Mosfellingur - 07.04.2022, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 07.04.2022, Blaðsíða 12
 - Fréttir af framboðum12 Sveinn Óskar Sigurðsson leiðir lista Miðflokksins • Vilja stórefla mennta- og íþróttamál Miðflokkurinn setur börn og barnafólk í forgrunn Sveinn Óskar Sigurðsson framkvæmdastjóri og núver- andi bæjarfulltrúi leiðir áfram lista Miðflokksins. „Ég hef lagt mikla áherslu á að fjármál bæjarins verði endurskoðuð en skuldir bæjarins aukast nú ár frá ári sem hlutfall af tekjum bæjarins. Án hagkvæms rekstrar bæjarins er ekki hægt að koma til móts við bæjarbúa og tryggja betri þjónustu. Ég vil benda á að bæjarbúar hafa horft upp á að viðhaldi skólabygginga hefur verið ábótavant og ábendingar mínar um slíkt komu fram strax í upphafi kjörtímabilsins. Hefði ekki verið ýtt hressilega við meirihlutanum hefði lítið sem ekkert gerst og verkinu er ekki lokið.“ Miðflokkurinn er heilsteyptur flokkur og stendur við gefin fyrirheit. Lista flokksins fyrir næstkomandi sveitastjórnarkosningar skipar vel meinandi og heilsteyptur hópur fólks á öllum aldri. Meðalaldur listans er 53 ár, sá yngsti á listanum og skipar 5. sæti er 19 ára og sá elsti 77 ára. Konur skipa 45% af listanum, karlar 55%. Kjósendur geta treyst Miðflokknum Miðflokkurinn býður fram lista fyrir sveitarstjórn- arkosningar í vor með yfirskriftinni „Miðflokkurinn – Fyrir lifandi bæ“. Sveinn Óskar Sigurðsson leiðir listann. Á eftir honum kemur Örlygur Þór Helgason kennari og varabæjar- fulltrúi í annað sæti og Sara Hafbergsdóttir rekstrar- stjóri situr í því þriðja. Á síðasta deildarfundi félagsins var kynnt stefna sem byggir á eftirfarandi: (1) Börn og barnafólk í forgrunn. Stórefla á mennta- og íþróttamál í bænum. (2) Fólk í forgang, ekki á biðlista. Unnið verður að raunverulegri farsæld og velferð fyrir öll börn, fatlaða, öryrkja og eldri borgara. (3) Sundabraut í forgang. (4) Skipulagsmál og stjórnsýsla gerð skilvirk. (5) Urðun hætt í Álfsnesi. (6) Fjármál sveitarfélagsins tekin til skoðunar. (7) Þéttingastefnan endurskoðuð. (8) Öryggi bæjarbúa eflt og umhverfið sett í öndvegi. Flokkurinn náði 9% fylgi í síðustu sveitarstjórnar- kosningum og einum manni inn í bæjarstjórn. 1. Sveinn Óskar Sigurðsson 2. Örlygur Þór Hafbergsson 3. Sara Hafbergsdóttir 4. Helga Diljá Jóhannsdóttir 5. Ingrid Lín Chan Óskarsdóttir 6. Linda Þorgeirsdóttir 7. Lára Þorgeirsdóttir 8. Þorleifur Andri Harðarson 9. Jón Pétursson 10. Kristján Þórarinsson 11. Friðbert Bragason 12. Þorlákur Ásgeir Péturson 13. Þórunn Magnea Jónsdóttir 14. Herdís Kristjánsdóttir 15. Bjarki Þór Þórisson 16. Jón Þór Ólafsson 17. Jón Richard Sigmundsson 18. Ólöf Högnadóttir 19. Margrét Jakobína Ólafsdóttir 20. Hlynur Hilmarsson 21. Magnús Jósefsson 22. Sigurrós Indriðadóttir listi Miðflokksins Vill taka þátt í sam- félaginu í Mosfellsbæ Helga Diljá Jóhannsdóttir, dýralæknir, skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ Með þátttöku minni í framboði Miðflokksins vil ég taka þátt í samfélaginu í Mosfellsbæ, tryggja faglega umræðu og virðingu fyrir bæjarbúum, þörfum þeirra, vænt- ingum og velferð. Ég mun leggja áherslu á að ungt fólk fái notið sín í samfélaginu okkar, að eldra fólki sé tryggð velferð og að skólarnir, bæði leik- og grunnskólar verði enn betri en í dag. Fræðslumál þurfa í meira mæli að snúa um tækifæri ungs fólks og hæfni þeirra til að koma sér fyrir í flóknum heimi. Því verðum við að styrkja skóla og þær stofnanir sem æska landsins byggir velferð sína á. Lára, Magnús, Helga Diljá, Kristján, Sara, Sveinn Óskar, Linda Björk, Örlygur Þór, Ingrid Lín, Bjarki Þór og Margrét. M yn d/ Bo nn i

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.