Mosfellingur - 07.04.2022, Blaðsíða 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Dagný Kristinsdóttir er nýr oddviti • Nýir vendir sópa best • Stefán Ómar neðar á lista
Kynslóðaskipti í forystu-
sveit Vina Mosfellsbæjar
Dagný Kristinsdóttir tekur við af Stefáni Ómari
í forystu Vina Mosfellsbæjar. Dagný hefur búið í
Mosfellsbæ síðan 2004, gift Hauki Erni Harðarsyni
og eiga þau þrjú börn.
„Ég er menntaður grunnskólakennari, með
meistarapróf í Forystu og stjórnun og viðbótar
diplómu í Opinberri stjórnsýslu. Ég hef starfað
innan skólakerfisins síðan árið 2007 en í dag starfa
ég sem skólastjóri Hvassaleitisskóla í Reykjavík,
það er krefjandi en um leið afskaplega skemmtilegt og gefandi starf.“
„Í rúman áratug hef ég haft það að leiðarljósi að stíga út fyrir
þægindarammann og segja já við áskorunum. Það hefur leitt mig á
nýjar slóðir, eins og þær sem ég feta nú. Góður maður sagði að það
væri gott að búa í Kópavogi – en það er líka gott að búa í Mosfellsbæ.
Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til að bæta samfélagið og gera
bæinn okkar enn betri til að búa í.“
Tilbúin að leggja mitt af mörkum
Vinir Mosfellsbæjar er óháð framboð, skipað íbúum
sem vilja bænum sínum allt það besta. Fólkið sem
skipar listann kemur úr ýmsum áttum, það er með
margvíslega reynslu og menntun.
„Við eigum það sameiginlegt að vilja styrkja sam-
félagið og innviði stjórnsýslunnar og starfa í þágu
bæjarbúa. Leiðarljós okkar eru að handleika mál af
heiðarleika, leita þekkingar í allri ákvarðanatöku og
ástunda lýðræðislega umræðu og gagnsæi.“
Kynslóðaskipti verða í forrystusveit Vina Mosfellsbæj-
ar þar sem Stefán Ómar Jónsson, oddviti listans síðustu
fjögur ár, færir sig lítið eitt aftar á framboðslistanum að
eigin ósk. „Reynsla mín í sveitarstjórnarmálum hverfur
ekki á braut heldur mun ég veita nýjum frambjóðend-
um stuðning og tryggja yfirfærslu þekkingar,“ segir Stef-
án Ómar. „Vinir Mosfellsbæjar ganga til kosninga með
sterkan og endurnýjaðan lista. Við munum kappkosta
að reka baráttuna nú sem fyrr af heiðarleika þar sem
farið verður í boltann en ekki manninn.
1. Dagný Kristinsdóttir
2. Guðmundur Hreinsson
3. Katarzyna Krystyna Krolikowska
4. Michele Rebora
5. Kristín Nanna Vilhelmsdóttir
6. Stefán Ómar Jónsson
7. Kristján Erling Jónsson
8. Ásgerður Inga Stefánsdóttir
9. Óskar Einarsson
10. Rakel Baldursdóttir
11. Kristinn Breki Hauksson
12. Vilhelmína Eva Vilhjálmsdóttir
13. Sigurður Eggert Halldóruson
14. Olga Jóhanna Stefánsdóttir
15. Lárus Arnar Sölvason
16. Jógvan Hansen
17. Sandra Rut Falk
18. Björn Óskar Björgvinsson
19. Andri Gunnarsson
20. Kristín Rós Guðmundsdóttir
21. Þórunn Ísfeld Þorsteinsdóttir
22. Úlfhildur Geirsdóttir
vinir mosfellsbæjar
Erum við ekki öll vinir
Mosfellsbæjar?
Guðmundur Hreins-
son skipar annað sæti
listans.
„Ég er menntaður
byggingafræðingur og
húsasmíðameistari
ásamt því að vera með
kennaramenntun frá
HÍ. Ég er giftur Jónu
Maríu Kristjónsdóttur og eigum við þrjú
börn. Við erum búsett í Mosfellsdal
ásamt einu barni okkar en tvö börn
okkar eru flutt að heiman og búa í
Helgafellshverfi.“
Ég starfa sem kennari við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti, er stundakennari
við Háskólann í Reykjavík auk þess sem
ég rek litla byggingafræðiþjónustu.
Mín helstu áherslumál í sveitarstjórn-
armálum eru umhverfis- og skipulags-
mál ásamt menningarmálum.
Ég hef mjög gaman af því að ganga og
á fjöll auk þess sem ég sinni tónlistar-
gyðjunni með ýmsum hætti.
Erum við ekki öll Vinir?
Vinirnir: Kristján Erling, Úlfhildur, Vilhelmína, Sandra, Rakel,
Katarzyna, Olga, Óskar, Stefán Ómar, Guðmundur, Dagný,
Lárus, Kristín Rós, Michele, Sigurður Eggert, Kristinn Breki.
ÞÚ ERT FRÁBÆR
10 % afsl.
KVEÐJA
HELGA OG LEIFUR
ÞÚ ERT FRÁBÆR
10 % afsl.
KVEÐJA
HELGA OG LEIFUR
Frí
heimsending
í mosFellsbæ í apríl
opið alla daga
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæsk-
unnar fór fram í Vuokatti í Finn-
landi dagana 20.-25. mars.
ÍSÍ fór með hóp keppenda á
aldrinum 15 - 18 ára á hátíðina. Þar
á meðal voru tveir Mosfellingar úr
Varmárskóla, þeir Arnór Dagur Þór-
oddsson og Bjartur Snær Jónsson.
Þeir kepptu báðir á snjóbretti.
Átta íslenskir keppendur kepptu
í alpagreinum, fjórir í gönguskíða-
greinum, fimm í snjóbrettagreinum
og einn keppandi í listskautum.
Þá voru einnig með í för tveir
Mosfellingar úr starfsliði ÍSÍ, þeir
Hafsteinn Pálsson og Valdimar Leó
Friðriksson.
Starfsfólk ÍSÍ hafði í ýmsu að
snúast við undirbúning ferðarinnar
og sá m.a. til þess að hópurinn
uppfyllti kröfur mótshaldara vegna
kórónuveirufaraldursins.
Hátíðin er frábær undirbún-
ingur fyrir þátttöku í ólympískum
verkefnum í framtíðinni.
Arnór Dagur hlaut „Fair Play“ verðlaun leikanna
Mosfellingar á
Vetrarólympíuhátíð
Evrópuæskunnar
bjartur snær og arnór dagur