dóttir hennar afhentu á dögunum sjúkrabíla- bangsa á slökkvistöð- inni á Skar- hólabraut á dögunum. Þetta er þriðja árið í röð sem þær mæðgur gefa bangsa yfir hátíðarnar. Fallegt verkefni sem jafnvel hvetur fleiri til að gera slíkt hiða sama en bangsarnir geta komið sér vel þegar börn þurfa ferðast með sjúkrabílum. hrund og sigríður hanna vinsælir bangsar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.