Mosfellingur - 13.01.2022, Qupperneq 32

Mosfellingur - 13.01.2022, Qupperneq 32
 - Aðsendar greinar32 25 13 Janúar 2022 MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS 7654 14121110 2120191817 28272624 31 OPNUM AFTUR love and joy VARÚLFUR 25 13 Janúar 2022 MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS 7654 14121110 2120191817 28272624 31 OPNUM AFTUR love and joy VARÚLFUR Dagskrá Bólsins „Brotin loforð alls staðar, brotin hjörtu á dimmum bar, brotnar sálir biðja um far, burt, burt heim.“ Texti Bubba Morthens í sam- nefndu lagi lýsir stöðu fjölmargra sem geta ekki borið hönd fyrir höf- uð sér, átta sig ekki á hvers vegna minna er á milli handanna og ekki sé hægt að bjóða börnum sínum betra viðurværi. Verst er þegar aðilar í sam- félagi okkar gefa sig út fyrir að vera bestir til að veita bjargirnar og þeir langbestu til að gæta fjárhags ríkis og sveitarfélaga án innstæðu. Hefur það verið raunin? Já, svo sannarlega. Flestir stjórnmálamenn, þ.á m. öll vinstri stjórnin 2009-2013, voru tilbúnir að láta almenning borga verðbætur langt umfram það sem eðlilegt var. Aðeins einn aðili kom þarna til móts við fólkið í land- inu, þ.e. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ásamt þeirri ríkisstjórn sem hann stýrði eftir kosningarnar 2013. Á tímabili eftir hrun fjármálakerfisins 2008 mátti sjá fulltrúa margra flokka ganga gegn hagsmunum almennings og voru til- búnir, jafnvel sem þingmenn og ráðherrar, að ganga ansi langt í að brjóta bæði loforð og lög í landinu gagnvart þeim sem þá áttu um sárt að binda og misstu eignir sínar og lífsviðurværi. Nýlega kom ég í pontu í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og gerði athugasemd við brotin loforð meirihlutans í Mosfellsbæ þegar kemur að leikskólagjöldum. Á fundi bæjarstjórnar númer 795, þann 8. desem- ber 2021, vitnaði ég í loforð meirihlutans sem lesa má í málefnasamningi V- og D- lista frá 5. júní 2018 en þar segir orðrétt: ,,Við viljum: að leikskólagjöld lækki um 25% á kjörtímabilinu án tillits til verðlags- hækkana.“ Þess ber að geta að undir þennan mál- efnasamning ritar oddviti VG og Sjálfstæð- isflokksins. Hver er raunin. Jú, raunin er sú að lækkunin nam aðeins 14,3% en ekki 25% eins og lofað var. Í ræðu bæj- arstjórans á fundi nr. 795 í bæjar- stjórn segir aftur orðrétt (feitletrun mín): ,,Sko, varðandi þetta síðasta, lækkun leikskólagjalda þá… þá…he…þá er mér ljúft að svara því. Það vill svo bara til ágæti bæjarfulltrúi að…að það er búið að gera meira en loforðið segir til um. Loforðið segir til um það að lækka leik- skólagjöld um 25% að…að…án tillits til verðlags. Það er að segja að þetta þýðir það að 25 prósentin eru ekki…eru með verðlagsbreytingum inn í. Við erum búin að lækka þau um 5% á ári og sem þýðir þá það að við erum búin að lækka þau meira og sennilega töluvert meira heldur en…heldur en þetta sem stendur í mál- efnasamningnum segir. Þannig að það sé nú á hreinu.“ Undir þetta tók oddviti VG og botnaði ekkert í athugasemd minni, þrátt fyrir að hafa lesið og vitnað sjálfur beint í framan- greindan málefnasamning. Hvað gengur þessu fólki til? Þess ber að geta að þeir sem keppa nú um oddvitasætið í Sjálfstæðisflokknum, formaður bæjarráðs og formaður fræðslunefndar, gerðu enga athugasemd við málflutning þennan. Hvers vegna? Fólk sem gefur sig út fyrir að vera í stjórnmálum verður að taka ábyrgð. Þetta fólk sem að framan er getið er ekki að taka ábyrgð og beinlínis stunda það að ganga gegn eigin samningum og gera illt verra með því að svíkja loforð til kjósenda og reyna að draga fjöður yfir eigin villur, mis- tök og vanþekkingu. Hér er verið að brjóta loforð á barnafólki í Mosfellsbæ. Vilja bæjarbúar kjósa slíkt fólk til framhaldandi valda. Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ Brotin loforð gagnvart barnafólki í Mosfellsbæ „Ef hreyfing væri til í pilluformi þá væri það mest ávísaða lyf í heimi“ Hreyfing snýst um svo miklu meira en að líta vel út. Hreyfing er verkfæri og tól sem getur hjálpað okkur að stuðla að bættri vellíðan. Hreyfing á ekki að vera kvöð og er ég talsmaður þess að maður eigi að finna sér þá hreyfingu sem veitir ánægju og tilhlökkun. Það er vissulega mikilvægt að styrkja sig og iðka þolæfingar, en númer eitt, tvö og þrjú er það að finna sér afþreyingu sem þú hefur gaman af. Þeg- ar við höfum gaman þá verður hreyfingin auðveldari og einfaldar það fyrir okkur að koma hreyfingunni í fasta venju! Það ættu allir að geta fundið skemmtilega afþreyingu við sitt hæfi í dag, þar sem úr- valið hjá okkur á klakanum er svo fjölbreytt og svo margt flott í boði. Þegar hreyfingin er svo orðin að fastri venju, þá má gjarnan fara að huga að hvað við getum gert til að bæta hana og okkur í leiðinni. Þegar við stundum heilsusamlega hreyf- ingu þá stuðlum við að bættri heilsu, vellíð- an og betri lífsgæðum. Við getum í kjölfarið minnkað líkur á kvíða og þunglyndi, vernd- að okkur frá hinum ýmsum sjúkdómum. Einu sinni hélt ég að maður yrði að fá blóðbragð í munninn til þess að ég gæti kallað mína hreyfingu æf- ingu. En sem betur fer þá veit ég betur í dag! Öll hreyfing er af hinu góða og númer eitt, tvö og þrjú er einfald- lega að hreyfa sig. Það skiptir ekki jafn miklu máli hvernig við hreyf- um okkur eða hversu mikið við náum að svitna á meðan á æfingu stendur! Og æfingin þarf ekki standa yfir langan tíma í senn, þar sem talið er að 30 mínútna hreyfing á dag, 5 daga vikunnar geti skipt sköpum fyrir okkur. Ef þú átt ekki hálftím- ann, brjóttu hann þá niður í þrisvar sinnum 10 mín., hér og þar yfir daginn. Hugsum í lausnum, því jú, öll hreyfing skiptir okkur máli. Munið að líkaminn okkar spyr ekki um aldur og fyrri störf þegar hreyfing er annars vegar, heldur mun hormónakerfið okkur losa um vellíðunarhormón um leið og við byrjum að hreyfa okkur. Hvernig væri að hreyfa sig í dag og sjá hvort það losni ekki úr læðingi. Þú hefur engu að tapa, en þú gætir haft margt að vinna! Hvatningarkveðja, Berta Þórhalladóttir Af hverju hreyfum við okkur! Sendið okkur myndir af nýjum Mos­fellingum ás­amt hels­tu upplýs­ingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.