Mosfellingur - 07.04.2022, Blaðsíða 31
Heilsueandi Samfélag
í Mosfellsbæ
Vertu með!
www.heilsuvin.is
Viðmið fyrir tilnefningu
Viðurkenninguna geta þeir hlotið sem hafa stuðlað
að einu eða fleiru af eftirfarandi:
• Hafa haft forgöngu um hvers kyns hreyfingu til bættrar lýðheilsu.
• Hafa hvatt til bætts mataræðis eða stuðlað,
með frumkvæði sínu, að heilsueflandi mataræði.
• Hafa stuðlað að eflingu og/eða viðhorfsbreytingu á sviði
geðheilsu og bættri sjálfsmynd einstaklinga.
• Hafa á einn eða annan hátt hvatt til og/eða stuðlað að
bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri vellíðan og
lífsgæðum íbúa Mosfellsbæjar.
HVernig er Hægt að tilnefna?
Tilnefningar skulu sendar í gegnum vef Heilsuvinjar,
www.heilsuvin.is, en þar er að finna sérstakt form til að fylla út.
Beðið er um nafn á þeim einstaklingi, hópi, fyrirtæki eða stofnun
sem á að tilnefna auk rökstuðnings fyrir tilnefningunni.
DómnefnD
Sérstök dómnefnd mun fara yfir og meta allar tilnefningar
með tilliti til rökstuðnings og viðmiða fyrir tilnefningu.
Gulrótin
2022
„gulrótin“ er lýðheilsuviðurkenning sem ætlað er að hampa einstaklingi, hópi, fyrirtæki eða
stofnun fyrir brautryðjendastarf í þágu heilsueflingar og bættrar lýðheilsu íbúa mosfellsbæjar.
Heilsuvin og Mosfellsbær standa að baki viðurkenningunni sem felur í sér þakklæti fyrir frumkvæði
og störf í anda lýðheilsu og á jafnframt að vera hvatning til allra á þessum vettvangi í bæjarfélaginu.
Opið verður fyrir tilnefningar til miðnættis 28. apríl 2022
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG
Mosfellsbær
vellíðan fyrir alla
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG lógó / dæmi um merkingu með bæjarfélagi og slagorði
l ý ð H e i l s u V i ð u r k e n n i n g m O s f e l l s b æ j a r