Mosfellingur - 07.04.2022, Side 30
- Mosfellingurinn Anna Olsen30
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Alþjóðlega karatesambandið viður-
kennir fjóra mismunandi karate-
stíla í keppni, Shito Ryu, Goju Ryu,
Shotokan og Wado Ryu. Þrír af þessum
stílum eru iðkaðir á Íslandi og er Shito
Ryu stíllinn kenndur hjá Karatedeild
Aftureldingar. Þrátt fyrir mismunandi
áherslur og stíla er karateiðkun alltaf
skipt í þrjá hluta, kata, kihon, kumite.
Karate hentar iðkendum á öllum aldri
og er í senn bardagaíþrótt, líkamsrækt,
sjálfsvörn og lífsstíll. Anna Olsen var 48
ára gömul er hún fór á sína fyrstu karate-
æfingu. Í dag er hún komin með svarta
beltið, dómararéttindi og svo kennir hún
bæði byrjendum og framhaldshópum.
Hún segir karate íþróttina gefa sér mik-
ið en hún eyðir fimm dögum vikunnar í
íþróttahúsinu að Varmá.
Anna fæddist í heimahúsi í Vesturbæ
Reykjavíkur 15. desember 1964. Foreldrar
hennar eru þau Anna Jóhannesdóttir og
Karl Hinrik Olsen en þau eru bæði látin.
Anna á þrjú alsystkini, Hinrik f. 1952,
Sigurbjörg f. 1954, Jóhannes f. 1958 d. 1980.
Þrjú hálfsystkini, Ágústa f. 1943, Valdimar f.
1948 og Soffía f. 1954 og einn fósturbróður,
Anton f. 1961.
Setti spritt á sárin
„Ég er alin upp á Meistaravöllum í
Reykjavík. Á flestum heimilum í kring voru
3-4 börn svo það var ávallt líf og fjör og nóg
af leikfélögum. Við lékum okkur oftast úti
og það skipti ekki máli hvort þú varst 8 ára
eða 15 ára, allir léku saman.
Óbyggða svæðið sem síðar var byggður
Flyðrugrandi var heillandi staður. Þar var
starfandi starfsvöllur á sumrin og margir
fallegir hlutir búnir til. Margir kofarnir
voru smíðaðir og því fylgdi óhjákvæmilega
að stígið var á naglaspítur, maður var orðin
ansi lunkinn við að kippa nöglunum úr og
setja spritt á sárin.”
Mamma sat uppi við alla nóttina
„Ferðalögin með fjölskyldunni eru of-
arlega í huga frá æskuárunum. Farið var á
rauðu Volkswagen bjöllunni, öllu pakkað
á toppinn, okkur systkinunum
troðið aftur í og svo var ekið af
stað. Foreldrar mínir reyktu bæði
og það var reykt í bílnum eins og
tíðkaðist í denn. Það fór illa í mig
og ég varð oft bílveik, yfirleitt var ég búin að
æla áður en Ártúnsbrekkunni var náð.
Það var farið víða um land og hvíta tjald-
inu tjaldað. Mamma var mjög hrædd við
pöddur og hún sat oftast uppi við alla nótt-
ina með kveikt á vasaljósinu til að fylgjast
með hvort það væru einhverjar köngulær
inn í tjaldinu,” segir Anna og brosir.”
Vorum heppin með kennara
„Melaskóli og Hagaskóli voru
mínir skólar. Melaskóli þessi
stóri skóli, man hvað manni
fannst maður orðin stór þegar maður byrj-
aði þar. Við vorum heppin með kennara,
Ástríði Guðmundsdóttur en hún kenndi
okkur allan barnaskólann. Hún var dugleg
að fara með okkur á skauta á Melavöllinn,
æfingar hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Há-
skólabíói og í fjöruferðir.
Hagaskóli var gagnfræðaskólinn, lauk
þar 9. bekk sem þá var efsta stigið. Haldin
voru regluleg skólaböll og aðrar skemmt-
anir sem voru vel sóttar.”
Tóku þátt í húsverkum og heyskap
Anna var 15 ára að klára Hagaskóla þegar
hún kynntist manni sínum, Árna Jóhann-
essyni. Hann var úr sveit svo sumarið eftir
gagnfræðaskóla lá leiðin í Húnavatnssýsl-
una. Þar brettu þau upp ermar og tóku þátt
í sauðburði, húsverkum og heyskap.
„Eftir dásamlegan tíma í sveitinni hafði
ég hugsað mér að fara í fatasaum í Iðnskól-
ann í Reykjavík, ég sótti um en komst ekki
inn. Ég fór því að vinna á saumastofunni
í Karnabæ, taldi það koma sér vel, en þar
fann ég út að mig langaði bara alls ekki
að vinna við þetta. Það varð því ekkert af
framhaldsskólagöngu hjá mér.”
Fjölbreyttur og farsæll ferill
„Árið 1983 keyptum við Árni okkar fyrstu
íbúð, það sama ár var ég ráðin til starfa hjá
Landsbankanum. Ég átti þar fjölbreyttan og
farsælan feril í 37 ár og fór í gegnum ýmis-
konar nám. Störfin í bankanum voru tölu-
vert öðruvísi þá miðað við sem þekkist
í dag, margt fólk á hverri vinnustöð og
mörg handtökin. Það var mikil breyting
þegar tölvuvæðingin hóf innreið sína, ég
tók þátt í að innleiða og kenna á gjaldkera-
kerfin sem tekin voru upp ásamt því að fara
á milli fyrirtækja og kenna á netbankann
þegar hann kom.
Að vera starfsmaður í bankanum þegar
hann var ríkisbanki, einkabanki og svo aft-
ur ríkisbanki var töluverð reynsla og fylgdu
því miklar breytingar. Að fá að þróast í starfi
frá því að vera almennur starfsmaður að
selja tékkhefti í að vera staðgengill útibús-
stjóra með þeirri ábyrgð sem því fylgdi var
líka mikil reynsla.
Ég er lánsöm að hafa kynnst góðu fólki
í gegnum tíðina hjá bankanum. Nú hafa
tímarnir breyst, ég missti vinnuna s.l. haust
og er því Landsbankahjartað mitt svolítið
brotið en ég er hokin af reynslu.”
Dundum okkur saman í garðinum
Anna og Árni slitu samvistum árið 2019.
Þau eiga saman dótturina, Valdísi Ósk f.
2000.
„Við mæðgur erum duglegar að dunda
okkur saman í garðinum og gróðurhúsinu
og svo förum við í gönguferðir með hund-
inn. Erum svo lánsamar að búa á dásam-
legum stað þar sem stutt er í náttúruna. Við
höfum einnig verið duglegar að ferðast um
landið.”
Ég gjörsamlega heillaðist
„Árið 2011 byrjaði Valdís Ósk mín að æfa
karate og ég hafði gaman af að fylgjast með
úr fjarlægð. Mér leið vel með að vita að hún
gæti varið sig ef eitthvað kæmi upp á, ég
myndi gjarnan vilja sjá fleiri feta þennan
veg. Fljótt fór ég að vera með puttana í
ýmiskonar málum, fór í stjórn félagsins og
hef verið formaður frá 2015.
Það varð svo úr að ég fór að mæta á full-
orðins æfingar, orðin 48 ára gömul,” segir
Anna og brosir. Æfingarnar voru skemmti-
legar og það ríkti mikil virðing milli æfinga-
félaganna. Ég gjörsamlega heillaðist og hef
nú mætt að jafnaði þrisvar sinnum í viku á
æfingar frá því að ég byrjaði. Ég vissi ekki
alveg hvort þetta myndi ganga hjá mér því
ég hef átt við bakvandamál að stríða en
styrkur minn hefur eflst til muna.
Nú er ég komin með svarta beltið 2. Dan
og með dómararéttindi í Kata, hver veit
nema ég reyni við 3. Dan eftir 3 ár. Und-
anfarin ár hef ég einnig verið að kenna
bæði byrjendum og framhaldshópum sem
gefur mér mikið, ég er því í íþróttahúsinu
fimm daga vikunnar, bæði við æfingar og
kennslu.
Það er svo gaman að taka á móti krökk-
unum á haustin og sjá hvað þau hafa þrosk-
ast í sumarfríinu og svo auðvitað að bjóða
nýja iðkendur velkomna,” segir Anna að
lokum er við kveðjumst.
Mér leið vel með að vita að
hún gæti varið sig ef eitthvað
kæmi upp á, ég myndi gjarnan
vilja sjá fleiri feta þennan veg.
Mæðgurnar Valdís Ósk og Anna Olsen.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Styrkur minn efldist til muna
HIN HLIÐIN
Hvaða bók lastu síðast?
Kamp Knox eftir Arnald Indriðason.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Klæðskeri.
Draumaborgin? Boston og París.
Þrjú orð sem lýsa þér best?
Orkubolti, samviskusöm og hjálpsöm.
Hvert er þitt mesta afrek?
Fyrir utan að eignast dóttur mína, að vera
komin með 2. Dan í karate á gamalsaldri.
Besta lykt í heimi?
Ilmvatnið mitt, Acqua di Gioia.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera innan um skemmtilegt fólk,
ferðast og njóta lífsins.
Hvaða tegund af tannkremi notar þú?
Sensodyne.
Anna Olsen formaður Karatedeildar Aftureldingar hvetur alla til þess að læra sjálfsvörn
á leið í skrúðgöngu hundurinn nahla
mæðgur í dómarahlutverki