Mosfellingur - 07.04.2022, Qupperneq 6

Mosfellingur - 07.04.2022, Qupperneq 6
 - Fréttir úr bæjarlífinu6 Dagný Kristinsdóttir er nýr oddviti • Nýir vendir sópa best • Stefán Ómar neðar á lista Kynslóðaskipti í forystu- sveit Vina Mosfellsbæjar Dagný Kristinsdóttir tekur við af Stefáni Ómari í forystu Vina Mosfellsbæjar. Dagný hefur búið í Mosfellsbæ síðan 2004, gift Hauki Erni Harðarsyni og eiga þau þrjú börn. „Ég er menntaður grunnskólakennari, með meistarapróf í Forystu og stjórnun og viðbótar diplómu í Opinberri stjórnsýslu. Ég hef starfað innan skólakerfisins síðan árið 2007 en í dag starfa ég sem skólastjóri Hvassaleitisskóla í Reykjavík, það er krefjandi en um leið afskaplega skemmtilegt og gefandi starf.“ „Í rúman áratug hef ég haft það að leiðarljósi að stíga út fyrir þægindarammann og segja já við áskorunum. Það hefur leitt mig á nýjar slóðir, eins og þær sem ég feta nú. Góður maður sagði að það væri gott að búa í Kópavogi – en það er líka gott að búa í Mosfellsbæ. Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til að bæta samfélagið og gera bæinn okkar enn betri til að búa í.“ Tilbúin að leggja mitt af mörkum Vinir Mosfellsbæjar er óháð framboð, skipað íbúum sem vilja bænum sínum allt það besta. Fólkið sem skipar listann kemur úr ýmsum áttum, það er með margvíslega reynslu og menntun. „Við eigum það sameiginlegt að vilja styrkja sam- félagið og innviði stjórnsýslunnar og starfa í þágu bæjarbúa. Leiðarljós okkar eru að handleika mál af heiðarleika, leita þekkingar í allri ákvarðanatöku og ástunda lýðræðislega umræðu og gagnsæi.“ Kynslóðaskipti verða í forrystusveit Vina Mosfellsbæj- ar þar sem Stefán Ómar Jónsson, oddviti listans síðustu fjögur ár, færir sig lítið eitt aftar á framboðslistanum að eigin ósk. „Reynsla mín í sveitarstjórnarmálum hverfur ekki á braut heldur mun ég veita nýjum frambjóðend- um stuðning og tryggja yfirfærslu þekkingar,“ segir Stef- án Ómar. „Vinir Mosfellsbæjar ganga til kosninga með sterkan og endurnýjaðan lista. Við munum kappkosta að reka baráttuna nú sem fyrr af heiðarleika þar sem farið verður í boltann en ekki manninn. 1. Dagný Kristinsdóttir 2. Guðmundur Hreinsson 3. Katarzyna Krystyna Krolikowska 4. Michele Rebora 5. Kristín Nanna Vilhelmsdóttir 6. Stefán Ómar Jónsson 7. Kristján Erling Jónsson 8. Ásgerður Inga Stefánsdóttir 9. Óskar Einarsson 10. Rakel Baldursdóttir 11. Kristinn Breki Hauksson 12. Vilhelmína Eva Vilhjálmsdóttir 13. Sigurður Eggert Halldóruson 14. Olga Jóhanna Stefánsdóttir 15. Lárus Arnar Sölvason 16. Jógvan Hansen 17. Sandra Rut Falk 18. Björn Óskar Björgvinsson 19. Andri Gunnarsson 20. Kristín Rós Guðmundsdóttir 21. Þórunn Ísfeld Þorsteinsdóttir 22. Úlfhildur Geirsdóttir vinir mosfellsbæjar Erum við ekki öll vinir Mosfellsbæjar? Guðmundur Hreins- son skipar annað sæti listans. „Ég er menntaður byggingafræðingur og húsasmíðameistari ásamt því að vera með kennaramenntun frá HÍ. Ég er giftur Jónu Maríu Kristjónsdóttur og eigum við þrjú börn. Við erum búsett í Mosfellsdal ásamt einu barni okkar en tvö börn okkar eru flutt að heiman og búa í Helgafellshverfi.“ Ég starfa sem kennari við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti, er stundakennari við Háskólann í Reykjavík auk þess sem ég rek litla byggingafræðiþjónustu. Mín helstu áherslumál í sveitarstjórn- armálum eru umhverfis- og skipulags- mál ásamt menningarmálum. Ég hef mjög gaman af því að ganga og á fjöll auk þess sem ég sinni tónlistar- gyðjunni með ýmsum hætti. Erum við ekki öll Vinir? Vinirnir: Kristján Erling, Úlfhildur, Vilhelmína, Sandra, Rakel, Katarzyna, Olga, Óskar, Stefán Ómar, Guðmundur, Dagný, Lárus, Kristín Rós, Michele, Sigurður Eggert, Kristinn Breki. ÞÚ ERT FRÁBÆR 10 % afsl. KVEÐJA HELGA OG LEIFUR ÞÚ ERT FRÁBÆR 10 % afsl. KVEÐJA HELGA OG LEIFUR Frí heimsending í mosFellsbæ í apríl opið alla daga Vetrarólympíuhátíð Evrópuæsk- unnar fór fram í Vuokatti í Finn- landi dagana 20.-25. mars. ÍSÍ fór með hóp keppenda á aldrinum 15 - 18 ára á hátíðina. Þar á meðal voru tveir Mosfellingar úr Varmárskóla, þeir Arnór Dagur Þór- oddsson og Bjartur Snær Jónsson. Þeir kepptu báðir á snjóbretti. Átta íslenskir keppendur kepptu í alpagreinum, fjórir í gönguskíða- greinum, fimm í snjóbrettagreinum og einn keppandi í listskautum. Þá voru einnig með í för tveir Mosfellingar úr starfsliði ÍSÍ, þeir Hafsteinn Pálsson og Valdimar Leó Friðriksson. Starfsfólk ÍSÍ hafði í ýmsu að snúast við undirbúning ferðarinnar og sá m.a. til þess að hópurinn uppfyllti kröfur mótshaldara vegna kórónuveirufaraldursins. Hátíðin er frábær undirbún- ingur fyrir þátttöku í ólympískum verkefnum í framtíðinni. Arnór Dagur hlaut „Fair Play“ verðlaun leikanna Mosfellingar á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar bjartur snær og arnór dagur

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.