Mosfellingur - 07.04.2022, Síða 36
- www.mosfellingur.is36
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum
má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Laus störf í Mosfellsbæ
Þegar spurt er hver eru sérkenni
Mosfellsbæjar geta svörin orðið
með ýmsu móti, til dæmis:
Þjóðvegur nr. eitt og leiðin til
Þingvalla liggja þvert í gegnum
bæinn.
Mosfellsbær er „úthverfi
Reykjavíkur“.
Mosfellsbær er svefnbær!
Svörin geta líka verið allt önnur, í sam-
ræmi við viðhorf og upplifun hvers og eins.
En burtséð frá því er full þörf á því að við
Mosfellingar spyrjum okkur hver ímynd
og séreinkenni Mosfellsbæjar eigi að vera
í bráð og lengd.
Hvað er staðarvitund?
Með sjö ára búsetu hér í bænum kynnist
ég staðháttum sífellt betur og það styrkir
jafnframt vitund mína um þá möguleika
sem geta aukið lífsgæði okkar Mosfellinga.
Sérhver staður hefur sín sérkenni – eitt-
hvað sérstakt/einstakt fram yfir aðra, þetta
má kalla staðaranda og staðarvitund og
tengist til dæmis:
• umhverfi – landslagi – (strönd – fell
– dalir – stöðuvötn).
• sögu – menningarminjum – listum
– gömlum atvinnuháttum.
Staðarandi/staðarsjálfsmynd geta aukið
vellíðan íbúanna, þeir tengjast betur bæjar-
félaginu og verða meðvitaðri um sérstöðu
sinnar heimabyggðar. Sterkur staðarandi
er einnig aðdráttarafl fyrir ferðamenn og
fyrirtæki og eykur áhuga þeirra á sveitar-
félaginu. Veikan staðaranda er hægt að
styrkja með góðri og meðvitaðri hönnun og
skipulagi þar sem sóknarfæri og aðstæður
byggja meðal annars á sögu, menningu
og umhverfi og geta orðið að ákveðinni
sérstöðu.
Mosfellsbær hefur sérstöðu innan höfuð-
borgarsvæðisins með afar fjölbreytta nátt-
úru, landslag og menningarminjar,innan
sinna marka, til dæmis fellin, heiðarlands-
lag, strandlengju í Leiruvogi og stöðuvötn
upp til heiða.
Í mínum huga eru ótal tækifæri til að
byggja upp og efla enn frekar sterka stað-
arvitund/staðaranda í Mosfellsbæ, tæki til
þess eru til dæmis:
• Orkuskipti síðustu aldar með nýtingu
jarðhitans – það var framkvæmd á heims-
vísu sem er jafnframt innlegg í loftslags-
umræðu nútímans. Nýlega undirrituðu
Mosfellsbær og Veitur viljayfirlýsingu um
uppbyggingu jarðhitagarðs í Reykjahverfi
til að halda þessari merku sögu á lofti.
• Uppbygging ullariðnaðar á Álafossi
með nýtingu vatnsorkunnar var mikið og
sögulegt frumkvöðlastarf.
• Margar merkar sögulegar stað-
reyndir tengjast Mosfellsbæ og fjöldi
menningarminja er hér að finna.
Þar má nefna þjóðleiðir á Mosfells-
heiði, Hafravatnsrétt, hersetuna,
ylrækt, gamla búskaparhætti
• Listsköpun af margvíslegum toga.
• Náttúruminjar og friðlýst svæði.
• Fjölbreytileiki landslagsins
frá fjöru til fjalla og um leið fjölbreyttir
útivistarmöguleikar.
Hafravatnssvæðið
Hafravatn og nágrenni þess í sunn-
anverðum Mosfellsbæ er útvistarsvæði
sem auðvelt er að tengja við staðarvitund
og hina metnaðarfullu umhverfisstefnu
Mosfellsbæjar. Útivistarmöguleikar á Haf-
ravatnssvæðinu eru fjölmargir, hér verða
nokkrir nefndir til sögunnar:
• Gönguleiðir, hjóla- og reiðleiðir sem
tengjast aðliggjandi svæðum, bæði
fellum, Mosfellsheiði og þéttbýli bæjarins.
• Vegur („útivistarvegur“) meðfram vatn-
inu með 30–40 km hámarkshraða, einnig
leið fyrir gangandi og hjólandi umferð,
auk reiðleiðar.
• Aukið aðgengi að vatninu.
• Siglingar (kajak, kanó, seglbátar o.fl.).
• Silungsveiði, sumar og vetur.
• Svifdrekar.
• Náttúruskoðun um fjölbreytt landslag:
Skóglendi, votlendi og fjörur.
• Menningarminjar, til dæmis Hafravatns-
rétt og gullnáman í Þormóðsdal.
• „Græni trefillinn“ er samheiti yfir útivist-
ar- og skógræktarsvæði í útjaðri höfuðborg-
arsvæðisins, þar á meðal Mosfellsbæjar.
• Baðaðstaða við Hafravatn sem samþykkt
var í íbúakosningunni „Okkar Mosó“.
Mikilvægt er að fá skýra stefnu um
nýtingu Hafravatnssvæðisins til að það
geti orðið að „paradís“ útivistar á höfuð-
borgarsvæðinu og um leið hluti af sterk-
um staðaranda Mosfellsbæjar. Sú stefna
myndi tengjast aðalskipulagi bæjarins og
þeim markmiðum sem sett hafa verið fram
í samræmi við heilsueflandi samfélag, úti-
vist, lýðheilsu og loftslagsmál.
Ég legg til að tekið verði upp samtal milli
ólíkra hagsmunaaðila við Hafravatn sem
leiði til stefnumörkunar og verði grunn-
ur að útivistardeiliskipulagi svæðisins. Í
stefnuskrá V-listans fyrir komandi kosn-
ingar er lögð áhersla á að styrkja enn frekar
staðarvitund Mosfellsbæjar og efla útivist-
armöguleika Hafravatnssvæðisins með
tengingu við fjöll og dali þar í grenndinni.
Auður Sveinsdóttir, skipar 8. sæti
V-listans í kosningunum 14. maí
Ímynd Mosfellsbæjar
- Hver er sérstaðan? Orð eins og íbúalýðræði, þátttaka
almennings og upplýsingaflæði eru
mikið notuð og eru mjög jákvæð.
En eru þetta bara orð sem notuð
eru á tyllidögum? Sett í stefnuskrá
og notuð af stjórnmálafólki sem
sækist eftir atkvæðum?
Oft er það þannig en núverandi
meirihluti D- og V lista hafa lagt
áherslu á þessa þætti í skipulagsmálum
sveitarfélagsins undanfarin ár. Við viljum
gera enn betur á komandi kjörtímabili. En
hvernig getum við aukið áhuga almennings
enn frekar á t.d. skipulagsmálum?
Í nýlegri rannsókn sem gerð var af
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
og fjallaði um samráð við almenning um
skipulagsmál kemur margt áhugavert fram.
Þar kemur fram að fólk eldra en fimmtugt
er virkast og auðveldast að ná til þeirra en
erfiðast er að ná til ungs barnafólks.
Fagaðilar voru margir hverjir sammála
um að ungt fólk væri sá hópur sem einna
eftirsóknarverðast er að eiga í samtali við
um skipulags- og framkvæmdamál, því
yngri kynslóðin væri oft opnari en þeir
sem eldri eru. Hún væri oftar tilbúnari til
að hlusta á rök en fólk á öðrum
aldursskeiðum. Þá hefði ungt
fólk margt mikilvægt til málanna
að leggja. (Guðný Gústafsdóttir,
Stefán Þór Gunnarsson og Ásdís
A. Arnalds (2021). Samráð við
almenning um skipulagsmál.
Reykjavík: Félagvísindastofnun
Háskóla Íslands).
Til að vekja áhuga almennings á m.a.
skipulagsmálum þarf að setja efni fram á
þann hátt að bæði sé auðvelt að sækja og
skilja upplýsingar sem settar eru fram.
Flestir hafa áhuga á því hvað framkvæmdir
og skipulag hafa á sitt nærumhverfi.
Við á lista Sjálfstæðisflokksins viljum
bæta enn frekar upplýsingaflæðið, setja
upplýsingar um skipulag, verklegar fram-
kvæmdir o.þ.h. fram á nútímalegan hátt og
á „mannamáli“ til að auka áhuga og athygli
fólks á þessum málum. Það skilar sér von-
andi í meiri þátttöku almennings sem leiðir
til meiri sáttar um bæjarmálin.
Hjörtur Örn Arnarson
Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar
Skipulagsmál á mannamáli
Umræðan um skort á hjúkrunar-
rýmum hefur verið fyrirferðarmikil
á undanförnum misserum og árum
og þá einkum í tengslum við frá-
flæðisvanda Landspítalans. Það er
dýrt úrræði að fólk sem lokið hefur
sjúkrahússmeðferð dvelji á spítala
og teppi háþróuð og dýr legurými.
Bæði þessi úrræði, sjúkrahús og
hjúkrunarheimili, eru á ábyrgð og
í umsjón ríkisins. Það vekur furðu
að ríkisstjórnin sem að minnsta
kosti í orði kveðnu gefur sig út fyrir
hagkvæmni í rekstri geri ekki það
augljósa þ.e. að fjölga hjúkrunar-
rýmum.
Hlutverk sveitarfélaga
Sveitarfélög geta líka komið að lausn
þessa vanda og jafnvel seinkað því að fólk
þurfi að flytja á hjúkrunarheimili. Þau geta
boðið upp á valkosti í sinni þjónustu sem í
raun flestir sem komnir eru á efri ár geta
valið um. Einn möguleiki er að öldruðum
sé gert kleift að búa og lifa á sínu heimili,
eins lengi og kostur er, með þeim stuðningi
sem þarf til og hentar hverjum og einum.
Það er reyndar lögbundið hlutverk sveitar-
félaga að annast þessa þjónustu og vissu-
lega gera sveitarfélög það, en þó hvert með
sínum hætti.
Með því að bæta í og auka gæði stuðn-
ingsþjónustu sveitarfélaga með fjölbreytt-
um úrræðum og samfelldri þjónustu getum
við seinkað verulega innlögnum á hjúkr-
unarheimili og þar með dregið úr kostnaði
samfélagsins. Fyrir utan lægri kostnað þá
stuðlar bætt stuðningsþjónusta
að því að aldraðir hafi val og geti
búið lengur í því húsnæði sem þeir
helst kjósa.
Samþætt þjónusta
Til að aldraðir hafi þetta val er
mjög mikilvægt að þjónustan sem
í boði er, og er grundvöllur þess að
aldraðir geti nýtt sér valfrelsi, sé
samþætt undir einni stjórn. Hér
í Mosfellsbæ er þessi þjónusta,
stuðningsþjónusta og heilbrigðis-
þjónusta, á hendi þriggja aðila. Til
að bæta þjónustu við aldraða Mos-
fellinga í heimahúsum svo þeir
hafi raunverulegt val um búsetu
og til auka yfirsýn og skilvirkni er
samþætting nauðsynleg. Þessu ætlum við
jafnaðarmenn breyta og stuðla þar með að
aukinni farsæld þeirra sem þjónustunnar
njóta.
Það þurfti jafnaðarmenn í ríkisstjórn á
sínum tíma til þess að hjúkrunarheimili
risi í Mosfellsbæ og það þarf jafnaðarmenn
í meirihluta í bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
til þess að bæta þjónustu við eldri borgara
í bænum.
Það skiptir nefnilega máli hverjir stjórna.
Settu X við S á kjördag.
Ólafur Ingi Óskarsson, skipar 2. sæti
á framboðslista Samfylkingarinnar
Elín Árnadóttir, skipar 4. sæti
á framboðslista Samfylkingarinnar
Þjónusta við aldraða