Mosfellingur - 13.01.2022, Side 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Í eldhúsinu
MarkMið
ársins
Sæl verið þið og gleðilegt nýtt ár. Þið
þekkið þetta flestöll, nýtt ár ... nýir tímar
... ný markmið og syndirnar gömlu
verða strikaðar af verkefnalista ársins
um leið og klukkan slær tólf á miðnætti
á gamlársdag. Sumir kalla þetta að
strengja áramótaheit en í dag þykir það
flottara hjá Instagram-prinsunum og
Instagram-drottningunum að segja „að
setja sér markmið“.
Ég er nú á því að það er mjög gott að
setja sér markmið fyrir árið hvort sem
við köllum það áramótaheit eða eitthvað
allt annað. Markmiðin geta vissulega
verið margvísleg en flest eru þau þó á
þá leið að venja sig af slæmum ávönum
hvort sem það er að minnka tóbakið,
lyfta sjaldnar glösum eða hrista af sér
spikið. Nú eða gera eitthvað geggjað og
skemmtilegt á nýja árinu, verða betri
manneskja og allt það.
En það fer nú allt eftir því hvaða
beinagrindur við felum í skápunum
góðu. Sjálfur hefði ég nú gott af því því
að taka skurk í þessu öllu saman, taka
rækilega til í beinagrindaskápnum og
venja mig af vondum siðum. Hætta að
taka í vörina, lyfta sjaldnar glösum ...
nema þá vatns- eða mjólkurglösum,
hreyfa sig hressilega og hætta að vera
svona skapstyggur og morgunfúll.
Einn góður vinnufélagi minn hafði
orð á því fyrir nokkrum árum að betra
væri að sleppa því að tala við við mig
milli klukkan 7 og 10 á morgnana vegna
skapbresta sem gera vart við sig hjá
mér fyrripart dags og æskilegra væri að
vesenast í mér þegar nálgast hádegi.
Ég sagði honum náttúrlega að
grjóthalda kjafti og fara aftur að vinna
og reyna að koma einhverju í verk enda
klukkan ekki orðin tíu og það væri nóg
að gera.
En batnandi mönnum er best að lifa
og vonandi verð ég valhoppandi um öll
fjöll á nýja árinu í góðu skapi með bros
á vör og ekki með í vörinni og bergvatn í
brúsa ... En ég lofa þó engu með bjórinn,
tökum þetta í litlum skrefum.
Grétar og Eva Ósk skora á Kollu Höllu og Elvar að deila næstu uppskrift
Eva Ósk Svendsen og Grétar Hauksson
deila að þessu sinni með okkur lamba-
lundauppskrift frá æskuheimili Evu sem var
kallaður föstudagsmaturinn.
Hráefni:
• 500 gr - 1 kg lambalundir
• 200-300 gr sveppir
• Rauð paprika
• 3 dl matreiðslurjómi
• 2-3 msk soyasósa
• 3-4 dl hveiti
• 1 tsk paprikuduft
• 1 teningur af lambakjötkrafti
Aðferð:
Hreinsa sinar og himnu af lundunum og
skera í þunna bita (2 cm sirka). Hveiti
og paprikudufti blandað saman í skál og
kryddað með salti og pipar eftir smekk.
Lundabitunum er velt upp úr hveitiblönd-
unni og snöggsteiktir á pönnu þar til brúnir
á öllum hliðum og svo settir í pott. Skerið
sveppi niður í sneiðar og paprikuna í frekar
smáa bita. Steikið grænmeti á pönnunni
þar til það er orðið mjúkt og hellið síðan
rjómanum yfir. Látið krauma þar þangað til
rjóminn þykknar. Hellið síðan af pönnunni
yfir í pottinn. Setjið 2 dl af vatni á pönnuna,
látið suðuna koma upp og hrærið aðeins
til að ná öllu af pönnunni. Hellið síðan í
pottinn. Setjið pottinn á hita, hrærið í inni-
haldinu og látið suðuna koma upp rólega.
Bætið einum tening af lambakjötkrafti í
pottinn sem og soyasósu. Látið krauma í
7 mínútur. Borið fram með hrísgrjónum og
hvítlauksbrauði.
Verðiykkuraðgóðu
högni snær
Lambalundir
hjá evu og grétari
Eysteinn Óli Aronsson fæddist
20. júní 2021 kl. 01.05 á land-
pítalanum. Hann var 4.670 g
og 55 cm. Foreldrar hans eru
Írena Eva Guðmundsdóttir og
Aron Eyrbekk Gylfason.
heyrst hefur...
...að Simmi Vill sé farin út úr Hlölla-
bátum og Barion Mosfellsbæ.
...að Íris Aristó-tútta hafi farið 200
ferðir á Úlfarsfell árið 2021.
...að ekkert hafi orðið úr flugeldasýn-
ingu sem átti að vera á þrettándan-
um þrátt fyrir samkomutakmarkanir.
...að búið sé að fresta þorrablóti
Aftureldingar en gælt er við að halda
eitthvað þegar samkomutakmörk-
unum léttir.
...að sinueldar hafi víða komið upp
í Mosfellsbæ um áramótin og oft
mátti litlu muna að illa færi.
…að söngkonan Helga Möller sé
komin í framboð í Mosfellsbæ.
...að Bjarki Steinn hafi spilað sínar
fyrstu mínútur í efstu deild á Ítalíu
um helgina þegar lið hans Venezia
mætti Zlatan og félögum í AC Milan.
...að knattspyrnumaðurinn Arnór
Gauti sé að skoða aðstæður í Noregi
fyrir næsta tímabil.
...að fresta þurfti fyrsta handboltaleik
ársins hjá stelpunum vegna covid-
smits í liðinu.
...að barn hafi fæðst í heimahúsi í
Mosfellsbæ á jóladag.
...að Haukur Sörli hafi verið valinn
vinnuþjarkur Aftureldingar á
uppskeruhátíðinni.
...að söngkonan María Ólafs og
Gunnar Leó eigi von á barni.
...að Hannes pípari verði fertugur
um helgina.
...að verið sé að starta vínklúbbi á Blik
sem starfræktur verður vikulega.
...að Hildur Ýr og Aron eigi von á barni
í sumar.
...að búið sé að fresta árlegu
herrakvöldi Lions til 18. mars.
...að handknattleiksmaðurinn Birkir
Ben sé búinn að semja við Nice í
Frakklandi og yfirgefi því Aftureld-
ingu eftir tímabilið.
...að Mosfellingurinn Óli Valur og
Fastefli hafi átti vinningstillöguna
um 800 milljóna uppbyggingu á
Sementsreitnum á Akranesi.
...að Ingólfur í Mosraf hafi orðið
áttræður um helgina.
...að baráttan um oddvitasæti Sjálf-
stæðisflokksins fari harðnandi en
Ásgeir Sveins og Kolbrún Þorsteins
berjast þar um efsta sætið.
...að eldri borgarar í Mosfellsbæ hafi
skilað um 150 undirskriftum og
skorað á bæjarblaðið að velja Elvu
Björgu Mosfelling ársins.
...að Loftorka hafi átt lægsta tilboðið
í áframhaldandi breikkun Vestur-
landsvegar í gegnum Mosfellsbæ.
...að Afturelding og Elding deili nú
um „litlu Eldingu“ að Varmá.
...að íbúar í Bónusblokkinni kvarti
sáran yfir bílastæðum og þeim sem
leggja fyrir bílastæðakjallarann.
mosfellingur@mosfellingur.is
- Heyrst hefur...36
Kristinn Pedersen lést úr Covid síðastliðið sumar. Nokkrir fastagestir og félagar á
Ásláki létu mála af honum mynd sem afhjúpuð var á dögunum.
Kiddi var meðlimur í Bæjarrónafélagi Mosfellsbæjar í meira en áratug og mætti oft
að horfa á fótboltann á Ásláki. Hann bjó í Mosfellsbæ undanfarin 15 ár og var einnig
fastagestur í Lágafellslaug og kom þar nær daglega. Þá starfaði hann sem lögreglu-
maður í rúm 40 ár. Myndina málaði Eyjamaðurinn Gunnar Júlíusson.
Kiddi Ped afhjúpaður
Erla Viðarsdóttir, ekkja Kristins
ásamt þremur af sex börnum
hans, Helgu, Hafsteini og Evu.