Mosfellingur - 07.04.2022, Page 14
- Fréttir úr bæjarlífinu14
Nýr aðalvefur Mosfellsbæjar fór
í loftið í síðustu viku en vinna
við endurhönnun og forritun
hefur staðið yfir síðastliðna
níu mánuði.
Verkefnið var unnið í
samstarfi Mosfellsbæjar við
Kolofon hönnunarstofu á
grunni ítarlegrar þarfagrein-
ingar og rýni á eldri vef, vinna
sem hófst fyrir tveimur árum
síðan.
Markmið með nýjum vef er að bjóða
upp á öflugan þjónustu- og upplýsingavef
sem byggir á notendamiðaðri hönnun,
heildstæðri notendaupplifun auk þess að
styðjast við alþjóðlega staðla um aðgengis-
mál. Einnig var eitt af markmiðunum með
nýjum aðalvef að auka hraða og
virkni vefsins sem og leitarvélar.
Til samræmis við ný viðmið í
vefhönnun hefur veftréð
verið einfaldað og allur texti
vefsins hefur verið yfirfarinn
og uppfærður.
Samhliða þessu var unnin
mörkun á stafrænni ásýnd
bæjarins með myndmáli sem
meðal annars sækir í merki Mos-
fellsbæjar sem hannað var af Kristínu
Þorkelsdóttur árið 1969 og leturgerð breytt
til samræmis við nýjan hönnunarstaðal.
Næsti áfangi þessa hluta stafrænnar
vegferðar Mosfellsbæjar mun fela í sér að
fella vefi stofnana að virkni og útliti aðal-
vefsins.
Aðalvefur Mosfellsbæjar endurhannaður • www.mos.is
Nýr vefur í loftið
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Klörusjóður
Nýsköpunar- og þróunarsjóður
skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ
Markmið Klörusjóðs er að stuðla að framþróun á skóla- og
frístundastarfi í Mosfellsbæ. Sjóðurinn er ætlaður til að styrkja
verkefni sem unnin eru í einstökum skóla eða í samstarfi á milli
skóla. Heildarframlag til sjóðsins árið 2022 eru tvær milljónir og í
ár er áherslan lögð á umhverfisfræðslu.
umsóKnarfrestur er til 15. apríl og
sótt er um á íbúagátt mosfellsbæjar.
Samkvæmt reglum sjóðsins er úthlutað einu sinni á ári.
Allar upplýsingar um reglur Klörusjóðs má finna á vef
Mosfellsbæjar, mos.is/klorusjodur.
Nafn sjóðsins er Klörusjóður, til heiðurs Klöru Klængsdóttur
(1920-2011). Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939
og hóf sama ár kennslu við Brúarlandsskóla. Hún starfaði alla sína
starfsævi sem kennari í Mosfellsbæ.