Mosfellingur - 07.04.2022, Qupperneq 8
Íbúahreyfingin býður
ekki fram í vor
Íbúahreyfingin hefur ákveðið að
bjóða ekki fram lista til sveitar-
stjórnarkosninganna í vor. Íbúa
hreyfingin var stofnuð árið 2010 og
átti fulltrúa í bæjarstjórn Mosfells-
bæjar 2010-2018. Fyrst var það Jón
Jósef Bjarnason sem var þeirra
fulltrúi í bæjarstjórn 2010-2014 og
síðar Sigrún H. Pálsdóttir 2014-
2018. Í sveitarstjórnarkosningum
2018 bauð Íbúahreyfingin fram
sameiginlegan lista með Pírötum
undir listabókstafnum Í. Framboðið
fékk 7,9% atkvæða og náði ekki inn
manni.
Jónas Sigurðsson formaður
s. 666 1040 jonass@islandia.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Kristbjörg Steingrímsdóttir ritari
s. 898 3947 krist2910@gmail.com
Þorsteinn Birgisson meðstjórnandi
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
Guðrún K. Hafsteinsdóttir 1. varamaður
s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is
Áshildur Þorsteinsdóttir 2. varamaður
s. 896 7518 asath52@gmail.com
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
- Fréttir úr bæjarlífinu8
PÁSKa-BInGÓ Á BarIon
Þriðjudaginn 12. apríl, kl. 13:30. Bing-
ónefnd FaMos ætlar að halda bingó
á BARION. 1 spjald, kaffi og meðlæti
kostar 1000 kr og aukaspjald 300
krónur. Hilmar Gunnarson bingóstjóri
Glæsilegir vinningar í boði.
MEnnInGarKVÖld
Loksins loksins opið hús
Mánudaginn 25. apríl í Hlégarði
klukkan 20:00. Stórsveit Íslands mun
leika. Gestir með hljómsveitinni
verða: Vigga Ásgeirsdóttir, Davíð
Ólafsson og Ari Jónsson. Kaffinefndin
verður með sitt rómaða kaffihlaðborð
að venju og barinn á sínum stað.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 (posi er ekki
á staðnum) Mætum öll og kveðjum
veturinn og covid og dönsum inn
í vorið. Með kveðju Menningar- og
skemmtinefnd FaMos.
Gönguhópur
Minnum á flotta gönguhópinn okkar
alla miðvikudaga kl. 13:00. Farið er frá
Fellinu/ Varmá. Allir velkomnir með í
þennan frábæra félagsskap. Minnum
á félagsvistina
alla föstudaga
kl. 13:00 í borð-
sal Eirhamra.
Allir velkomnir.
GaMan SaMan
7. og 28. apríl kl. 13:30 í borðsal
Eirhamra. Helgi R. Einarson gleðigjafi
mætir og tekur lagið með okkur.
Endilega komið og verið með okkur
og syngjum saman. Kaffi selt í matsal
eftir skemmtun á 500 krónur.
Vor/ SUMarFJÖr
Við ætlum að bjóða upp á 6 vikna vor/sumarfjör sem hefst 25. apríl og
lýkur 3. júní. Við verðum 3 vikur inni og 3 vikur úti. Kennt verður mán.,
mið. og föstudaga í íþróttahúsinu að Varmá og Fellinu/Varmá og verða
hópanir tveir. Sá fyrri byrjar kl. 9:30 og seinni kl. 10:30. Kennarar verða
Halla Karen og Berta. Frábært námskeið sem hentar öllum sem vilja
gleði, hreyfingu og samveru. Skáning á námskeiðið er hjá forstöðumanni
félagstarfins Elvu í síma 698-0090. (Þeir sem eru á námskeiðinu nú þegar
geta skráð sig hjá Höllu eða Bertu). Verð fyrir 6 vikur eru 6000 krónur og
greiðist gjaldið inn á reikning félagstarfs aldraða kt 420113-0560 banki
0537-14-002298 skýring vor22 berist á netfangið elvab@mos.is.
Hlökkum til að halda áfram að gleðjast og rækta sál og líkama saman
inni og úti með ykkur kæru vinir.
Kærleikskveðja Félagstarfið, Halla Karen og Berta
Á síðustu árum hefur póstþjónusta á Ís-
landi tekið stórfelldum breytingum. Frá
árinu 2010 hefur fjöldi bréfasendinga
dregist saman um 74% en á sama tíma hafa
pakkasendingar margfaldast.
Pósturinn leggur áherslu á að aðlagast
hratt og örugglega og kappkostar að þróa
þjónustu sína í takt við breyttar þarfir og
kröfur neytenda.
Á næstu misserum hyggst Pósturinn gera
breytingar á póstþjónustu í Mosfellsbæ. Þar
stendur til að loka pósthúsinu en leggja
þess í stað meiri þunga á aðrar þjónustu-
lausnir.
lokanir alltaf erfiðar
Kjartan Flosason, forstöðumaður póst-
húsa hjá Póstinum, segir lokanir alltaf erf-
iðar. Á sama tíma gera breyttir tímar kröfu
um breytta þjónustu sem við verðum víst
að laga okkur að.“
Verulega hefur dregið úr eftirspurn
eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa á sama
tíma og notkun annarra þjónustulausna
fer sívaxandi. Viðskiptavinir gera aukn-
ar kröfur um sveigjanleika og einfaldar
sjálfsafgreiðslulausnir. Þessu ákalli hefur
Pósturinn svarað með nýjungum á borð
við Póstbox og Pakkaport.
„Póstboxin okkar hafa alveg slegið í gegn,
enda er þar bæði hægt að sækja og senda,
hvenær sem viðskiptavinum hentar. Nú eru
okkar ánægðustu viðskiptavinir einmitt
þeir sem nota Póstbox. Um þessar mundir
leitum við leiða til að fjölga Póstboxum á
svæðinu,“ segir Kjartan.
„Pakkaport hafa einnig notið vinsælda.
Margir Mosfellingar nýta sér Pakkaportið
í Orkunni á Vesturlandsvegi og notkun
Pakkaports við Esjuskála er alltaf að auk-
ast. Staðsetningin er hagstæð og þarna geta
viðskiptavinir fengið persónulega þjónustu
inni á stöð.“
Veita áfram framúrskarandi þjónustu
Samspil fjölbreyttra þjónustulausna mun
sjá neytendum fyrir póstþjónustu í takt við
breyttar áherslur.
„Pósturinn er ekki að fara neitt, enda
ætlum við okkur að sjálfsögðu að halda
áfram að veita framúrskarandi þjónustu.
Auk Póstboxa og Pakkaporta munu bréf-
berar halda áfram að sjá um dreifingu.
Fyrir þá sem eru á ferðinni á milli Mos-
fellsbæjar og Reykjavíkur, og vilja nýta sér
afgreiðslu á pósthúsi, er svo stutt í pósthús-
ið á Höfðabakka,“ segir Kjartan að lokum.
Pósthúsinu í Mosfellsbæ verður lokað • Áhersla á aðrar lausnir • Lokanir alltaf erfiðar
breytingar á póstþjónustu
kjartan flosason
forstöðumaður pósthúsa
Í maí 2020 var aðgerðateymi gegn ofbeldi skipað af þáver-
andi félags- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari og
þáverandi dómsmálaráðherra, Áslaugu Örnu.
Í framhaldinu var ríkislögreglustjóra, í samvinnu við
lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sýslumanninn á
höfuðborgarsvæðinu, falið það verkefni að þróa verklag um
samvinnu og samstarf þeirra sem gegna lykilhlutverki í lífi
barna í viðkvæmri stöðu. Þeir lykilaðilar eru til dæmis lög-
regla, sýslumenn, félagsþjónusta, barnavernd, heilsugæsl-
an og skólasamfélagið. Í lok síðasta árs fékk Mosfellsbær
boð um að taka þátt í vinnustofu sem ætlað var að þróa slíkt
verklag og fór sú vinnustofa fram miðvikudaginn 30. mars.
Vel var mætt frá öllum lykilaðilum og sköpuðust miklar
umræður um málefnið, enda farið yfir hvernig mætti finna
leiðir til að láta mismunandi kerfi tala betur saman.
Niðurstöður vinnustofunnar verða nýttar til að þróa
svæðisbundið samráð í Mosfellsbæ og til gerðar á verk-
lagsreglum ríkislögreglustjóra um stuðning við börn í við-
kvæmri stöðu með það fyrir augum að bæta þjónustu við
börn sem hafa búið við ofbeldi á heimili sínu. Mikilvægt er
að grípa snemma inn í til að vernda þau og tryggja velferð
þeirra til lengri tíma.
fjölmenn vinnustofa haldin
samráð í kletti