Mosfellingur - 13.01.2022, Blaðsíða 18
- Minning um Maríu Guðmunds18
María Guðmundsdóttir vinkona okkar er fallin frá.
Hún María var merkileg kona, dugleg, ósérhlífin
og hafði alltaf ráð undir rifi hverju. Hjá Maríu voru
engin vandamál, bara lausnir og sumar sterkari en
aðrar.
Nú, þegar María tekur sviðið með trompi á öðrum
vígstöðvum, minnumst við hennar með söknuði en
einnig gleði. María hefði alls ekki viljað að hennar væri
minnst með gráti og gnístran tanna – hún vildi að fólk
héldi sönsum og hefði gaman. Eins og Oddur Bjarni
Þorkelsson sagði svo eftirminnilega við útför Maríu:
„Hún kunni svo sannarlega að leika sér hún María.“
Það er hverju orði sannara.
María gekk til liðs við Leikfélag Mosfellssveitar árið
1994. Hún hafði þá nýlokið ævistarfinu sem yfir-
hjúkrunarfræðingur á Reykjalundi. Hún kom reynd-
ar alls ekki tómhent af reynslu inn í félagið því hún
hafði um árabil haft umsjón með alls kyns félagsstarfi
og skemmtunum tengdum starfi sínu á Reykjalundi.
María lá aldrei á liði sínu, hún gerði nákvæmlega
það sem þurfti að gera. Hvort sem um var að ræða
smíði leikmyndar, leikrita- og sketsaskrif, stjórnun eða
miðasölu var María mætt og leysti málið á einfaldan
og átakalausan hátt.
Hún sagði það sem henni fannst og færði fyrir því
rök. Oftar en ekki urðu tillögur hennar að veruleika.
Síðustu tíu árin eða svo var María framkvæmdastjóri
Leikfélags Mosfellssveitar. Þar nutu félagsmenn reynslu
og þekkingu Maríu félaginu til heilla.
María Guðmundsdóttir var löngu orðin landsfræg
fyrir hlutverk sín í kvikmyndum, skemmtiþáttum og
á sviðinu í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ en það var
hennar staður í leiklistinni.
Það var alltaf líf og fjör í kringum Maríu, meira að
segja í jarðarförinni lét hún kirkjugesti hlæja og það
hefði hún svo sannarlega viljað. Alls staðar þar sem
María kom minnast vinir hennar sem einstakrar konu,
blíðri, ákveðinni, hugdjarfri og ljúfri. Hún gaf meira en
hún þáði.
Við segjum bless bless (en bara í bili) og tu,tu.
VinirúrLeikfélagiMosfellssveitar
inning María Guðmundsdóttir 9. nóvember 1935 - 14. desember 2021