Mosfellingur - 13.01.2022, Qupperneq 33
verslum í heimabyggð
Aðsendar greinar - 33
Þverholti 3 - Sími: 566-6612
FÓTAAÐGERÐASTOFA
MOSFELLSBÆJAR
Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200
www.artpro.is
Opnunartími
sundlauga
lágafellslaug
Virkir dagar: 06.30 - 21.30
Helgar: 08:00 - 19:00
Varmárlaug
Virkir dagar: 06.30-08:00 og 15:00-21:00
Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00
GÓÐiR mENN EHF
Rafverktakar
GSM: 820-5900
• nýlagnir • viðgerðir
•
• hönnun og uppsetning á öryggiskerfum
• síma og tölvulagnir
Löggiltur rafverktaki
Vogatunga 51, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600
Gólfefna lausnir
fyrir heimili
og fyrirtæki
Stundum fer ég út að hlaupa, ég hleyp
hvorki hratt né langt.
Oftast segi ég við sjálfan mig áður
en ég fer út að hlaupa „taktu því bara
rólega Kári minn“ og reyni ég að fylgja
því eftir.
Ég keypti mér hlaupaskó fyrir ekki
svo löngu sem eru gerðir fyrir hlaup á
malbiki. Þar sem ég bý í Mosfellsbæ,
í gömlu, rótgrónu hverfi hefði ég betur átt að
kaupa mér utanvegahlaupaskó þrátt fyrir að
ætla að hlaupa hérna innanbæjar.
Gangstéttir innan sumra hverfa Mosfellsbæj-
ar eru í hræðilegu ásigkomulagi. Oftar en ekki er
ég að hlaupa á gangstétt og reynir þá þyrnirunni
að fella mig sem vex úr 15 ára gamalli sprungu
á gangstéttinni.
Guð hjálpi mér ef ég skyldi svo mæta annarri
manneskju á þessum kindastígum. Ef
svo færi þyrfti ég annaðhvort að fleygja
mér inn í næsta garð eða hreinlega út
á götu.
Mosfellsbær er fallegur bær og eft-
irsóttur staður til að búa á fyrir ungar
fjölskyldur. Leikskólar í Mosfellsbæ
eru í fremstu röð og komast flestir inn
á ungbarnadeild í kringum eins árs
aldur barns.
Hinsvegar þarf að fara mjög varlega með
þetta blessaða barn út að labba og helst að vera
reiðubúinn að fleygja vagninum inn í næsta
garð við fyrstu mannamót.
Af hverju þarf þetta að vera svona?
Kári Sigurðsson – Gefur kost á sér í annað sæti
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.
Hvort er Mosfellsbær að gleyma
eða hunsa viðhald á gang-
stéttum í rótgrónum hverfum?
Það eru spennandi kosningar fram
undan til bæjarstjórnar hér í Mosfells-
bæ. Ég hef ákveðið að beita mér örlítið í
baráttunni því ein öflugasta manneskja
sem ég hef verið svo lánsöm að kynn-
ast, hún Kolbrún G. Þorteinsdóttir,
er að berjast um toppsætið í stærsta
stjórnmálaaflinu í bæjarfélaginu, Sjálf-
stæðisflokknum.
Fyrir vinstri manneskju eins og mig hefur
verið kvalafullt að fylgjast með pólitíkinni
undanfarið. Máttlausri kosningabaráttu Sam-
fylkingarinnar og ósigrum svo og stuðningi VG
við persónulega viðskiptahagsmuni útgerðar-
furstanna. Og þá vaknar spurningin um hvort
atkvæði manns sé dæmt til að vera alltaf kastað
á glæ.
Í framhaldi af þessu hef ég velt fyrir mér
hvernig ég geti haft áhrif á samfélag mitt. Því
hef ég ákveðið að beita mér fyrir því að koma
Kolbrúnu í fyrsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum
í þeirri von að fá öfluga framsækna konu í bæj-
arstjórastólinn. Hér er gott að búa og ala upp
börnin sín og það hefur verið haldið vel utan
um bæjarmálin hér með Sjálfstæðisflokkinn í
meirihluta í bæjarstjórn. Nokkuð sem ég verð
að viðurkenna hvar svo sem pólitískar línur
mínar liggja.
En hvað er ég að velja fyrir mig og bæinn
minn þegar ég set Kolbrúnu í 1. sætið?
Ég er að velja konu sem lýsir sjálfri sér sem
„skólamanneskju“ fyrst og fremst. Ég er að velja
framsækna manneskju sem vill tala við fólk til
að komast að góðri niðurstöðu.
Og ekki síst þá er ég að velja formann fræðslu-
nefndar Mosfellsbæjar til frekari áhrifa. Sjálf er
ég kennari og á 3 börn í tveimur skólum í Mosó
og vinn í þeim þriðja. Ég þekki marga frábæra
kennara og duglegt starfsfólk innan skólanna
og ég vil manneskju til frekari áhrifa sem skilur
og styður þetta mikilvægasta verkefni
bæjarins.
Sjáðu til lesandi góður. 60% af fé
Mosfellsbæjar fer í að reka skólana og
80% af þeim sem eru á launaskrá hjá
bænum eru að vinna í skólunum. Og
Kolbrún er kennari sem brennur fyrir
einmitt þessu langstærsta verkefni allra
bæja; velferð barnanna, skólunum þar
sem þau ala manninn flesta virka daga ársins
og starfsfólki bæjarfélagsins sem heldur uppi
þessu mikilvæga starfi. Þetta er það sem skiptir
máli. Samfélög snúast fyrst og síðast um að ala
upp börnin okkar. „It takes a village to raise a
child“ eins og sagt er. Því er svo mikilvægt að
fá manneskju í fyrsta sæti í stærsta stjórnmála-
flokknum sem leggur áherslu á einmitt þetta
risamál.
Þau sem sækjast eftir 1. sætinu eru hvort úr
sinni áttinni.
Annars vegar er framsækinn og mælskur
kennari og lýðheilsufræðingur sem vill slá
skjaldborg um skólana í bænum. Hún þekkir
þá út og inn sem formaður fræðslunefndar og
hefur líka áratuga reynslu af bæjarpólitíkinni.
Hún er skarpgreind og raunsæ með báða fætur
á jörðinni en hefur aldrei gleymt að láta hjartað
ráða för. Hins vegar er maður sem hefur ekki
reynslu af skólamálum.
Hvar sem þú ert á hinu pólitíska litrófi, getur
þú haft áhrif. Það er mikilvægt að manneskjan
sem leiðir lista stærsta stjórnmálaflokksins sé
með puttann á púlsinum í málaflokknum sem
er svo mikilvægur fyrir okkur öll. Skelltu þér í
prófkjör Sjálfstæðisflokksins og settu Kolbrúnu
G. Þorsteinsdóttur í fyrsta sætið. Fyrir skólana
og fjölskyldurnar. Gleðilegt ár og gleðilegar
kosningar!
Ólöf Guðmundsdóttir
Mosfellingur og kennari í Varmárskóla
Setjum Kolbrúnu kennara í fyrsta
sætið hjá Sjálfstæðisflokknum!
www.fastmos.is
586 8080
Sími:
Viltu selja?
Hafðu
samband
Svanþór Einarsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is