Mosfellingur - 07.04.2022, Síða 18
- Kynning á vatnsleikfimi í Lágafellslaug18
K y n n i n g
Elísa Berglind Sigurjónsdóttir hefur
kennt konum vatnsleikfimi í Lágafells-
laug síðan haustið 2014 og hafa tímarnir
notið mikilla vinsælda.
Til að byrja með var boðið upp að tíma
tvisvar í viku en nú eru tímarnir orðnir
fimm í viku hverri. Mosfellingur tók Elísu
tali um starfið vítt og breytt.
„Leikfimin er mjög fjölbreytt og engir
tveir tímar eins, segir Elísa. Notast er við
ýmis hjálpartæki eins og núðlur, handlóð,
ketilbjöllur, teygjurenninga og ýmislegt
annað. Tónlist er mjög mikilvægur partur
af tímunum hjá mér.
Það eru svokallaðir mjúkir morguntím-
ar tvisvar í viku þar sem áhersla er lögð á
mjúkar hreyfingar, léttar þolæfingar, styrkt-
aræfingar, teygjur og yoga. Kvöldtímarnir
sem eru þrisvar í viku eru aðeins kraftmeiri,
þá erum við með stöðvaþjálfun, tabata,
Aqua Zumba, þol- og styrktaræfingar svo
eitthvað sé nefnt.”
Iðkendum fjölgar ört
„Þegar ég byrjaði renndi ég svolítið blint
í sjóinn. Ég var að byrja í nýrri sundlaug
í nýju bæjarfélagi og vissi ekkert hvernig
þetta myndi fara eða þróast. Það var ekki
nema ár síðan ég fékk réttindi til að kenna
Zumba í vatni og það form líkamsræktar
var ekki þekkt hér á landi. Tímarnir fóru
frekar hægt af stað en á fyrsta námskeiðinu
skráðu sig fimmtán konur.
Þetta var þó fljótt að spyrjast út og núna
eru iðkendur í kringum sjötíu, þó ekki allir
ofan í í einu. Ennþá hef ég einskorðað tím-
ana við konur en dauðlangar að prófa að
hafa tíma fyrir karla. Ég legg mikla áherslu
á að hver og ein kona í lauginni mæti á
sínum forsendum og geri nákvæmlega
það sem hennar líkami ræður við á sínum
hraða. Ég vil ekki að nein ofgeri sér.”
Zumba er góð spennulosun
„Þjálfun í vatni er stórkostlegt æfinga-
form sem hentar flest öllum, ekki bara
eldra fólki og ófrískum konum. Ávinningur
fyrir líkamann við þjálfun í vatni er mikill,
álag á liðamót nánast ekkert og meiðsli eru
nánast óþekkt í vatnsþjálfun. Í vatni getum
við hreyft okkur á margan hátt sem við
gætum annars ekki.
Hreyfing í vatni er ótrúlega góð fyrir
stoðkerfi og liði, er nánast meiðslalaus,
hefur mýkjandi áhrif á líkamann og losar
um spennu. Þetta er aðeins brot af þeim
góðu áhrifum sem þjálfun í vatni hefur á
líkama okkar.”
Rósirnar
„Hópurinn, sem ég hef kallað Rósirnar,
er einstakur og í gegnum árin höfum við
haldið að minnsta kosti tvo viðburði á ári
utan sundlaugarinnar. Stundum er farið
létt út að borða eftir tíma og við höfum
farið tvisvar sinnum saman til Spánar í
slökunar- og hreyfiferð, við förum í þriðja
skiptið núna í júní.”
Mosfellingur þakkar Elísu Berglindi
spjallið og fylgja hér í lokin nokkrar um-
sagnir frá hennar ánægðu Rósum.
• Það er svo nærandi kærleikur í öllum
þínum tímum yndislega Elísa Berglind
• Það er ekkert mál að falla strax inn í
hópinn. Elísa Berglind heldur sérstaklega
vel utan um okkur, jákvæð og hvetjandi,
en allt á okkar forsendum þar sem engar
tvær eru staddar á sama stað í getu.
• Hreyfing og æfingar í vatni er dásemd
og hefur bjargað mér bæði líkamlega og
andlega því hópurinn er svo dásamlega
samheldinn
• Ég kom fyrst í Aqua Zumba til Elísu
Berglindar 2015 og hef verið næstum
óslitið síðan. Í fyrsta skipti sem ég finn
heilsurækt sem ég fer í full af tilhlökkun
og kem alltaf glaðari og hressari upp úr
lauginni. Hef auk þess kynnst mörgum
skemmtilegum konum í sundinu og Elísa
Berglind er gefandi, faglegur og jákvæður
leiðbeinandi sem leggur allt sitt í að
tímarnir séu góðir og skemmtilegir.
• Mæli eindregið með. Tímarnir í Lágafells-
laug hjá Elísu Berglindi eru mitt “happy
place”, alltaf gaman, núvitund og gleði í
eigin líkama. Finn mikinn mun á styrk
og þoli auk þess sem það er einfaldlega
gaman. Velvilji, samkennd og jákvæðni er
einkennandi fyrir hópinn og hana Elísu
Berglindi sem leiðir okkur áfram
• Ég er ný í hópnum og leið strax eins og
heima hjá mér. Glaður og vinalegur hópur,
kennarinn fyrsta flokks og tónlistin frábær.
Góð og styrkjandi hreyfing í vatni og ekki
síst mjög skemmtileg.
Elísa Berglind kennir vatnsleikfimi í Lágafellslaug • Æfingaform sem hentar flest öllum
Hreyfing í vatni er góð
þjálfun fyrir alla
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG
GRAFÍSK HÖNNUN / HREYFIMYNDAGERÐ / MYNDSKREYTINGAR
sími 898 4796 / stinamaja@atarna.is
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG lógó / texti í einni línu
Ég legg mikla áherslu á að
hver og ein kona í lauginni
mæti á sínum forsendum og geri
nákvæmlega það sem hennar
líkami ræður við á sínum hraða.
engir tveir tímar eru eins
tímarnir njóta
mikilla vinsælda