Mosfellingur - 07.04.2022, Qupperneq 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
Fermingar verða 9. apríl, pálmasunnu-
dag 10. apríl, skírdag 14. apríl og sum-
ardaginn fyrsta 21. apríl í kirkjunum
okkar.
Pálmasunnudagur 10. apríl
Sameiginlegur sunnudagaskóli kl. 13
í Brautarholtskirkju, Kjalarnesi. Þema:
Sólgleraugna sunnudagaskóli í sam-
starfi við Reynivallasókn. Mosfellingar,
Kjalnesingar, Kjósverjar og öll hvött til
að mæta!
Föstudagurinn langi 15. apríl
Guðsþjónusta kl. 17 í Mosfellskirkju.
Píslargöngu og krossfestingar Jesú
Krists minnst í tónum og lestri biblíu-
texta. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir leiðir
stundina. Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur undir stjórn Þórðar organista.
Sellóleikari: Kristín Lárusdóttir.
Páskadagur 17. apríl
Hátíðarguðsþjónusta á páskadags-
morgni kl. 8 í Lágafellskirkju. Sr. Arndís
Linn. Kirkjukórinn syngur. Einsöngvari:
Sigrún Hjálmtýsdóttir. Fiðluleikari:
Sigrún Harðardóttir. Páskakaffi í
skrúðhúsinu að athöfn lokinni.
sunnudagur 24. apríl
Guðsþjónusta kl. 11 í Mosfellskirkju.
Sr. Arndís Linn þjónar.
vorhátið barnastarfsins 8. maí
Lokastund barnastarfsins í Lágafells-
kirkju kl. 13. Söngur, saga, leikrit o.fl.
Dísella vann Grammy-
verðlaun í Las Vegas
Mosfellingurinn Dísella Lárusdóttir
hlaut Grammy-verðlaun fyrir bestu
óperuupptökuna, en Dísella lék
burðarmikið hlutverk í óperu Philips
Glass: Akhnaten, undir hljómsveit-
arstjórn Karenar Kamensek. Dísella
sem er sópransöngkona er alin
upp í Mosfellsbæ, en hún er dóttir
Lárusar Sveinssonar trompetleikara
og leikkonunnar Sigríðar Þorvalds-
dóttur. Verðlaunin voru veitt við
hátíðlega athöfn í Las Vegas, Dísella
klæddist glæsilegum bleikum kjól
eftir klæðskerann G. Elsu. „Þetta er
ótrúlega þýðingarmikið, svakalegur
heiður og efst í huga er endalaust
þakklæti. Ég er eiginlega orðlaus
bara,“ sagði Dísella við tækifærið.
Hreinsunarátak í
Mosfellsbæ hefst
Dagana 13. apríl – 4. maí fer fram
hreinsunarátak í Mosfellsbæ enda
vorið á næsta leiti. Á því tímabili
eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til
að huga að umhverfinu og hreinsa
í kringum hús sín og nánasta
umhverfi. Gámar fyrir garðaúrgang
verða aðgengilegir á þessu tímabili
í hverfum bæjarins. Þá fer einnig
fram þvottur og sópun gangstétta
og gatna bæjarins. Í fyrstu verða
stofngötur og stígar ásamt stofnana-
plönum sópuð og í framhaldi verður
farið inn í hverfi bæjarins og verða
merkingar settar á áberandi staði
áður en sú vinna hefst. Helgina 22.
– 24. apríl verður ráðist í hreinsun-
arátak á opnum svæðum bæjarins
og meðfram nýbyggingarsvæð-
um. Afturelding og skátafélagið
Mosverjar munu að venju aðstoða
við hreinsunina og taka vel til
hendinni. Allir íbúar Mosfellsbæjar
eru hvattir til að taka þátt.
Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskól-
anna í Mosfellsbæ var haldin í Helgafells-
skóla fimmtudaginn 24. mars.
Þar kepptu til úrslita 12 nemendur úr 7.
bekk í þremur grunnskólum Mosfellsbæjar,
Helgafellsskóla, Lágafellsskóla og Kvíslar-
skóla.
Úrslit urðu þau að Victoria Líf Pedro úr
Kvíslarskóla varð í fyrsta sæti, Elín Adriana
Biraghi úr Kvíslarskóla varð í öðru sæti og
Halldór Ingi Kristjánsson úr Lágafellsskóla
í því þriðja.
Keppendur lásu brot úr sögunni Víti í
Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason
og ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur. Auk
þess lásu keppendur ljóð sem þeir völdu
sjálfir.
Nemendur í Listaskóla Mosfellsbæjar
sáu um tónlistarflutning og nemendur frá
Kvíslarskóla og Lágafellsskóla lásu ljóð á
swahili og pólsku.
Upplestrarkeppni grunnskólanna í Mosfellsbæ • 7. bekkingar keppa úr þremur skólum
Victoria líf sigraði upplestrar-
keppni grunnskólanna
Halldór ingi, Victoria líf og elín adriana
lentu í efstu þremur sætum keppninnar
Vinna við heildstæða endurgerð fyrstu
hæðar Hlégarðs lauk á dögunum og verður
húsið opið fyrir bæjarbúa sunnudaginn 10.
apríl frá kl. 13 til 16..
Í fyrsta áfanga var fyrsta hæð endurgerð,
skipt var um öll gólfefni, lagnir endurnýj-
aðar, salerni endurnýjuð og hæðin öll inn-
réttuð á ný með ljósri eik til samræmis við
upphaflegt útlit hússins.
Hlégarður er teiknaður af Gísla Halldórs-
syni arkitekt og var þess sérstaklega gætt að
halda heildaryfirbragði hússins í samhengi
við höfundareinkenni byggingarinnar og
sögu þess. Samhliða var það að markmiði
að breytingarnar yrðu til þess að auka nota-
gildi hússins.
nýttu myndir frá fyrr tíð
„Hlégarður er okkur Mosfellingum mjög
mikilvægt hús og það hefur verið gaman
að fylgjast með þeirri umbreytingu á að-
stöðu til viðburðarhalds sem endurgerður
Hlégarður felur í sér. Við fórum þá leið að
skoða hönnun og sögu hússins, nýttum
myndir frá fyrri tíð sem geymdar eru á
Héraðsskjalasafninu,“ segir Haraldur Sverr-
isson bæjarstjóri.
„Þannig verður héðan í frá unnt að halda
tvo til þrjá viðburði á sama tíma með bættri
lokun milli rýma. Hin hliðin á þeim þætti er
síðan að unnt verður að opna betur á milli
rýma þegar aðstæður kalla á það.“
Opið hús fyrir bæjarbúa
„Í upphafi stóð til að fara eingöngu í
fyrsta áfanga endurgerðar Hlégarðs en
ákveðið var að flýta nokkrum verkþáttum
sem tengjast öðrum áfanga sem er end-
urgerð annarrar hæðar og við því komin á
rekspöl í öðrum áfanga.
Ég vil nota þetta tækifæri til þess að
hvetja íbúa til að mæta í opið hús næsta
sunnudag milli kl. 13 og 16,“ segir Harald-
ur.
Fyrsta áfanga endurgerðar á Hlégarði • Opið hús á sunnudaginn kl. 13-16
endurgerð á Hlégarði lokið
miklar endurbætur
Hafa átt sér stað