Mosfellingur - 13.01.2022, Blaðsíða 10
- Mosfellingur ársins10
Mosfellingur ársins 2021 er Elva Björg
Pálsdóttir forstöðumaður félagsstarfs eldri
borgara í Mosfellsbæ. Elva Björg er tóm-
stunda- og félagsmálafræðingur og hóf
störf sem leiðbeinandi í handavinnu árið
2010 og tók svo við starfi forstöðumanns
2013 hjá Mosfellsbæ.
„Ég er bara mjög snortin, ég átti alls ekki
von á þessu,“ segir Elva Björg þegar við
tilkynnum henni um nafnbótina.
„Ég er fyrst og fremst þakklát og þið
eruð að koma mér rosalega á óvart. Þetta
er mjög skemmtileg byrjun á árinu og
gaman að fá klapp á bakið. Ég vil auðvitað
tileinka öllum eldri borgurum í Mosfells-
bæ þessa viðurkenningu,“ bætir hún við
þegar hún fréttir að undirskriftalistar hafi
gengið manna á milli með áskorun um að
velja hana Mosfelling ársins. Eldri borgarar
eru greinilega mjög ánægðir með hennar
störf.
Mikilvægt að halda úti starfseminni
„Ég finn fyrir þakklæti í mínu starfi á
hverjum degi og það eru sannkölluð for-
réttindi að vinna með eldri borgurum. Hjá
okkur er gleði alla daga og á bakvið hvert
andlit býr svo mikil saga sem gaman að
er að fræðast um. Það er ekki sjálfgefið að
vinna við það sem gefur manni svona mikið
í lífinu.
Mitt starf er fólgið í því að vera eldra
fólkinu innan handar enda er ég fyrst og
fremst að vinna fyrir þau. Þau eiga jafnan
frumkvæðið að því sem þau vilja gera og í
sameiningu setjum við upp skemmtilega
dagskrá.
Það er auðvitað krefjandi á tímum Covid
að halda starfseminni gangandi en við
höfum náð að halda okkar striki ótrúlega
vel í gegnum þetta allt saman. Stjórnvöld
eru líka búin að greina það að mikilvægara
sé að halda úti starfsemi þessa aldurshóps
en að setja á frost.
Tómstundir eru ekki bara fyrir fólk sem
vill sitja og prjóna. Það er svo margt hægt
að gera og öll viljum við verða gömul og
búa okkur vel í haginn.“
Mest stækkandi hópur í heiminum
„Við erum með góða aðstöðu hér á
Eirhömrum og hefur sveitarfélagið verið
okkur hliðhollt. Öryggisíbúðirnar hér eru
vinsælar og fólk flyst hingað til að minnka
við sig. Gjarnan flyst hingað líka fólk utan
af landi.
Eldri borgurum fer alltaf fjölgandi og er
mest stækkandi hópur í heiminum. Það er
og verður því áskorun að láta þjónustuna
fylgja með.
Starfsemi okkar nær líka langt út fyrir
okkar húsakynni því um alla sveit er eldra
fólk að hreyfa sig eða stunda einhverja af-
þreyingu á vegum félagsstarfsins og félags
eldri borgara í Mosfellsbæ og nágrenni.
Það eru t.d. hópar í World Class í Lága-
fellslaug, að Varmá, Karlar í skúrum og
útifjör víðsvegar svo eitthvað sé nefnt.
Hreyfing er það langvinsælasta hjá eldra
fólkinu í dag enda kynslóðirnar að breytast,
fjölbreytnin að aukast og kröfurnar í takt
við tímann.“
Skemmtilegt að tilheyra hópi
Elva segir mjög mikilvægt að taka vel á
móti nýju fólki. „Ég held að það séu 90%
líkur á að fólk komi aftur eftir að það kem-
ur til okkar í fyrsta skipti. Ég geri engan
mannamun og ég trúi því að það sé ágætis
kostur sem hjálpi mér í starfi.
Samkvæmt skilgreiningunni er félags-
starfið miðað við 67 ára og eldri en öllum
er tekið fagnandi og Mosfellingar hafa alltaf
forgang.
Fókinu finnst skemmtilegt að tilheyra
einhverjum hópi í staðinn fyrir að gera
ekki neitt. Starfið hérna er mjög vel sótt og
sýnilegt öllum sem vilja vera með. Það er
auðvitað leiðinlegt að þurfa banna hitt og
þetta vegna samkomutakmarkana en það
birtir til um síðir.
Þegar ástandið í þjóðfélaginu var hvað
verst hringdum við í alla til að taka stöðuna.
Mér finnst þau ekkert hafa stórkostlegar
áhyggjur enda öll bólusett og flott.
Eldri borgarar í Mosfellsbæ eru bara
algjörir snillingar,“ segir Elva Björg að
lokum.
Mosfellingar geta greinilega hlakkað til
að eldast og taka þátt í fjölbreyttu starfi
eldri borgara í Mosfellsbæ.
Elva Björg Pálsdóttir er Mosfellingur ársins • Félagsstarf eldri borgara vinsælt
Sannkölluð forréttindi að
vinna með eldri borgurum
Elva Björg tekur við viðurkenningunni
úr höndum Hilmars Gunnarssonar
ritstjóra Mosfellings. Styttan er eftir
leirlistakonuna Þóru Sigurþórsdóttur.
Mosfellingum gafst kostur á að tilnefna
þá sem þeim þóttu verðugir að hljóta
nafnbótina Mosfellingur ársins. Fjöldi
tilnefninga barst í gegnum heimasíðu
blaðsins Mosfellingur.is. Mörg skemmtileg
ummæli fylgdu með, eins og sjá má hér
að neðan.
Elín Anna Gísladóttir - Gegnheill
Mosfellingur sem vinnur ötullega að
bættum hag allra. Verðugur fulltrúi Mos-
fellsbæjar á Alþingi. Stóð sig frábærlega í
pontu í fyrstu stefnuræðunni.
Páll Líndal - Palli stóð fyrir Palla
open í maí til styrktar Reykjadal og
Hlaðgerðarkoti. Allur ágóði fór óskiptur til
þessara aðila. Vel gert.
Jóhann Ingi Jónsson - Valinn
knattspyrnudómari ársins. Fékk að
dæma marga af stærstu leikjum ársins
og endaði á að fá þann stærsta, sjálfan
bikarúrslitaleikinn.
Andrés á Hrísbrú - Hann er síðasti
kúabóndinn í Mosfellssveit og alltaf
í góðu skapi.
Þóra Sigurþórsdóttir - Þóra hefur
verið ein vinsælasta leirlistakonan
hér á landi síðustu áratugi. Það eru fáir
sem hafa jafn ríkt hugmyndaflug og Þóra
og er hennar stíll alveg sér á báti.
Haraldur Sverrisson - bæjarstjóri.
Fyrir áralanga varðstöðu um hag
bæjarbúa. Haraldur hefur haldið vel utan
um stjórn bæjarins á góðum og erfiðum
tímum í 15 ár.
Einar Scheving - Höfðingi sem á
skilið nafnbótina fyrir það sem hann
leggur á sig fyrir bæinn okkar og þá
aðallega má nefna handboltann.
Vilhjálmur Þór Matthíasson - Hann
er farsæll viðskiptamaður, góður
vinnuveitandi, gefur til samfélagsins.
Forstjóri Fagverks og Malbikstöðvarinnar.
Fjöldi tilneFninga
2012 Greta Salóme Stef-
ánsdóttir Ævintýralegt ár hjá
söngkonunni sem m.a. keppti
fyrir Ísland í Eurovision.
2011 Hanna Símonardóttir
Sjálboðaliði hjá Aftureldingu
í 14 ár og aðal driffjöðurin í
starfi félagsins.
2018 Óskar Vídalín Kristj-
ánsson Einn af stofnendum
Minningarsjóðs Einars Darra
eftir fráfall sonar hans.
2017 Jón Kalman Stefánsson
Einn fremsti rithöfundur
þjóðarinnar til fjölda ára.
Orðaður við Nóbelinn.
2016 Guðni Valur Guðnason
Kringlukastari og Ólympíufari
sem náði miklum árangri á
stuttum tíma.
2015 Sigrún Þ. Geirsdóttir
Vann það þrekvirki að verða
fyrst íslenskra kvenna til að
synda yfir Ermarsundið.
2009 Embla Ágústsdóttir
Lætur fötlun ekki stöðva sig í að
lifa lífinu. Miðlar af reynslu sinni
og lífssýn.
2008 Albert Rútsson
Athafnamaður sem opnaði
glæsilegt hótel í Mosfellsbæ,
Hótel Laxnes.
2007 Jóhann Ingi Guð-
bergsson Sundlaugarvörður
í Lágafellslaug sem bjargar lífi
tveggja ára stúlku.
2006 Hjalti Úrsus Árnason
Kraftakarl sem frumsýndi
heimildarmyndina um Jón Pál
Sigmarsson.
2005 Sigsteinn Pálsson
Stórbóndi á Blikastöðum sem
fagnaði 100 ára afmæli sínu
á árinu.
2014 Jóhanna Elísa Engel-
hartsdóttir Snéri við blaðinu
og varð fyrsti sigurvegari í
Biggest Loser á Íslandi.
2013 Hljómsveitin Kaleo
Skaust upp á stjörnuhimininn
eftir sína fyrstu plötu og Vor í
Vaglaskógi.
2010 Steinþór Hróar
Steinþórsson Steindi Jr. slær í
gegn með Steindanum okkar
og á vinsælasta lag landsins.
2020 Sigmar Vilhjálmsson
Breytti Arion í veitingastaðinn
Barion og skapaði hverfisstað í
Mosó á skrýtnum tímum.
2019 Hilmar Elísson
Bjargaði sundlaugargesti sem
var við köfun í Lágafellslaug frá
drukknun.