Mosfellingur - 07.04.2022, Page 12
- Fréttir af framboðum12
Sveinn Óskar Sigurðsson leiðir lista Miðflokksins • Vilja stórefla mennta- og íþróttamál
Miðflokkurinn setur börn
og barnafólk í forgrunn
Sveinn Óskar Sigurðsson framkvæmdastjóri og núver-
andi bæjarfulltrúi leiðir áfram lista Miðflokksins.
„Ég hef lagt mikla áherslu á að fjármál bæjarins verði
endurskoðuð en skuldir bæjarins aukast nú ár frá ári
sem hlutfall af tekjum bæjarins. Án hagkvæms rekstrar
bæjarins er ekki hægt að koma til móts við bæjarbúa
og tryggja betri þjónustu. Ég vil benda á að bæjarbúar
hafa horft upp á að viðhaldi skólabygginga hefur verið
ábótavant og ábendingar mínar um slíkt komu fram strax
í upphafi kjörtímabilsins. Hefði ekki verið ýtt hressilega við meirihlutanum
hefði lítið sem ekkert gerst og verkinu er ekki lokið.“
Miðflokkurinn er heilsteyptur flokkur og stendur við gefin fyrirheit. Lista
flokksins fyrir næstkomandi sveitastjórnarkosningar skipar vel meinandi
og heilsteyptur hópur fólks á öllum aldri. Meðalaldur listans er 53 ár, sá
yngsti á listanum og skipar 5. sæti er 19 ára og sá elsti 77 ára. Konur skipa
45% af listanum, karlar 55%.
Kjósendur geta treyst Miðflokknum
Miðflokkurinn býður fram lista fyrir sveitarstjórn-
arkosningar í vor með yfirskriftinni „Miðflokkurinn
– Fyrir lifandi bæ“.
Sveinn Óskar Sigurðsson leiðir listann. Á eftir honum
kemur Örlygur Þór Helgason kennari og varabæjar-
fulltrúi í annað sæti og Sara Hafbergsdóttir rekstrar-
stjóri situr í því þriðja.
Á síðasta deildarfundi félagsins var kynnt stefna
sem byggir á eftirfarandi: (1) Börn og barnafólk í
forgrunn. Stórefla á mennta- og íþróttamál í bænum.
(2) Fólk í forgang, ekki á biðlista. Unnið verður að
raunverulegri farsæld og velferð fyrir öll börn, fatlaða,
öryrkja og eldri borgara. (3) Sundabraut í forgang. (4)
Skipulagsmál og stjórnsýsla gerð skilvirk. (5) Urðun
hætt í Álfsnesi. (6) Fjármál sveitarfélagsins tekin til
skoðunar. (7) Þéttingastefnan endurskoðuð. (8) Öryggi
bæjarbúa eflt og umhverfið sett í öndvegi.
Flokkurinn náði 9% fylgi í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum og einum manni inn í bæjarstjórn.
1. Sveinn Óskar Sigurðsson
2. Örlygur Þór Hafbergsson
3. Sara Hafbergsdóttir
4. Helga Diljá Jóhannsdóttir
5. Ingrid Lín Chan Óskarsdóttir
6. Linda Þorgeirsdóttir
7. Lára Þorgeirsdóttir
8. Þorleifur Andri Harðarson
9. Jón Pétursson
10. Kristján Þórarinsson
11. Friðbert Bragason
12. Þorlákur Ásgeir Péturson
13. Þórunn Magnea Jónsdóttir
14. Herdís Kristjánsdóttir
15. Bjarki Þór Þórisson
16. Jón Þór Ólafsson
17. Jón Richard Sigmundsson
18. Ólöf Högnadóttir
19. Margrét Jakobína Ólafsdóttir
20. Hlynur Hilmarsson
21. Magnús Jósefsson
22. Sigurrós Indriðadóttir
listi Miðflokksins
Vill taka þátt í sam-
félaginu í Mosfellsbæ
Helga Diljá Jóhannsdóttir,
dýralæknir, skipar 4. sæti á lista
Miðflokksins í Mosfellsbæ
Með þátttöku
minni í framboði
Miðflokksins
vil ég taka þátt
í samfélaginu
í Mosfellsbæ,
tryggja faglega
umræðu og
virðingu fyrir
bæjarbúum, þörfum þeirra, vænt-
ingum og velferð. Ég mun leggja
áherslu á að ungt fólk fái notið sín
í samfélaginu okkar, að eldra fólki
sé tryggð velferð og að skólarnir,
bæði leik- og grunnskólar verði enn
betri en í dag. Fræðslumál þurfa í
meira mæli að snúa um tækifæri
ungs fólks og hæfni þeirra til að
koma sér fyrir í flóknum heimi. Því
verðum við að styrkja skóla og þær
stofnanir sem æska landsins byggir
velferð sína á.
Lára, Magnús, Helga Diljá, Kristján, Sara, Sveinn Óskar,
Linda Björk, Örlygur Þór, Ingrid Lín, Bjarki Þór og Margrét.
M
yn
d/
Bo
nn
i